Morgunblaðið - 12.05.2004, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 57
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10.30. B.i.16.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
SV. MBL
VE. DV
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6.30. Ísl tal.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6. Ísl tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8.
HL. MBL
Frábær ævintýramynd hlaðin tæknibrellum eins og þær
gerast bestar í anda IndianaJones.Fyrsta stórmynd
sumarsins þar sem hetjan Van Helsing á í höggi við Drakúla
greifa, Frankenstein og Varúlfinn.
KRINGLAN
Sýnd kl. 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6 og 8.
Tær snilld.
Skonrokk.
AKUREYRI
kl.og 10. B.i.12 ára
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i.12 ára
Með
íslen
sku
tali
ÁLFABAKKI
Kl. 6. Enskt tal kl. 4 og 6. ísl tal
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 5.20, 8 og 10.30.
Fyrst
a
stórm
ynd
suma
rsins
.
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“
OG „THE MUMMY RETURNS“
Frábær ævintýramynd hlaðin tæknibrellum eins og
þær gerast bestar í anda IndianaJones.Fyrsta
stórmynd sumarsins þar sem hetjan Van Helsing á í
höggi við Drakúla greifa, Frankenstein og Varúlfinn.
Fyrst
a
stórm
ynd
suma
rsins
.
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“
OG „THE MUMMY RETURNS“
Frábær gamanmynd um Dramadrottninguna
Lolu sem er tilbúin að gera
ALLT til að hitta „idolið“ sitt!
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“
OG „THE MUMMY RETURNS“
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i.12 ára
AKUREYRI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.30.
Roger Ebert
Chicago Sun Tribune
Roger Ebert
Chicago Sun Tribune
Útlit myndarinnar er frábært.
Tæknibrellurnar eru fyrsta flokks. Van Helsing er
alvöru sumarpoppkornssmellur sem stendur
fyllilega undir væntingum.
Þ.Þ. Fréttablaðið.
Mögnuð mynd byggð á sönnum arburðum.
Með Orlando Bloom (Lord of the Rings,
Pirates of the Caribbean), Heath Ledger
(A Knight’s Tale), Naomi Watts (The Ring),
og Óskarsverðlaunahafinn Geoffrey Rush
(Shine).
Tvíhöfði Tvíhöfði
SKRÍMSLAMYNDIN Van Helsing
var vinsælasta myndin í kvik-
myndahúsum á Íslandi um helgina.
Um 8.000 manns sáu myndina
þessa fyrstu sýningarhelgi hennar.
Bana Billa 2 eftir Tarantino er því
komin í annað sætið eftir að hafa
verið á toppi listans tvær helgar í
röð.
Van Helsing telst fyrsta stór-
mynd sumarsins þar sem barátta
góðs og ills er háð með látum sem
aldrei fyrr. Áhorfendum gefst
þarna tækifæri til að sjá helstu
óværur kvikmyndasögunnar á einu
bretti, skrímsli Frankensteins,
Drakúla greifa og úlfmanninn óg-
urlega en auk þess láta Dr. Jekyll
og Mr. Hyde sjá sig.
Ein önnur mynd var frumsýnd
um helgina, Danskeppnin (You Got
Served) og náði hún fimmta sæti.
Fjallar hún um tvo mjög svo færa
dansara, vinina Elgin og David.
Þegar annað dansgengi skorar á
þá í keppni, verða þeir að taka á
stóra sínum. Þeir kalla til nokkra
vini, og æfa flottari danshreyf-
ingar en áður hafa sést. Er þar
tekið fyrir alamerískt fyrirbæri
þar sem krakkar safnast saman á
götum úti og dansa, mynda gjarna
gengi og berjast.
Myndin fór beint á topp banda-
ríska listans yfir mest sóttu mynd-
irnar þegar hún var frumsýnd þar
vestra í febrúar og svo virðist sem
íslenskir kvikmyndahúsgestir séu
líka þó nokkuð spenntir fyrir
henni.
Leyniglugginn (Secret Window)
með Johnny Depp er enn á góðri
siglingu, kominn í þriðja sæti eftir
að hafa verið í öðru sæti í síðustu
viku. Hún náði þó aldrei á topp
listans.
Frankenstein-skrímslið huggulegt að vanda.
Helsing veltir
Tarantino úr sessi
!
"
# $%
&
!"# $
%&
'(
* +&, &
$
&- -
&
-
.
'
(
)
*
+
,
-
.
'-
/
'(
')
'*
'0
''
1
'.
()
2
'
)
(
(
'
)
(
+
/
/
-
(
*
.
(
)
-
1
/
'*
!"
# $ !
%&'( ($) *
345&22672
68
&3269:243468 :346;
6!:346 3472
;
6!:346 3472
345&2268672
:34
9:2434
345&226869:2434
:346!:346 3472
68
&32
345&22672
68
&3269:243468 :34672
!:346< 348
&32
345&2269:2434
;
6 3472
;
6
< :34
345&22672
345&2269:2434
3472
348 9:2434
Boys and Girls Forever eftir Alison Lurie.
Vintage gefur út 2004. 232 síðna kilja
með registri. Kostaði 1.695 í Máli og
menningu.
BARNABÆKUR eru fróðlegt
fyrirbæri, saga þeirra og þróun í
gegnum árin er merkileg og ekki
síst sú mikla
barnabókabylting
sem Harry Potter
hrinti af stað, ekki
bara í ævintýra-
bókum heldur
barnabókum al-
mennt. Það er ekki
síður fróðlegt að
skoða barnabóka-
höfunda, rýna í
hvort þeir eiga eitthvað sameigin-
legt og þá hvað, aukinheldur sem
áhugamönnum um bókmenntir
finnst alltaf fengur að slíkum sam-
antektum því þær eru hagnýtar til
að benda á höfunda eða bækur sem
farið hafa framhjá manni.
Alson Lurie er fróð um enskar
bókmenntir, prófessor við háskóla
vestur í Bandaríkjunum, og hefur
líka skrifað skáldsögur sjálf. Hún
virðist því hafa alla burði til að
skrifa góða bók um barnabókahöf-
unda og því vekur það nokkra furðu
hve bókin er klén, Lurie er engin
Silja, svo mikið er víst.
Vandræðin byrja þegar í inngangi
að bókinni þar sem Lurie gerir sig
seka um ótrúlegt dómgreindarleysi í
röksemdafærslu sinni fyrir því
hvers vegna flestar góðar barna-
bækur eru eftir enskumælandi höf-
unda – þvílík steypa! Verð að játa að
við lá að ég hætti lestrinum við svo
búið.
Bókin segir frá nokkrum helstu
höfundum sem skrifað hafa bækur á
ensku eða bækur eftir þá verið gefn-
ar út á ensku. Þannig eru kaflar um
HC Andersen, Tove Jansson,
Louisu May Alcott, Frank Baum,
Dr. Seuss og Salman Rushdie svo
dæmi séu tekin.
Margir þessara kafla eru heldur
veigalitlir, sumir samantekt á því
sem aðrir hafa skrifað (bók um bæk-
ur um bækur!) og aðrir yfirborðs-
kennt blaður. Inn á milli eru þó
ágætis yfirlit, til að mynda kaflinn
um John Masefield sem var býsna
merkilegur höfundur. Kaflinn um
Gosa (Pinocchio) er líka ágætur þótt
erfitt sé að skilja hvers vegna hún
nefnir það ekki að sögunni af Gosa
lauk upphaflega með því að óknytta-
strákurinn Gosi var hengdur.
Kannski skortur á fræðimannsleg-
um vinnubrögðum.
Meginstef bókarinnar er að þeir
skrifi bestar bækur fyrir börn sem
séu börn í anda, hafi aldrei náð fé-
lagsþroska fullorðinna til að mynda
eða varðveitt barnið í sjálfum sér.
Það á reyndar aðeins við fáa af þeim
höfundum sem hún tínir til og því
tekst henni ekki beint vel upp að
rökstyðja mál sitt. Annað sem hún
nefnir á sér þó betri stoð, þ.e. að
barnabókahöfundar eru oft að vinna
úr tilfinningalegu skipbroti eða erf-
iðleikum í gegnum bækur sínar.
Árni Matthíasson
Forvitnilegar bækur
Bók um bækur
The Blind Man of Seville eftir Robert Wil-
son. Harcourt gefur út 2003. 434 síður
innb.
ROBERT Wilson er breskur
skáldsagnahöfundur sem skrifað
hefur nokkrar glæpasögur ólíkrar
gerðar. Hann er
góður penni og
hlaut til að mynda
verðlaun fyrir bók
sína A Small
Death in Lisbon,
sem hann átti
fyllilega skilið,
enda sú bók
einkar vel skrifuð
með skemmtilega
snúinni fléttu. Ekki hef ég tölu á
þeim bókum sem hann hefur skrif-
að, nálægt tíu held ég, en sú sem
hér er til umfjöllunar kom út á síð-
asta ári og hefur fengið fína dóma.
Hún kom út í kilju um daginn.
Bókin segir frá einkar hrotta-
legu morði á þekktum veitinga-
manni í Sevilla sem kemur í hlut
lögregluforingjans Javier Falcón
að rannsaka. Morðið fyllir hann
óhug og hefur sterk áhrif á sálarlíf
hans enda þekkti veitingamaður-
inn til foreldra Falcóns og minnir á
atriði sögu fjölskyldunnar sem
hann hefur bælt með sér. Rann-
sóknin vindur upp á sig, fleiri eru
myrtir, og smám saman kemur í
ljós að skuggaleg atvik í fortíð
Falcóns tengjast lausn málsins,
sérstaklega óhugnanlegir atburðir
sem faðir hans, málarinn frægi,
var blandaður í.
Það besta við bókina er hvernig
Sevilla fléttast inn í hana, lýsingar
Wilsons á borginni gefa bakgrunn
og stemmningu í bókinni og einnig
nýtir hann helgisiði páskanna til að
krydda hana og gæða lífi, en fyrsta
morðið er einmitt framið í páska-
vikunni. Persónurnar eru líka lif-
andi og vel skrifaðar þótt ekki séu
þær allar trúverðugar. Sérstaklega
er sálarkreppa Falcóns lögreglu-
foringja ósannfærandi og í raun
ekki í takt við karakter hans hvað
hann verður að miklu gjalti frammi
fyrir fortíðinni. Þeir sem fallast á
þessar óskýranlegu geðflækjur
hafa talsvert gaman af bókinni en
hætt við að aðrir eigi eftir að lenda
í vandræðum með að kyngja henni.
Það er mikil tíska í bandarískum
glæpasögum að illvirkinn sé geð-
veikur, haldinn ofsóknaræði eða
ranghugmyndum ýmiskonar. Oft-
ast er það svo að enginn virðist
vita að viðkomandi sé veill á geði
þótt hann sé haldinn óstöðvandi
morðæði og kvalalosta. Ekki bætir
svo úr skák þegar sá geðveiki er
nánar ofurmannlegur, ótrúlega
sterkur/fimur, framúrskarandi gáf-
aður og vellauðugur í þokkabót.
Því er þetta tínt til hér að ekkert
fer eins í taugarnar á mér og þeg-
ar höfundur byggir fléttuna í
glæpasögu á slíkri persónu, sjá til
að mynda ruslbækurnar um
Hannibal Lechter (sem er reyndar
afskaplega smáborgaralegur fag-
urkeri). Svo er það og í þessari bók
og eins gott að viðurkenna að síð-
ustu síðurnar í bókinni voru lesnar
á talsverðum hraða, ekki vegna
spennu, heldur var skylduræknin
það eina sem rak mig áfram.
Árni Matthíasson
Óskýranlegar geðflækjur
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
Upplýsingar í síma
552 2028 og 552 2607
www.graennkostur.is
Sendum grænmetisrétti
til fyrirtækja í hádeginu
• Magnafsláttur