Morgunblaðið - 12.05.2004, Side 30

Morgunblaðið - 12.05.2004, Side 30
30 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Gallerí i8 í Reykjavík, tekurnú í fyrsta sinn þátt ímyndlistarstefnunni ArtBasel í Sviss, en hún er sú elsta og virtasta sinnar tegundar í heiminum í dag. Áhrif Baselstefn- unnar eru mikil og þangað sækja allir helstu myndlistarfrömuðir sem eitthvað kveður að. Á tveimur sýn- ingum í tengslum við stefnuna verð- ur annars vegar sýnt verk Finn- boga Péturssonar, Sphere, en Gjörningaklúbburinn sýnir á ann- arri sýningu stefnunnar. Það þykir afar sérstakt að gallerí skuli ná þeim árangri að koma listamönnum sínum að á tveimur sýningum hátíð- arinnar í fyrsta sinn sem það tekur þátt í henni. Stefnan hefst 16. júní, en hinn 17. verður sérstakur Ís- landsdagur, þar sem myndlistar- safnarinn Simon de Pury, eigandi alþjóðlega uppboðsfyrirtækisins Phillips de Pury í New York og safnarinn Francesca von Habsburg hafa boðið til kvöldverðar um sextíu áhrifamanneskjum úr alþjóðlegu myndlistarlífi, til heiðurs Finnboga Péturssyni og Gjörningaklúbbnum. Sama kvöld verður íslensk dagskrá í garði Listasafnsins í Basel, þar sem hljómsveitin Trabant leikur, auk þess sem plötusnúðarnir Gísli Galdur og Kári koma fram og verk eftir Ásdísi Sif Gunnarsdóttur verða sýnd. Gestgjafar á íslenska kvöldinu í Basel verða, auk Franc- escu von Habsburg, Samuel Keller stjórnandi Listastefnunnar í Basel, Sigurjón Sighvatsson kvikmynda- framleiðandi og Edda Jónsdóttir galleristi og eigandi i8. Ólympíuleikar myndlistarinnar Verk Gjörningaklúbbsins verður á sýningu sem er helguð yngri lista- mönnum og kallast Art Statement, en verk Finnboga Péturssonar verður sýnt á sýningu sem kallast Art Unlimited. Þetta er verkið „Spheres“ sem Finnbogi bjó sér- staklega til fyrir kúluna í Ásmund- arsafni, og var sýnt þar í fyrravor. „Þetta er risastór alþjóðleg sýn- ing á vegum Art Basel, og þar verða saman komnar fallbyssurnar í myndlistinni í heiminum í dag,“ segir Finnbogi. „Það þykir heiður að vera valinn til að sýna þarna, og erfitt að komast inn, og galleríin sækja það stíft að koma sínum lista- mönnum á þessa sýningu. Þetta er því talsverður áfangi, bæði fyrir listamanninn og galleríin. Basel- stefnan er listastefnan með stóra ellinu og eins og ólympíuleikar greinarinnar.“ Finnbogi segir að það megi kalla það að ná fullu húsi hjá i8 að koma sínum listamönnum að, og Edda Jónsdóttir galleristi segir það afar sjaldgæft að gallerí nái þeim árangri í fyrsta sinn sem þau taka þátt í stefnunni að koma verkum á sýningarnar og vafasamt að nokkurt gallerí hafi komið sínu fólki að á báðar sýningarnar sam- tímis. Finnbogi segir að allar listastefn- ur hvar sem er í heiminum taki sitt mið af Baselstefnunni, og þangað sæki allir þeir sem hafi eitthvað að segja í myndlist og vilji hafa eitt- hvað að segja. Hann kveðst þó passa sig á því að hafa ekki of mikl- ar væntingar um árangur. „Ég tók þátt í Feneyjatvíæringnum 2001, og hafði engar brjálæðislegar vænt- ingar aðrar en þær að standa mig. Verkin mín eru þess eðlis að vænt- ingarnar snúast mest um að fá verkin til að virka eins og þau eiga að gera. Þá er ég ánægður og glað- ur. Þó getur þetta auðvitað haft gríðarlega þýðingu fyrir mig, eins og tvíæringurinn gerði. Ég fékk ekkert rosalega mörg tilboð vikur og mánuði á eftir. Helsta breytingin var hins vegar virðingin sem ég hef fengið sem myndlistarmaður, sem fylgir því að hafa tekið þátt í honum sem fulltrúi minnar þjóðar. Það er gott veganesti fyrir myndlistar- mann að hafa, og hefur klárlega hjálpað Eddu við að koma mér inn á sýninguna í Basel. Það er þó margt fleira sem spilar inn í og kannski erfitt að segja nákvæmlega til um það hvaða þýðingu þátttaka í svona viðburðum hefur.“ Verk Finnboga Péturssonar er hljóðskúlptúr í hálfkúlu, byggt upp á tíu sínustónum, sem eru reiknaðir út frá eigin ómun kúlunnar. Eigin tíðni kúlunnar eru 55 sveiflur á sek- úndu, en Finnbogi notar tóna sem eru í kringum þessi fimm rið, frá 50 til 60. „Ég vinn með þessa 10 sínustóna, bý þá til með generator og spila þá úr fjórum lágtíðnihátöl- urum, sem er komið fyrir við vegg kúlunnar. Í miðju rýminu er súla 1,80 m á hæð, og ofan á henni stór glær skál með vatni. Undir skálinni er halogenljós, og þegar ég kveiki á því, fæ ég lýsinguna í gegnum skál- ina, í gegnum vatnið og upp í loftið. Þegar ég spila svo tónana tíu, læt ég þá hittast tilviljanakennt, stundum tveir, stundum þrír og stundum fjórir. Þegar þeir hittast í miðju rýminu, hittast þeir í skálinni, gára yfirborðið á vatninu sem er í skál- inni, og brjóta þar af leiðandi upp ljósgeislana sem koma undan henni og er varpað í loftið. Umbreyttar hljóðbylgjur á yfirborði vatnsins búa til það munstur sem myndast í kúlunni. Munstrið er svo sífellt að breytast eftir því hvernig tónarnir hegða sér yfir yfirborðinu á skál- inni.“ Hefur verið fylgst með okkur Dorothée Kirch starfsmaður i8 hefur unnið að skipulagi þátttöku gallerísins í Baselstefnunni. Hún segir að langur undirbúningur og mikil vinna liggi að baki þátttöku gallerísins í stefnunni nú, og tveim sýningum hennar. „Til að komast inn á svona stefnu, þarf gallerí þegar að hafa skapað sér stórt nafn, og því má segja að undirbúningurinn hafi tekið þau níu ár sem Edda hefur starfrækt gall- eríið. Við sendum inn umsóknir sem við undirbjuggum mjög ve íið sækir um að sýna ákve og því þarf að senda með myndir og texta um verkin sóknin þarf að vera það v hún komi yfir höfuð til grei Edda segir að fulltrúar m og reyndari gallería en he verið alveg gáttaðir á því h hafi tekist að komast svon fyrstu atrennu. „Það hef fylgst með okkur gegnum atriði númer eitt er auðvita góða listamenn á sínum Þarna verða byssurnar sam Dorothée Kirch skipulegg Edda Jónsdóttir, gallerist Gallerí i8 sýnir verk íslenskra myndlistarmanna á Í fyrsta sinn sem Gallerí i8 tekur þátt í elstu og virtustu myndlistarstefnu heims, þeirri í Basel í Sviss, nær það þeim árangri að sýna verk íslenskra myndlistarmanna á báðum sýningum stefnunnar. Bergþóra Jónsdóttir ræddi við einn þessara myndlistarmanna, Finnboga Pétursson, Eddu Jónsdóttur, eiganda i8, og starfs- mann gallerísins, Dorothée Kirch. ’Það þykir heiðuþarna, og erfitt a sækja það stíft a þessa sýningu. Þ bæði fyrir listam stefnan er listas eins og ólympíul GENFARSAMNINGARNIR Genfarsamningarnir eru lokskomnir út á íslensku. Genfar-samningar fjalla um mannúð- lega meðferð fanga og vernd fórnar- lamba stríðs. Bókin var afhent formlega með viðhöfn við Espihól í Eyjafjarðarsveit í fyrradag. Eins og fram kemur í grein í Morgunblaðinu í gær var athöfnin í tilefni af útkomu bókarinnar haldin á Espihóli til að minna á það þegar Halldóra kona Víga- Glúms gengur út á vígvöll þar með grið- konum sínum og gerir að sárum bæði vina og óvina án þess að fara í mann- greinarálit eins og lýst er í Víga-Glúms sögu. Þykir þessi frásögn minna á orr- ustuna við Solferino árið 1859, sem varð kveikjan að því að Henry Dunant, stofnandi Rauða krossins, efndi til al- þjóðlegra samningaviðræðna, sem árið 1864 gátu af sér fyrsta Genfarsamning- inn um að lina þjáningar særðra í stríði. Alls eru samningarnir fjórir og var sá fjórði samþykktur 1949. Árið 1977 voru samþykktar við þá tvær viðbótarbók- anir. Genfarsamningarnir hafa verið nokkuð til umræðu undanfarnar vikur vegna uppljóstrana um pyntingar Bandaríkjamanna á íröskum föngum í Abu Ghraib-fangelsinu í Írak. Þar hef- ur Genfarsamningurinn verið þver- brotinn. Það er reyndar ekki eina til- fellið í herferð Bandaríkjamanna gegn hryðjuverkum, sem andi samningsins er látinn í léttu rúmi liggja. Banda- ríkjamenn hafa látið handtaka grunaða hryðjuverkamenn víða um heim og látið flytja þá til yfirheyrslu í löndum á borð við Egyptaland og Indónesíu vegna þess að þar gildir einu um kröfur um að mannréttindi séu virt. Árið 2001 voru settar upp fangabúðir í Guantanamo á Kúbu þar sem föngum frá Afganistan var komið fyrir án þess að þeir gætu með nokkru móti leitað réttar síns á þeirri forsendu að ekki væri um að ræða stríðsfanga heldur ólöglega víga- menn. Og hvað gerist í skjóli lagalegra hártogana af þessu tagi? Frásagnir af meðferð fanga þar þóttu kannski ekki trúverðugar áður en myndirnar af pyntingum og niðurlægingu fanganna í Abu Ghraib voru birtar, en nú er erfitt að bera á þær brigður. Genfarsamningarnir hafa iðulega verið brotnir á undanförnum árum og áratugum og Bandaríkjamenn eru því ekki einir á báti í þeim efnum, en þeir eru ekki í eftirsóknarverðum fé- lagsskap. Og síendurtekin brot draga síður en svo úr mikilvægi þeirra, þvert á móti. Þeir setja alþjóðasamfélaginu leikreglur, eru mælistika á framferði þjóða í átökum. Í fréttum hefur komið fram að einhver þeirra, sem stóðu að baki hryllingnum í Abu Ghraib, hefðu ekki heyrt af Genfarsamningunum fyrr en þau voru færð til yfirheyrslu. Ef til vill hefði þekking á samningunum litlu máli skipt í því andrúmslofti, sem ríkti í fangelsinu, en það er grátlegt að kynn- ing á þeim sé ekki hluti af þjálfun þeirra, sem eiga að gæta stríðsfanga þar sem reglur samninganna eiga að vera í gildi. Rauði krossinn og utanrík- isráðuneytið eiga heiður skilinn fyrir að hafa látið þýða og gefið út Genfarsamn- ingana á íslensku. Uppljóstranirnar í Írak undirstrika það. ERFITT AÐ RÉTTLÆTA LÍKHÚSGJALD Í Morgunblaðinu í gær var greint fráþví að Kirkjugarðar Reykjavíkur- prófastsdæma hafi hafið álagningu gjalds fyrir þjónustu líkhúss. Fram kemur að innheimt er tíu þúsund króna gjald fyrir hvern látinn einstak- ling sem þar er geymdur, en hlutagjald að upphæð fjögur þúsund krónur verð- ur innheimt þegar lík er innan við sól- arhring í líkhúsi og síðan flutt annað. Gjöld þessi verða innheimt hjá að- standendum og auka þannig útfarar- kostnað sem er ærinn fyrir. Haft er eftir formanni Prestafélags Íslands, sr. Ólafi Jóhannssyni, í Morg- unblaðinu í dag að það sé „neikvætt að verið sé að bæta við aukagjaldi eins og líkhúsgjaldi við útfararkostnaðinn. Sá kostnaður sé orðinn töluverður og fyr- ir marga muni heilmikið um tíu þúsund krónur til viðbótar“. Í fréttinni kemur fram að lágmarkskostnaður við útför sé í kringum hundrað og sextíu þúsund krónur, en Ólafur segir dæmi um að út- fararkostnaður nemi allt að fimm hundruð þúsundum króna. Hann segir ennfremur að „prestar [finni] fyrir áhyggjum fólks af auknum útfarar- kostnaði. Í vissum tilvikum er mögu- leiki á styrkjum frá stéttarfélagi eða jafnvel lífeyrissjóði, en það dugar stundum ekki til. Í gamla daga vildi fólk eiga fyrir sinni útför og það er ríkt í fólki að vilja hafa þessa hluti á hreinu“. Fjárframlög ríkisins til kirkjugarða eru fólgin í lögbundnu framlagi, kirkjugarðsgjaldi. Það er greitt vegna allra einstaklinga sextán ára og eldri og nam fyrir hvern einstakling á síð- asta ári tæpum þremur þúsundum króna. Samkvæmt upplýsingum sem teknar voru saman á síðasta ári vegna tillögu til þingsályktunar um nýjan grundvöll að ákvörðun kirkjugarðs- gjalds og skiptingu þess, kemur fram að ef „miðað er við meðalævilíkur sex- tán ára einstaklinga hér á landi lætur nærri að ríkið greiði hundrað og níutíu þúsund krónur til kirkjugarða á ævi hvers einstaklings“. Ólafur Jóhanns- son bendir á að „það sé eðlilegra að hækka það gjald frekar en að grípa til sérstakra innheimtu af aðstandendum. Til að standa straum af kostnaði við rekstur líkhúsa þurfi afar litla hækkun á kirkjugarðsgjaldinu“, eins og segir í fréttinni. Það gefur augaleið að nú til dags þarf töluverða fjármuni til að standa straum af útför. Ekki síst ef efnt er til erfidrykkju eins og siður hefur verið hér á landi, því eins og m.a. hefur verið bent á í umfjöllun Neytendablaðsins um útfararkostnað, þá þarf erfi- drykkja „ekki að verða fjölmenn til að kostnaður við hana slagi hátt upp í út- fararkostnaðinn“. Það er því erfitt að réttlæta aukakostnað á borð við sér- stakt líkhúsgjald, sem auðvitað kemur harðast niður á þeim er minnsta fjár- muni hafa. Kirkjugarðsgjald á að duga fyrir þessum kostnaði. Eins og Ólafur segir er „[nægt álagið] sem fylgir því að missa ástvin og ekki á það bætandi að hafa áhyggjur af því fjárhagslega. Það er óþægileg viðbót á viðkvæmum stundum lífsins“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.