Morgunblaðið - 12.05.2004, Side 23
afurðum. Frá Bergstaðastræti er
gengið inn í ýmsar búðir sem til-
heyra þessum hópi.
Grænmetisveitingastaðurinn
Grænn kostur er einn af þeim, þótt
húsnæði hans tilheyri Skólavörðu-
stígnum, en við Bergstaðastrætið er
líka gamalgróið bakarí kennt við
Bernhöft, líklega það elsta á land-
inu. Og til að fullkomna alvöru sæl-
keramáltíð úr öllum þessum versl-
unum, er ekki úr vegi að grípa með
sér einn blómvönd í Blómaverk-
stæði Binna í húsi sem tilheyrir
Skólavörðustíg en gengið er inn frá
Bergstaðastræti.
Sveinn Kjartansson hjá Fylgi-
fiskum gefur eina uppskrift sem
hentar á grillið:
Þorskur í bananablöðum
(á grill eða í ofn,
fyrir fjóra)
4 stk 250 g þorskhnakkar
2 msk hvítlauksolía
2 msk chilimauk með
tælenskum basil
1 rauðlaukur
2 limeblöð
bananablöð
salt og pipar
Skerið þorskinn í tvennt og leggið
í hvítlauksolíuna. Kryddið með salti
og pipar.
Blandið chilimaukinu saman við.
Skerið laukinn í sneiðar og bætið út
í. Saxið limeblöðin smátt og bætið
saman við.
Klippið bananablöðin þannig að
hægt sé að loka þeim utan um
þorskinn. Vefjið bananablöðunum
þannig utan um þorskinn að úr verði
umslag. Notið lítil spjót eða tann-
stöngul til að halda öllu saman.
Ef þetta er bakað í ofni þarf að
forhita ofninn í 200°C og baka í um
17 mín. Ef grillið er notað er það hit-
að vel og grillað í um 4 mín. á hvorri
hlið.
Morgunblaðið/Ásdís
Heilsuhúsið: Lífrænt ræktað grænmeti og ávextir eru
brot af því sem stendur viðskiptavinum til boða.
Morgunblaðið/Ásdís
Fylgifiskar: Úrval tilbúinna sælkerafiskrétta, m.a. er
á boðstólum þorskur í bananablöðum.
Morgunblaðið/Eggert
Ostabúðin: Óendanlegt úrval osta í sælkeramáltíðina.
steingerdur@mbl.is
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 23
Farði sem
skilar lýtalausri
förðun
Réttur litur,
einstök tilfinning
Vegna vinsælda Color Clone farðans
um allan heim hefur hann víða verið
uppseldur. Við getum nú glaðst yfir
því að hafa fengið þennan frábæra
farða á ný. Við biðjumst velvirðingar ef
þið hafið gripið í tómt og í sárabætur
gefum við fallegan töskuspegil með öllum förðum
frá Helena Rubinstein meðan birgðir endast.
Útsölustaðir Helena Rubinstein
Nú er búið að hanna vél-búnað, sem hefur því hlut-verki að gegna að losa um
dulda snilligáfu, sem kann að búa í
mönnum. Með öflugum segul-
slögum má með tækninni slökkva á
hluta heilastarfseminnar og örva
aðra vitsmunahluta, segir m.a. á
fréttavef Evening Standard. Þann-
ig má leysa úr læðingi hulda hæfi-
leika mannskepnunnar sem venju-
lega láta ekki á sér kræla nema
eftir heilaskaða.
Uppfinningamaðurinn Allan
Snyder, prófessor við háskólann í
Sydney í Ástralíu, hefur prófað
búnaðinn á sjálfum sér og ellefu
öðrum sjálfboðaliðum. Af þeim eru
fjórir sagðir hafa sýnt marktækar
breytingar í meðferðinni, sem
prófaði m.a. teikni-, stærðfræði-,
tungumála- og tónlistarhæfileika
viðkomandi. Einn sjálfboðaliðinn
er sagður hafa hagað sér í líkingu
við Dustin Hoffman í Óskars-
verðlaunamyndinni Rain Man. Þar
var á ferðinni einhverfur ein-
staklingur gæddur þeim óvenju-
lega hæfileika að vera sérlega
minnugur á tölur. Snyder segist
telja að allir menn séu gæddir
ákveðnum hæfileikum, en sumir
eigi bara erfitt með að finna þá.
Því vonist hann til að nýja vélin
geti uppgötvað fleiri snillinga í
framtíðinni á borð við Albert Ein-
stein og Isaac Newton, sem vís-
indamenn hafa reyndar bent á að
báðir hafi sýnt alþekkt einkenni
Asperger-heilkennis, sem sé skylt
einhverfu. Svipaða sögu megi segja
um Van Gogh, Edgar Alan Poe og
Tchaikovsky. Greint var frá þess-
ari nýju tækni á dögunum í New
Scientist, en tekið var fram að allt
félli í eðlilegt horf í heilabúinu á ný
eftir að búnaðurinn væri fjar-
lægður.
HÆFILEIKAR
Hulin snilligáfa leyst úr læðingi
Morgunblaðið/RAX