Morgunblaðið - 12.05.2004, Page 22

Morgunblaðið - 12.05.2004, Page 22
DAGLEGT LÍF 22 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ F í t o n / S Í A F I 0 0 9 1 3 8 Sláttuvél Poulan Pro 4,75 Hö Safnpoki Sláttutraktor Poulan Pro 18 Hö Grassafnari www.slattuvel.com Faxafeni 14 : Sími 5172010 Tilboð 299.000.- Tilboð 29.900.- Efnalaug og fataleiga Garðabæjar Garðatorgi 3 • 565 6680 www.fataleiga.is ÚTSALA á glæsilegum samkvæmis kjólum Keyrum Ísland áfram! Glæsilegir hópferðabílar með öllum búnaði fyrir minni og stærri hópa ! w w w . h o p f e r d i r . i s 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s V erkstæði og verslanir með listmuni hafa skap- að Skólavörðustígnum ákveðna sérstöðu á undanförnum árum og skemmtilegt er að spássera um Skólavörðustíginn til að skoða myndlist og hönnun, gull og ker- amik. En auk þess sem gleður aug- að og andann er nú hægt að ganga um Skólavörðustíginn og finna ým- islegt sem gleður munn og maga. Sælkerastígur er orðið sem kem- ur upp í hugann þegar litast er um á Skólavörðustíg þessa dagana. Á gönguferð um neðanverðan Skóla- vörðustíginn er hægt að grípa með sér sælkerafiskrétti, heilsuvöru, líf- ræna ávaxtasafa, osta, pylsur og álegg og er það áreiðanlega kær- komið fyrir íbúa í miðbænum, sem og aðra sem leggja leið sína á þessa götu sem sífellt verður líflegri. Franskt bakarí bætist við Frá Bankastræti og bráðlega allt upp að horninu á Óðinsgötu hafa nú raðað sér sælkeraverslanir af ýmsu tagi. Fyrst er það sælkera skyndi- bitastaðurinn The Deli, sem reynd- ar tilheyrir Bankastræti, þá sæl- kerafiskbúðin Fylgifiskar, en útibú frá Suðurlandsbrautinni var opnað á Skólavörðustíg fyrir rúmum mán- uði, Ostabúðin sem verslar með osta, pylsur, álegg og sælkeravöru ýmiss konar og svo Heilsuhúsið sem fyrst var opnað við Skólavörðustíg fyrir tæpum aldarfjórðungi, löngu áður en orðið sælkeraverslun varð til, en Heilsuhúsið hefur verið flutt tvisvar frá þeim tíma innan göt- unnar. Á næstunni verður svo opnað bakarí á Skólavörðustíg 14, á horninu á Óðinsgötu, þar sem verslunin Man var áður. Verið er að innrétta hús- næðið og stefnt er að opnun í þessum mánuði. Áhersla verður á franskt bakk- elsi og við- skiptavinir munu geta tyllt sér með kaffibolla og croissant þótt ekki verði um eig- inlegt kaffihús að ræða. Eigandi er Frakkinn Azis Mihoubi sem fluttist hingað til lands fyrir átta ár- um og lék handknattleik með Val. Mihoubi bjó í París um árabil og segist hafa verið vanur því að fá sér croissant og kaffi á morgnana og fannst vanta slíkt hér á landi. Hann hef- ur trú á að grundvöllur sé fyrir rekstri bakarísins við Skólavörðustíg sem að hans mati er að verða sæl- keragata. Bakaríið verður kallað Moulin Rouge, Rauða myllan. Þang- að hafa verið ráðnir tveir franskir bakarar sem Mihoubi segir að séu mjög ánægðir með íslenska hráefn- ið. Aðeins nokkur skref eru á milli þessara staða og gaman að versla fyrir sælkeramáltíð helgarinnar á göngu um stíginn. Fyrst eru það Fylgi- fiskar þar sem Sesambleikjan er valin, en hún er með vinsælustu réttunum hjá Fylgifiskum. Útibúið á Skólavörðustíg hefur stað- ið undir væntingum og greinilegt að markaður er fyrir svona fiskbúð á þessum stað. Í Ostabúðinni er dvalið við osta- borðið en áleggspylsur vekja líka at- hygli. Geitaosturinn er til bæði mjúkur og fastari og er góður í sal- atið eða ofan á brauðið. Heilsuhúsið er næst í röðinni og þar má finna margt fleira en vítamín og spelt- brauð. Sælkeravörur eins og ólífur, ætiþistlar og tómatar í olíu eru freistandi, sem og þurrkaðir ávextir og hnetur. Hliðargöturnar státa líka af sælkerabúðum Margt fleira er hægt að grípa með sér á ferð um Skólavörðustíg- inn í heild sinni og hans nánasta um- hverfi. Þar eru fleiri verslanir eða staðir sem selja eitthvað í gogginn, eins og gamla góða Mokka sem breytist aldrei. Á efri hlið- argötum Skóla- vörðustígs, eins og Klapparstíg og Kára- stíg, má líka bæta í sarpinn. Í Pip- ar og salt fást alls konar sultur, kex og sælkeravörur og í Yggdrasil við Kárastíg eykst úrvalið stöðugt af hvers konar heilsuvöru og lífrænum  MATUR| Á Skólavörðustíg er ýmislegt freistandi að finna sem gleður bæði munn og maga Sælkerastígur í miðbænum Morgunblaðið/Ásdís Sælkerastígur: Samlokur, fiskur, ostur, álegg, lífrænt ræktað grænmeti, heilsuvörur og brátt franskt bakkelsi. Morgunblaðið/Jim Smart                                                                    !      "   #         # $     %  $        "     &      -% .  /001 2 '34 5 0/3  6 $7 6 8  9 %4 /  */ :; /  3 <  

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.