Morgunblaðið - 20.05.2004, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 9
Laugavegi 4, sími 551 4473
• www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
Nýtt frá
ANNECY
Laugavegi 34, sími 551 4301.
Opnum
kl. 9.00
virka daga
Þýsk teinótt jakkaföt kr. 19.900
Skyrtur frá kr. 1.750
Einlit bindi kr. 800
Ítölsk silkibindi kr. 2.200
Opið virka daga frá kl. 11-18, laugardaga kl. 11-15.
Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545.
Ótrúlegt úrval af púðum, rúmteppum og gjafavöru
60-70% afsláttur af öllu
Fyrirtækja-
þjónusta
Silkitré frá Soldis
eru betri kostur
fyrir fyrirtæki
Ekkert viðhald
engin vökvun
Tré í hæsta
gæðaflokki.
Laugavegi 63 • (Vitastígsmegin) • Sími 551 2040
Silkitré og silkiblóm
Komum á
staðinn
Metum aðstæður
Gerum tilboð
Kringlunni sími 581 2300
Pólóbolir
með og án vasa
Stuttermaskyrtur
Glæsilegt úrval!
BASIC
ÚTSKRIFTARDRAGTIR
FYRIR ALLAR KONUR
Klassískir litir
Einnig teinóttar
ENDALAUST
HÆGT AÐ PÚSLA VIÐ
Laugavegi 63 Sími 551 4422
Stærðir 36-48
MAÐUR sem lögregla stöðvaði eftir
ofsaakstur frá Selfossi til Reykjavík-
ur á þriðjudag var dæmdur í síbrota-
gæslu til 30. júní í gær en hann á
talsverðan fjölda mála óuppgerðan.
Karl Steinar Valsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn segir manninn, sem er
24 ára gamall, eiga að baki nokkurn
brotaferil og eiga nú óuppgerða ein-
hverja tugi mála og hafi því verið
krafist síbrotagæslu yfir manninum.
Maðurinn unir úrskurðinum.
Í síbrotagæslu
eftir rán og
ofsaakstur
TALIÐ er að heyfengur kúabænda
hafi verið um 50% umfram þarfir síð-
astliðið sumar og er talið ljóst að þeir
þurfi að farga gríðarlegu magni af
heyi innan tíðar.
Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri segir að hafi heyið verið gott í
upphafi sé það heilmikill næringar-
gjafi fyrir uppgræðslu. Hann segir
bændur hafa bæði langa og góða
reynslu af því að dreifa heyrúllum í
því skyni að græða upp land. „Þegar
þeir hafa dreift þessu á mela og lítt
gróið land og stundum og stundum
ekki sett áburð með því, hefur landið
gróið upp á nokkrum árum. Víða hef-
ur þetta skilað alveg góðum árangri.
Þetta er efni sem við megum ekki
henda, við eigum að koma þessu á
landið með einum eða öðrum hætti,“
segir Sveinn.
Heytætivélar til hjá tveimur
landgræðslufélögum
Tryggvi Felixson, framkvæmda-
stjóri Landverndar, tekur í svipaðan
streng og segir heyið vera lífrænan
massa sem nýtanlegur sé til land-
græðslu. Það eigi ekki að vera
vandamál nema menn setji það á
leiðinlega staði þar sem það spilli út-
sýn eða sé til ama eins og önnur
óþrif. Þetta er náttúrulega nýtanlegt
efni á svæði þar sem landeyðing er
en það kostar dálitla fyrirhöfn, það
er vinna við að koma þéttpökkuðu
heyi á staði þar sem þörf er á upp-
græðslu. Þannig að það er ekki víst
að allir bændur sjái sér hag í því en
ég veit að þeir hafa stundum tekið
sig saman og nýtt fyrningar til að
græða upp landið og það er mjög
gott framtak, segir Tryggvi.
Sveinn minnir á að Landgræðslu-
félög Biskupstungna og Land-
græðslufélagið á Norður-Héraði eigi
sérstakar vélar sem tæti sundur
þessar heyrúllur og geti sprautað
þeim út, en það geri þessa vinnu
miklu auðveldari. „Þessar vélar geta
m.a. sprautað heyinu, þegar búið er
að saxa það niður, í rofabörð þar sem
e.t.v. er mjög erfitt að græða upp á
annan hátt. Þessar aðgerðir þeirra
lofa afskaplega góðu. En þetta kost-
ar allt saman heilmikið fé, að flytja
rúllurnar og dreifa úr þeim með
þessum hætti. Pokasjóður hefur
veitt þessum landgræðslufélögum
styrki til þess að koma út heyi með
þessum hætti.“
Sveinn segir auðvitað ódýrast að
bændur geri þetta hver á sinni jörð
enda sé nóg af landi sem henti til
svona aðgerða. Oft geti bændur rúll-
að heyrúllunum sjálfir en erfitt sé
fyrir þá að tæta þær niður og og
moka heyinu upp í rofabörð.
„Við hvetjum bændur til þess að
gera þetta eins og kostur er og leita
til félaganna sem eiga vélarnar.“
Miklar umframbirgðir eru af heyi hjá bændum
Mikilvægt að nýta heyið
til uppgræðslu lands