Morgunblaðið - 12.05.2004, Qupperneq 51
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 51
Þjálfarastyrkir ÍSÍ
Verkefnasjóður Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands auglýsir hér með til umsóknar
styrki fyrir íþróttaþjálfara til að sækja sér menntun eða kynna sér þjálfun erlendis.
Veittir verða 10 styrkir, hver að upphæð kr. 50.000,-
Við úthlutun verður leitast við að styrkja sem flestar íþróttagreinar. Þjálfarar hvers kyns
hópa (afreksmanna, barna og unglinga o.s.frv.) koma jafnt til greina við úthlutun. Konur
eru sérstaklega hvattar til að sækja um styrkina.
Umsóknum með lýsingu á náms- og starfsferli, auk greinargóðrar lýsingar á fyrirhugaðri
ráðstöfun styrksins og ávinningi íþróttahreyfingarinnar af henni, skal skilað til skrifstofu
ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, fyrir þriðjudaginn 1. júní nk.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni Laugardal og á
heimasíðu ÍSÍ – www.isisport.is
Vor 2004
SUNDKONURNAR Ragnheiður
Ragnarsdóttir og Kolbrún Ýr Krist-
jánsdóttir bættu Íslandsmetið í 100
m skriðsundi í 50 m laug á Evrópu-
meistaramótinu í Madríd í gær.
Ragnheiður hafnaði í 14. sæti í und-
anúrslitum á 56,77 sekúndum og
bætti þá nokkurra klukkustunda
gamalt met Kolbrúnar Ýrar, 56,86,
sem hún setti í undanrásum í gær-
morgun þegar Kolbrún bætti eigið
met frá 4. apríl um 69/100 úr sek-
úndu. Báðar komust þær í undan-
úrslit í greininni með árangri sín-
um í gærmorgun, Kolbrún varð í
14. sæti í undanrásunum en Ragn-
heiður í 17. sæti á 57,19 og bætti þá
sinn fyrri árangur um 68/100 úr
sekúndu. Þar sem einn keppandi
sem hafði tryggt sér sæti í undan-
úrslitum heltist úr lestinni fékk
Ragnheiður tækifæri í undanúrslit-
unum þar sem 16 bestu sundmenn
undanrásanna fengu að spreyta sig.
Ragnheiður fylgdi árangri sínum
frá því um morguninn eftir, synti
enn betur og bætti Íslandsmet Kol-
brúnar. Kolbrún náði sér hins veg-
ar ekki eins vel á strik og hafnaði í
16. sæti á 57,42 sekúndum, rúmlega
hálfri sekúndu frá metinu sem hún
setti fyrr um morguninn. Til þess
að komast í úrslit átta bestu sund-
mannanna þurfti að synda á 55,70.
Örn Arnarson varð í 29. sæti af
47 keppendum í 100 m skriðsundi á
51,52 sek. Þá hafnaði Íris Edda
Heimisdóttir í 29. og næstneðsta
sæti í 100 m bringusundi á 1.14,92
mínútum.
Ragnheiður og Kolbrún
bættu metin í Madríd
FULLTRÚAR frá Arsenal í
Englandi og Brescia á Ítalíu
hafa boðað komu sína á KR-
völlinn á laugardaginn þegar
KR og FH mætast þar í opn-
unarleik Íslandsmótsins í
knattspyrnu.
„Þessir menn hafa haft sam-
band við okkur og óskað eftir
því að tekið verði á móti þeim í
stúku stjórnarmanna. Við höf-
um fengið fleiri fyrirspurnir,
og það virðast margir erlendir
fulltrúar ætla að fylgjast með
leikjunum í fyrstu umferð
deildarinnar um helgina. Ef-
laust eru það fleiri en við sem
fáum þessar fyrirspurnir,“
sagði Sigurður Helgason,
framkvæmdastjóri KR-Sport,
við Morgunblaðið í gær.
Fulltrúar
Arsenal og
Brescia mæta
INGI Þór Steinþórsson, fyrrver-
andi þjálfari meistaraflokks karla í
KR í körfuknattleik, hefur verið ráð-
inn yfirþjálfari yngri flokka KR. Það
er félaginu mjög mikilvægt að vel sé
haldið utan um starf yngri flokka og
því er þessi ráðning stórt skref í
rétta átt. Ingi Þór mun hafa yfirum-
sjón með stefnumótun og gerð nám-
skrár fyrir starf yngri flokkanna.
Einnig mun hann sjá um séræfingar
fyrir efnilega iðkendur, auk þess að
þjálfa tvo flokka.
Á HEIMASÍÐU bikarmeistaraliðs
ÍA í knattspyrnu er greint frá því að
kanadíski leikmaðurinn Alen Marc-
ina muni leika með liðinu í sumar.
Óvissa hefur verið um leikheimild
leikmannsins, en félagið sem hann
kemur frá, Ottawa Wizards, hefur
náð samkomulagi við Knattspyrnu-
félag Akraness.
MARCINA er 24 ára gamall fram-
herji og ætti að vera í leikmannahópi
liðsins gegn Fylki í fyrstu umferð
Landsbankadeildarinnar hinn 16.
maí en liðin eigast við á Akranesi.
KSÍ, í samvinnu við breska sendi-
ráðið og Knattspyrnuakademíu Ís-
lands, stendur fyrir markmanns-
þjálfunarnámskeiði Simon Smith
dagana 17. og 18. maí í Fífunni og
Smáranum í Kópavogi. Simon
Smith er núverandi markmanns-
þjálfari Newcastle United og vinnur
þar undir stjórn Bobby Robson og
þjálfar því m.a. Shay Given mark-
vörð Newcastle United, hann hefur
einnig starfað fyrir U-16 landslið
Englands og A-landslið kvenna hjá
Englandi. Námskeiðið fer fram á
ensku og það er ókeypis aðgangur.
ÍTALSKI knattspyrnukappinn Gi-
anfranco Zola, 37 ára, segist vera
tilbúinn í slaginn hjá Chelsea á nýjan
leik – ekki sem leikmaður, heldur
sem einn af þjálfurum liðsins.
FÓLK
Ég var þokkalega sáttur viðvarnarleikinn í fyrri hálfleik
en það sama var ekki um sóknina.
Ef menn ætluðu að
halda áfram á sömu
braut þýddi það að-
eins fleiri leiki í
þessari rimmu. Í
síðari hálfleik breyttust hlutirnir
hjá okkur. Vörnin var stórkostleg,
Birkir Ívar Guðmundsson varði
eins og hann gerir best og í stuttu
máli áttu þeir ekki möguleika gegn
okkur í þessum ham.“
Páll bætti því við að Haukar
legðu ekki mikla áherslu á að kort-
leggja leik Vals á þessu stigi. „Við
veltum okkur ekki upp úr því sem
andstæðingarnir eru að gera. Þess í
stað einbeitum við okkur að því sem
við þurfum að gera.“
Þegar þjálfarinn var spurður
hvort hann legði hart að sínum
mönnum að klára verkefnið á
fimmtudag til þess að hann gæti
farið að viðra golfkylfurnar brosti
Páll út í annað munnvikið. „Nei en
það væri ekki verra að geta bókað
rástíma síðdegis á sunnudag,“ sagði
Páll en þá er ráðgert að fjórði leik-
ur liðanna fari fram á Hlíðarenda.
„Það eru margir kylfingar í her-
búðum Hauka en það verður að
bíða þar til við höfum lokið þessu
verkefni,“ sagði Páll.
Ásgeir Örn Hallgrímsson var
mættur út á keppnisvöllinn
skömmu eftir leikinn þar sem hann
skokkaði úr sér þreytuna ásamt fé-
lögum sínum úr liðinu. „Ég veit
ekki hvort Valsmenn taka ekki
mark á mér í upphafi leiks eða
hvort ég er svona ákveðinn. Alla-
vega gengur mér vel í byrjun leiks
gegn Val þessa dagana og síðan
taka aðrir við,“ sagði Ásgeir sem
skoraði alls 10 mörk og 6 af fyrstu 8
mörkum liðsins. „Það verður ekkert
mál að gíra sig niður eftir þennan
leik. Ég kláraði síðasta prófið í
fyrradag og núna getur maður ein-
beitt sér að fullu fram að næsta
leik,“ sagði Ásgeir en hann stundar
nám við Verslunarskóla Íslands.
Ásgeir hafði ekki áhyggjur af því
ef forsvarsmenn Hauka væru þegar
farnir að undirbúa sigurhátíð á
fimmtudagskvöld. „Við erum ekk-
ert að skipta okkur af slíku en ger-
um allt til þess að ljúka verkefninu
á fimmtudag á heimavelli,“ sagði
Ásgeir Örn.
„Fer ekki í frí í sólina í ágúst“
Birkir Ívar Guðmundsson mark-
vörður Hauka varði alls 21 skot í
leiknum og lagði grunninn að sigri
liðsins með frábærum kafla í upp-
hafi síðari hálfleiks. „Ég ligg ekki
yfir myndböndum og kortlegg leik-
menn Vals. Samvinna markvarðar
og varnar hjá okkur var til fyrir-
myndar og þá gengur mér vel,“
sagði Birkir Ívar en var ekki á því
að hann væri að sanna sig fyrir
landsliðsþjálfarannum Guðmundi
Guðmundssyni fyrir valið á lands-
liðshópnum fyrir Ólympíuleikana
um miðjan ágúst. „Guðmundur vel-
ur liðið og ég virði ákvörðun hans,
hver sem hún verður,“ sagði Birkir
og neitaði því að hann væri búinn að
panta sólarlandaferð í lok ágúst.
„Nei það er ekki á dagskrá,“ sagði
Birkir Ívar og brosti.
„Mistök að taka ekki leikhlé“
Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari
Vals var ótrúlega brattur þrátt fyr-
ir stöðu liðsins, 2:0 undir, og næsti
leikur á útivelli. „Við verðum að
slaka aðeins á og reyna að hafa
meira gaman af því sem við erum
að gera. Auðvitað geta menn ekki
gefist upp í þessari stöðu og það
kemur aldrei upp í okkar hóp. Við
höfum sýnt það að við getum gert
það sem okkur langar til þess að
gera ef viljinn er fyrir hendi. Og
núna er stundin runnin upp, það er
aðeins einn leikur og öll pressan er
á Haukum,“ sagði Óskar Bjarni en
hann taldi að Birkir Ívar hefði gert
gæfumuninn að þessu sinni. „Hann
er maður leiksins og var ótrúlega
góður í síðari hálfleik. Við skutum
reyndar oft illa á hann og þeir
fengu hraðaupphlaup í kjölfarið.
Það kom slík gusa framan í okkur í
upphafi síðari hálfleiks, ég ætlaði
að taka leikhlé eftir fimm mínútur,
beið aðeins þar sem að við vorum að
fá færi sem ekki nýttust. Eftir á að
hyggja gerði ég mistök að taka ekki
leikhlé. Það verður ekki mikið mál
að fá strákana til þess að berjast á
fimmtudaginn, þeir vita hvað þeir
þurfa að gera,“ sagði Óskar Bjarni.
Morgunblaðið/ÞÖK
Haukamaðurinn Ásgeir Örn Hallgrímsson var Valsmönnum afar erfiður í gærkvöldi en hann skor-
aði tíu mörk. Hér reyna Baldvin Þorsteinsson og Hjalti Pálmason að stöðva Ásgeir Örn.
„Vörnin var stórkostleg“
„ÉG lagði á það áherslu er við ræddum saman í leikhléi að við gæt-
um ekki leyft okkur að misnota færi einn gegn markverði. Það var í
raun það eina sem við ræddum um og menn skildu það, enda viljum
við ekki koma hingað aftur,“ sagði Páll Ólafsson þjálfari Hauka eftir
29:23 sigur liðsins gegn Val á Hlíðarenda í gær. Íslandsmeistararnir
eru með vænlega stöðu fyrir þriðja leik liðanna sem fram fer á
fimmtudag á Ásvöllum en þar geta Haukar tryggt sér titilinn.
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson