Morgunblaðið - 12.05.2004, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 12.05.2004, Blaðsíða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 35 ✝ Sigurgeir Ein-arsson rafeinda- virki fæddist á Ak- ureyri 23. desember 1962. Hann lést af slysförum 2. maí síð- astliðinn. Foreldrar hans eru hjónin Ein- ar Valmundsson, f. 1928, og Hallfríður Kristjana Sigur- geirsdóttir, f. 1924. Systkini Sigur- geirs eru Valmund- ur, f. 1950, maki Elsa Pálmey Pálma- dóttir, f. 1958, og eiga þau fjögur börn; Sólveig, f. 1954, maki Pétur Jóhannsson og eiga þau þrjú börn; Steinunn, f. 1957, á hún eina dóttur; Filippus Þór, f. 1959, maki Svanhildur Indiana Svansdóttir, f. 1961, og eiga þau þrjú börn. Sigurgeir var í sambúð með Helgu Ingvarsdóttur, f. 1967. Þeirra sonur er Elv- ar, f. 1988. Þau slitu samvistum. Foreldr- ar Helgu eru Ingvar Baldursson, f. 1943, og Ragnhildur Bragadóttir, f. 1944. Eftirlifandi sam- býliskona Sigur- geirs er Kristjana Ólöf Ívarsdóttir, f. 1965. Dætur þeirra eru Elín Kata, f. 1999, og Jenný Vala, f. 2003. For- eldrar Kristjönu eru Valgerður Aðalsteinsdóttir, f. 1923, og Ívar Ólafsson, f. 1921, d. 1999. Bróðir Kristjönu er Stef- án Ævar Ívarsson, f. 1948. Sam- býliskona er Elín G. Jóhannes- dóttir, f. 1951. Útför Sigurgeirs fer fram frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Það er með sárum trega og sökn- uði sem við kveðjum Geira vin okkar og sleðafélaga. Við félagarnir kynnt- umst Geira í gegnum sleðamennsk- una og Finna Víði sem er meðeigandi hans í fyrirtækinu Brúnni. Þessi hópur inniheldur sleðamenn með nokkuð mismunandi áhugastig í sleðamennskunni. Sumir kjósa að vera í brekkuspóli, aðrir í dagsferð- um en fæstir höfðu áhuga á að skoða hálendið þar til við kynntumst Geira. Það er óhætt að segja að Geiri hafi í raun víkkað sjóndeildarhring okkar og betrumbætt okkar sleðamennsku með áhuga sínum á hálendinu og ferðamennsku. Geiri var mjög gætinn í öllu þegar kom að sleðaferðum, vel útbúinn og með öll hugsanleg öryggistæki sem notuð eru. Hann lét það ekki duga, heldur hvatti hann okkur félagana til að vera með réttu öryggistækin og skammaði okkur ef honum fannst við kærulausir. Við félagarnir stöndum nú harmi slegnir yfir ótímabæru fráfalli góðs félaga og vinar. Þetta hörmulega slys sýnir okkur að enginn fær ráðið við náttúruöflin þegar þau sýna sig í sinni verstu mynd, þrátt fyrir mikla reynslu og að alls öryggis sé gætt. Geiri var mikill fjölskyldumaður og átti fallegt heimili með Kristjönu og börnum sínum. Hans er sárt saknað. Sú stjarnan sem glóði í gær og gladdi huga minn, leiftrar enn ljómandi skær þótt líkamans fölni kinn. Þú leitaðir lítt að hróðri um lífsins skeið, en hlúðir að hjartans gróðri á hamingju leið. Nú ertu horfinn meðal heilladísa í háloftin blá. Heilagir englar um hauður þér lýsa og hörpurnar slá. En sorg og gleði sína þræði spinna í örlagaveg. Líkn með þraut er löngum vor græðir; hið ljóðræna lífsins stef. (Gunnþór Guðmundsson.) Hugur okkar er hjá þér, kæra Kristjana, börnunum og öðrum að- standendum. Við og eiginkonur okk- ar sendum ykkur innilegar samúðar- kveðjur. Haraldur, Heiðar, Klemenz, Sigurður og Þórður. Orð Kristjönu um að Sigurgeir væri dáinn ristu djúpt og sögðu svo skýrt hve hans er sárt saknað. Við minnumst þeirra stunda sem fjölskyldur okkar hafa átt saman, stunda þar sem við höfum fengið að njóta ykkar einskæru gestrisni, með þeim fjölda gistinátta sem við höfum ekki lengur tölu á. Einnig hvernig við höfum fengið að njóta heimsókna ykkar hér í Mosfellsbæinn og þess heiðurs að hafa ykkur sem gesti er við bjuggum í Noregi. Með svo nán- um samverustundum gátum við fengið að njóta mannkosta Sigur- geirs, hans trausts, áreiðanleika og hins mikla fjölskyldumanns. Það þarf ekki að líta nema eitt ár aftur í tímann til að rifja upp jeppa- ferðir fjölskyldna okkar norður í Fjörður og Flateyjardal, svo ekki sé talað um einstaka vélsleðaferð á sömu slóðir sem Sigurgeir var búinn að undirbúa af kostgæfni og lýsti hans vinarhug. Í þessum ferðum kom svo vel í ljós hversu reyndur ferðamaður Sigurgeir var, hvernig öryggi og góður búnaður var hafður að leiðarljósi. Hvað hann var fylginn sér og ákveðinn sýndi að þar bjó að baki ákveðin skapgerð. Hann gat sett í brýrnar, en það var einatt stutt í brosið og hlýleikann. Sigurgeir var ávallt reiðubúinn til aðstoðar og til að miðla af þekkingu sinni og reynslu. Slíkan vin og samferða- mann viljum við þakka fyrir að hafa átt og minnumst nú í huga okkar. Okkar kæra Kristjana, Elvar, Elín Kata og Jenný Vala. Ferðalag okkar heldur áfram og er það einlæg ósk okkar að fá að njóta þess áfram með ykkur. Björgvin Filippusson, Kolbrún Jenný Gunnarsdóttir og börn. Með söknuð í hjarta kveðjum við kæran vin okkar og nágranna, Sig- urgeir Einarsson, eða Geira eins og við kölluðum hann. Í tæp sex ár höf- um við búið hlið við hlið og samgang- ur verið mikill. Það er því sárara en orð fá lýst, að horfa á eftir góðum dreng í blóma lífsins, hrifinn á brott svo sviplega. Við kveðjum Geira með hlýhug og virðingu, og geymum margar góðar minningar um hann. Þegar næðir í mínu hjarta og í huga mér engin ró og ég þrái að sjá hið bjarta sem að áður í mér bjó þá er lausnin alltaf nálæg, ef um hana í auðmýkt bið og með bæninni kemur ljósið og í ljósinu finn ég frið. Ó, svo dapur er dagur vaknar, dægurþrasið svo fjarri er. Mundu þegar þú sárast saknar og sólin skín hvergi nærri þér að í bæn er falinn máttur er þig magnar þúsundfalt því með bæninni kemur ljósið og í ljósinu lagast allt. (Páll Óskar.) Elsku Kristjana, Elvar, Elín Kata, Jenný Vala og aðrir ástvinir, megi al- góður Guð styðja ykkur í sorginni. Kristjana, Rögnvaldur, Lena Sif, Thelma Rut og Tinna Karen. Í gegnum tíðina, þegar fréttir af norðlenskum snjósleðamönnum hafa borist, hefur hjartað tekið aukakipp því mér verður gjarnan hugsað til fyrrverandi starfsmanns míns, Sig- urgeirs, sem vann hjá Radiomiðun um fimm ára skeið. Sigurgeir fluttist norður fyrir tæpum tíu árum og rak þar farsælt sölu- og þjónustufyrir- tæki fyrir sjávarútveginn. Sjálfur þekki ég tilfinninguna að ferðast um snæviþakið landið á vél- sleða og upplifa okkar ægifagra land á þann hátt. Þetta er einstök tilfinn- ing og auðvelt að skilja þá sem sækja inn í óbyggðir landsins til að upplifa náttúruna á þennan einstæða hátt. Hins vegar er vart hægt að hugsa sér hættulegri ferðamáta. Hætturn- ar eru alls staðar og skiptir þá ekki alltaf máli hversu hratt er farið yfir, því hengjur, hláka, klakabrynjur og ófyrirséðar og óvæntar veðrabreyt- ingar sjá til þess að aldrei verður hægt að kalla þennan ferðamáta öruggan. Yfirvegun var eitt af aðalsmerkj- um Sigurgeirs og hef ég enga trú á að þar hafi skipt máli hvort hann var að stýra sínum vélfák eða greina og gera við flókin rafeindatæki. Þessi drengur hafði svo margt til brunns að bera og var einn þeirra starfs- manna sem ég saknaði sárt frá þeim degi sem hann hætti hjá okkur. Ég hafði alltaf á tilfinningunni að leiðir okkar ættu eftir að liggja saman á ný, en ég vissi ekki að það yrði ekki fyrr en ég kveð þennan heim. Sigurgeir var mikill fagmaður, hafði fágaða framkomu, var fljótur að greina þarfir viðskiptavinarins, bjó yfir miklum sannfæringarkrafti, var afar traustur og hreinskiptinn. Fátt betra er hægt að segja um einn einstakling og því er missir mikill að þessum kæra dreng. Ég færi ástvinum Sigurgeirs mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Kristján Gíslason. En þegar þú lagðist til hvíldar, hvíslaði nóttin að þér: þeim einum, sem gefur, vitnast, hvað vinátta er. (Bragi Sigurjónsson.) Þegar ég var að alast upp á Ak- ureyri, hélt móðir mín, Helga Jóns- dóttir, að okkur börnum sínum þeirri skoðun að hún hefði átt indæla æsku, ekki aðeins vegna þess að foreldrar hennar hefðu verið henni fyrirmynd heldur allir í Glerárgötunni; þar hefði verið gott mannlíf og valið fólk í hverju húsi. Faðir minn, Bragi Sigurjónsson, sem flust hafði í Götuna fullorðinn, deildi þessari skoðun með henni. Valmundarfólkið bjó í Glerárgöt- unni samtíða foreldrum mínum. Sigurgeir Einarsson Valmunds- sonar þurfti þess vegna engin með- mæli þegar hann birtist í Bjarkastíg 7 með Helgu, nöfnu móður minnar, Ingvarsdóttur og þau rugluðu saman reytunum. Foreldrar mínir voru öruggir um mannkosti hans. Þau þóttust heldur ekki svikin. Enda reyndist Sigurgeir foreldrum mínum sannur vinur í elli þeirra. Ánægja þeirra með að hafa endurnýjað tengslin við Götuna, þar sem þau höfðu búið fyrstu hjúskaparár sín, var endurgoldin. Sigurgeir var þægi- legur í framkomu, feimulaus en kurt- eis, ræðinn og umhyggjusamur með afbrigðum. Ræktarsemi hans við foreldra mína var ekki síðri en barnabarna þeirra og átti hann þeim þó ekkert upp að inna nema vináttu þeirra. Allt viðmót hans bar uppeldi hans og upplagi fagurt vitni. Föðurleg rækt Sigurgeirs við Elv- ar, son sinn, var einnig einstök, jafnt þegar þeir voru daglega samvistum og eftir að þeir áttu ekki þeirrar gæfu lengur að njóta. Elvar, hálf- systur hans og Kristjana Ívarsdóttir, sambýliskona Sigurgeirs hafa mikils misst. Verði þeim, foreldrum hans og systkinum huggun í minningunum um góðan dreng. Ég votta þeim sam- úð um leið og ég þakka áralanga tryggð og vináttu Sigurgeirs við for- eldra mína þegar þau þurftu á hvorutveggja að halda. Nærgætni hans og virðing við þau verður aldrei fullþökkuð. Úlfar Bragason. Sá sem eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir (Hannes Pét.) Við höfum þessi orð skáldsins að leiðarljósi og huggun. Við skulum vera himnarnir yfir honum og leitast við að gleyma ekki, heldur muna eft- ir öllu því sem hvert og eitt okkar geymir í hugskoti sínu um Sigurgeir. Þótt skyldunnar blóð ekki bindi’oss við þig, það band tengdi lífið um samleiðarstig. Með glóbjartan lokkinn þú fyllir ei flokkinn, í fámennum hóp sýnir missirinn sig. (Einar Ben.) Við biðjum þess að góður guð styrki Kristjönu, börnin og aðra að- standendur í missi þeirra og sorg. Félagar í Rótarýklúbbi Eyjafjarðar. SIGURGEIR EINARSSON Elsku Anna frænka. Til hamingju með af- mælið. Já, þú hefðir orðið áttræð í dag. Þó að það séu liðin fjögur ár frá því að þú fórst héðan er ég ekki ennþá búin að sætta mig við það. Þetta kom svo óvænt og í sjálfselsku minni fannst mér það mjög óréttlátt að þú skyldir deyja frá okkur en auðvitað var gott að þú þurftir ekki að liggja lengi og þjást eftir að þú veiktist. Þú varst glæsileg kona, alltaf vel til höfð og alltaf varstu glöð og kát. Þér fannst gaman að ferðast og margar ferðirnar voruð þið búin að fara með foreldrum mínum bæði innanlands og utan. Foreldrar mín- ir vitna enn í Norðurlandaferðina, önnur eins ferð hefur aldrei verið ANNA BALDVINA GOTTLIEBSDÓTTIR ✝ Anna BaldvinaGottliebsdóttir fæddist á Horn- brekku í Ólafsfirði 12. maí 1924. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 31. júlí síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Ólafsfjarðarkirkju 5. ágúst. farin. Þið Mundi voruð svo sæt saman en oft heyrðum við: „Ja, Mundi,“ þegar þú varst ekki sammála honum um eitthvað. Aldrei varstu aðgerð- arlaus, alltaf var garð- urinn vel hirtur, sum- arbústaðarlandið óaðfinnanlegt og ófáar flíkurnar varstu búin að sauma á ætt- ingjana. Ég fór ekki varhluta af því, ég held að þú hafir saum- að öll mín spariföt, jólakjóla, fermingar- og útskriftar- dragtir og oft kom ég með föt sem ég var að sauma og fékk ráðlegg- ingar. Takk fyrir það. Oft kom ég til þín og Munda, sérstaklega eftir að afi og amma fóru að vera hjá ykkur á veturna, og alltaf var eitt- hvað gott til með kaffinu. Þú varst besta vinkona mömmu og missti hún mjög mikið þegar þú fórst og ég veit að hún saknar þín mikið. Ég vil að lokum þakka þér fyrir allt og vona að þú lítir eftir okkur hérna niðri. Þín bróðurdóttir, Sigrún Konráðsdóttir. Ástkær frændi er hrifinn á brott, horfinn. Eftir situr sár í hjarta og svíður undan. Biðjum algóðan Guð að líkna þraut og lækna sárin í hjarta eftir- lifenda. Við vitum hann vakir yfir ykkur og gætir ykkar. Elsku Sigurgeir, hafðu þökk fyrir samveruna; þína góðu nær- veru, hlýju og kímni. Hvíl í friði og Guð fylgi þér. Innilegar samúðarkveðjur. Elín Björg Þorsteinsdóttir, Auður, Nína, Þóra og fjölskyldur. HINSTA KVEÐJA Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, dóttir, systir, tengdadóttir og amma, ÁSDÍS E. GARÐARSDÓTTIR, Sæbóli 41, Grundarfirði, lést á Landspítalanum, deild 11E, mánudaginn 10. maí. Útförin fer fram frá Grundarfjarðarkirkju laugar- daginn 15. maí kl. 14.00. Svanur Tryggvason, Garðar Svansson, Marzena Kilanowska, Arna Svansdóttir, Júlíus Jóhannsson, Tryggvi Svansson, Auður G. Sigurðardóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Sigurborg Garðarsdóttir, Hafsteinn Þ. Garðarsson, Arnfríður Benediktsdóttir og barnabörn Móðurbróðir minn, PÁLL SIGURJÓNSSON frá Nautabúi í Hjaltadal, lést á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki mánudaginn 10. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Gylfi Ísaksson. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti eða á disklingi (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist). Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð- synlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nán- ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát- inn einstakling birtist formáli og ein aðal- grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 lín- ur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.