Morgunblaðið - 12.05.2004, Page 49

Morgunblaðið - 12.05.2004, Page 49
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 49 ÁRMANN Smári Björnsson, sókn- armaður FH-inga, sem fékk þungt högg á síðuna eftir árekstur við Kristján Finnbogason, markvörð KR-inga, í úrslitaleik deildabikars- ins verður líklega ekki klár í slag- inn með Hafnarfjarðarliðinu þegar það sækir Íslandsmeistara KR heim í opnunarleik Íslandsmótsins á laugardaginn. Ármann er ekki rif- beinsbrotinn eins og óttast var í fyrstu en hann er mjög aumur og hæpið að hann verði búinn að ná sér fyrir leikinn. Þá er ljóst að FH- ingar verða án Allans Borgvardts, sem er hugsanlega kviðslitinn, og Emils Hallfreðssonar, sem tognaði á öxl á dögunum. Ármann Smári er ekki brotinn  PAUL McShane, skoski miðju- maðurinn hjá Grindavík, er meiddur á fæti og óvíst að hann verði með í fyrsta leik liðsins á Íslandsmótinu í knattspyrnu en Grindvíkingar taka á móti ÍBV á sunnudaginn. McShane varð fyrir meiðslunum í æfingaferð liðsins til Serbíu í síðasta mánuði en þá flísaðist upp úr beini.  BRANISLAV Zrnic, 24 ára gamall knattspyrnumaður frá Serbíu/ Svartfjallalandi, er genginn til liðs við 2. deildarlið KS frá Siglufirði. Það er Marko Tanasic, fyrrum leik- maður Keflvíkinga, sem þjálfar lið KS þriðja árið í röð.  MARK Duffield frá Siglufirði, leikjahæsti leikmaðurinn í íslensku deildakeppninni í knattspyrnu frá upphafi, er enn ekki búinn að leggja skóna á hilluna þótt hann sé á 42. aldursári. Mark er að hefja sitt 25. keppnistímabil í meistaraflokki og hyggst spila með nýju 3. deildarliði sem leikur undir nafni GKS, Golf- klúbbs Siglufjarðar í sumar.  HJÁLMAR Jónsson lék ekki með Gautaborg vegna meiðsla þegar lið hans vann Helsingborg, 2:1, á úti- velli í sænsku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu í fyrrakvöld. Hjálmar togn- aði í læri í síðustu viku en meiðslin eru ekki talin alvarleg.  STUÐNINGSMENN Hammarby töldu Pétur Hafliða Marteinsson næstbesta leikmann liðsins þegar það tapaði 0:1 fyrir Trelleborg í sænsku úrvalsdeildinni í fyrrakvöld. Í kjöri á vef félagsins fékk Pétur 4,96 í meðaleinkunn. Þess má geta að hann hefur fengið allt að 8,4 í ein- kunn frá stuðningsmönnunum fyrir frammistöðu sína það sem af er tíma- bilinu.  SVAVAR Vignisson, línumaður úr FH, var valinn besti leikmaðurinn á Norðurlandamóti lögreglulandsliða í handknattleik sem fram fór í Dan- mörku um síðustu helgi. Ísland hafn- aði í öðru sæti mótsins, tapaði fyrir Danmörku í úrslitaleiknum með 5 marka mun en hefði nægt fjögurra marka tap til sigurs í mótinu.  ALEX Ferguson, knattspyrnu- stjóri Manchester United, hefur áhuga á að koma á sterku móti í Manchestar í sumar. Vonast hann til að á mótið, sem kallast „Mót meist- aranna“ , komi nokkur af stærstu og þekktustu liðum Evrópu.  FERGUSON hefur þessa dagana áhyggjur að því að enska landsliðinu gangi of vel á EM í Portúgal í sumar. Úrslitaleikurinn verður 4. júlí og segir Ferguson að ef liðið komist langt í keppninni komi það niður á undirbúningi United. „Reynslan segir að þegar leikmenn taka þátt í svona móti þá þurfi þeir alveg heilan mánuð til að jafna sig og ef maður gefur þeim ekki frí í mánuð kemur það niður á liðinu síðar á leiktíðinni.“ FÓLK ÓLAFUR Björn Lárusson var í gær ráðinn þjálfari meistara- og 2. flokks Aftureldingar í hand- knattleik og gerði félagið við hann þriggja ára samning. Ólaf- ur er ekki með öllu ókunnur í Mosfellsbænum því hann þjálfaði 2. og 3. flokk félagsins leiktíðina 2002 til 2003 og nutu þá lang- flestir þeirra leikmanna sem nú eru í meistara- og 2. flokki Aft- ureldingar leiðsagnar hans. Áður hafði stjórn handknatt- leiksdeildar Aftureldingar ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við Karl Erlings- son, þjálfara. Sökum þess sendi handknattleiksdeild Aftureld- ingar frá sér eftirfarandi til- kynningu í gærkvöldi; „Hand- knattleiksdeild Aftureldingar og Karl Erlingsson þjálfari hafa slitið samstarfi sínu. Handknatt- leiksdeild Aftureldingar kaus að endurnýja ekki samning sinn við Karl og hefur hann því lokið störfum fyrir félagið að sinni. Karl hefur viðhaft hörð orð í fjölmiðlum vegna þessa máls og er það miður. Slík orð eru ein- göngu til þess fallin að undir- strika ákvörðun stjórnarinnar. Stjórn handknattleiksdeildar Aftureldingar ætlar ekki að munnhöggvast við Karl um þetta mál í fjölmiðlum. Hafa ber í huga að tvær hliðar eru að minnsta kosti á öllum málum. Karli eru þökkuð störf sín fyrir félagið í vetur og á árum áður og óskað velfarnaðar í framtíðinni.“ ÁHUGAMENNSKUNEFND Golf- sambands Íslands sendi í gær frá sér reglugerð um leyfilegt há- marksverðmæti verðlauna í golf- keppnum árið 2004 en þar er vak- in athygli á því að hámarks- verðmæti verðlauna hafi aukist verulega og sé nú 75.000 kr. Er þá miðað við smásöluverðmæti vinn- ings. Áhugamaður má ekki veita viðtöku verðlaunum sem greidd eru út í peningum eða ávísun á peninga. Áður var hámarkið 45.000 kr. Vinni keppandi til fleiri en einna verðlauna á sama móti (eða mótasamfellu) má samanlagt verð- mæti þeirra ekki vera umfram kr. 75.000. Þetta gildir einnig um verðlaun sem eru veitt samkvæmt útdrætti úr skorkortum. Verðlaun fyrir að fara holu í höggi mega einnig vera að verð- mæti kr. 75.000. Um þau gildir hins vegar sú sérregla að þau mega koma að fullu til viðbótar sérhverjum öðrum verðlaunum í sama móti Ferðavinningar mega vera að verðmæti kr. 100.000. Hámarks- verðmæti verðlauna Þórður Emil tók á dögunumþátt í innanfélagsmóti hjá Golf de Belenhaf, klúbbnum sem hann er í, og gerði sér lítið fyrir og setti vallarmet þegar hann lék á 68 höggum, fjórum höggum undir pari vallarsins. „Þetta var gaman og það gekk mjög vel hjá mér á þessum hring,“ sagði Þórður Emil í samtali við Morgunblaðið í gær. „Annars spila ég ekki mikið hérna, það er svo mikið að gera, bæði í vinnunni og eins heima fyrir,“ sagði kappinn sem eignaðist sitt þriðja barn í síð- ustu viku, strák, en fyrir áttu þau hjón tvær stelpur. „Nú er maður kominn með samherja í golfið,“ segir hann og hlær en eldri dóttir hans er þegar byrjuð að reyna sig í íþróttinni enda orðin sjö ára. Þórður Emil segist spila mjög lítið miðað við það sem hann gerði þegar hann var upp á sitt besta. „Ætli ég sé ekki búinn að fara tíu hringi eða svo í ár, en hér er bara lokað í janúar, annars eru sum- arflatirnar opnar. Mér hefur geng- ið ágætlega enda er þetta bara tóm ánægja þegar menn spila svona sjaldan. Það er svo rosalega skemmtilegt í hvert sinn sem mað- ur kemst í golf,“ segir Þórður Em- il. Hann tók þátt í Íslandsmótinu hér á landi fyrir tveimur árum en spilaði ekkert hér á landi í fyrra. „Það er búið að ákveða að ég kem heim og keppi með Leyni í sveitakeppni GSÍ. Strákarnir féllu í fyrra og þetta er auðvitað klúbb- ur sem á hvergi heima nema í efstu deild og þangað ætlum við. Vonandi tekst mér að styrkja sveitina eitthvað, en það eru svo margir hættir, farnir í aðra klúbba, eins og GR, þar sem þeir halda að þeir geti skorað betur,“ segir Þórður Emil og vísar óbeint í sigur sinn á Íslandsmótinu í Graf- arholti 1997. Hann segist kunna mjög vel við sig í Lúxemborg þar sem hann starfar hjá Kaupþingi. „Það er fínt að vera hér, stutt í allt og til- tölulega fljótlegt að skjótast heim þó svo það hafi nú verið betra áður en hætt var að fljúga beint hingað. Það gerðist hálfum mánuði áður en ég flutti út.“ Þórður Emil var með +2 í for- gjöf þegar best lét fyrir nokkrum árum, fór upp í 0,5 um tíma í fyrra en hefur lækkað sig í ár og er nú með +0,2 og stefnir ótrauður að því að lækka sig enn frekar því nú er ætlunin að æfa aðeins þannig að hann komi sterkur til leiks í sveitakeppninni með Leyni. Morgunblaðið/BJG Félagarnir Þórður Emil Ólafsson, til hægri, og Birgir Leifur Hafþórsson fagna 1997. Þórður Emil setti vallarmet í Lúxemborg ÞÓRÐUR Emil Ólafsson, kylfingur frá Akranesi, hefur lítið verið í fréttum síðustu árin enda flutti hann til Lúxemborgar í janúar 1999, einu og hálfu ári eftir að hann fagnaði Íslandsmeistaratitli í golfi. Síðan þá hefur hann lítið leikið golf, fer þó stöku sinnum sér til ánægju og yndisauka. Ólafur tekur við Aftureldingu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.