Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 42
MINNINGAR 42 FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Vegir skiptast – Allt fer ýmsar leiðir inn á fyrirheitsins lönd. Einum lífið arma breiðir, öðrum dauðinn réttir hönd. Einum flutt er árdags kveðja, Öðrum sungið dánarlag, allt þó saman knýtt sem keðja, krossför ein með sama brag. Veikt og sterkt í streng er undið stórt og smátt er saman bundið. Allt, sem á hjarta, ber í sér þrá upp í söngvanna ríki; herskarar drottins sálirnar sjá syngjandi engla í líki. Veikasta strengnum berst ómur af upp til sólkonungs hallar; rétt eins og lindir renna í haf, raddir þar sameinast allar. Hvað er ekki í einu ljóði falið, einum söng frá góðu hjarta? Já, allt, sem fagurt er, skal vera talið efst við dómsins hástól bjarta. (Einar Ben.) Mig langar til að minnast mágs míns, Guðjóns Jónssonar, sem lést GUÐJÓN EINARSSON ✝ Guðjón Einars-son fæddist í Reykjavík 26. apríl 1924. Hann lést á Landspítalanum 10. maí síðastliðinn og var útför hans gerð frá Kristskirkju í Landakoti 18. maí. 9. maí síðastliðinn. Það var líkt Guðjóni að kveðja þessa jarðvist á stilltum, sólríkum sumardegi og halda upp í sína hinstu för. Guðjón kom inn í fjöl- skyldu okkar þegar hann var að stíga í vænginn við systur mína Ernu Berg- sveinsdóttur. Þá var ég unglingur. Mikil var aðdáun mín á þessu fallega pari. Guðjón var hár og spengilegur og bar með sér góðan þokka. Fljótlega kom í ljós að Guð- jón var hagur á flesta hluti, gerði við allt sem aflaga fór enda byggði hann fjölskyldu sinni fallega íbúð svo að segja einn og síðar meir ein- býlishús að Þrúðvangi 13 í Hafn- arfirði. Já, hann var nokkurs konar Bjartur í Sumarhúsum hann Guð- jón. Ég leit mjög svo upp til þeirra hjóna enda urðu þau fyrirmynd mín um flest. Þegar þau fluttu í sína fyrstu íbúð var mér ætlað eitt her- bergi. Þá var ég ein með dóttur mína og þau urðu mér skjól og skjöldur. Þar lærði ég meðal annars hvernig ætti að beita málningar- pensli við að mála íbúðina. Margar voru lautarferðirnar farnar í litla Volkswagen bílnum, þau með sín tvö börn og ég með mínar tvær dætur, þá var nú skottið notað til hins ýtrasta. Eftir að ég eignaðist mitt heimili var alltaf kallað á Gauja ef eitthvað þurfti að lagfæra og oft kom Ómar sonur þeirra með. Oftar en ekki voru sendingar frá Ernu systur meðferðis, ýmis matvæli og jafnvel fatnaður til búbótar. Já, hugur þeirra var alltaf gjöfull og veitandi til allra. Fyrir samfylgdina vil ég þakka og bið Guðjóni Guðs blessunar á eilífðarbraut. Elsku Ómar, Gerður, Linda og aðrir fjöl- skyldumeðlimir, ég votta ykkur öll- um mína dýpstu samúð. Megi Guð styrkja ykkur í sorginni. Þín mágkona, Unnur Bergsveinsdóttir. Kveðja frá Samtökum sykursjúkra Guðjón Einarsson var einn af elstu félagsmönnum Samtaka syk- ursjúkra. Hann lagði af mörkum mikið og óeigingjarnt starf í þágu samtakanna og félagsmanna þeirra. Guðjón sat um tíma í stjórn félags- ins og síðustu fjögur árin gegndi hann embætti kjörins endurskoð- anda reikninga samtakanna. Allt fram undir hið síðasta var hann virkur í félagsstarfinu, kom með okkur í ferðalög og mætti á fundi, nú síðast á aðalfundinn í apríl sl. þar sem hann baðst undan að verða endurkjörinn einu sinni enn í emb- ætti endurskoðanda. Á Guðjóni sannaðist vel hið fornkveðna að vin- ur er sá er til vamms segir. Hann var duglegur við að benda okkur á það sem betur mætti fara en því var ávallt vel tekið því hann var jafn- framt óspar á hrósið þegar honum þótti vel að verki staðið. Fram- ganga hans öll mótaðist af óskum hans um velgengni félagsins og áframhaldandi styrk þess. Um leið og við þökkum Guðjóni ánægjulega samfylgd vottum við að- standendum hans innilega hluttekn- ingu okkar. Kær kveðja. Stjórn Samtaka sykursjúkra. Einar Ólafsson starfaði í stjórn Starfsmannafélags ríkisstofnana um þrjá- tíu ára skeið og hafði mótandi áhrif á SFR og BSRB. Ég kynntist Einari þeg- ar ég varð trúnaðarmaður á Kleppsspítala uppp úr 1970. Þetta voru mikil mótunarár í verkalýðs- hreyfingunni, svokölluð 68 kynslóð var að hefja sín fyrstu skref í verkalýðsbaráttunni og ekki fannst Einari allt notadrjúgt sem hún vildi, enda sýnir reynslan að sú kynslóð hafði almennt ekki mikið úthald til að berjast innan hreyf- ingarinnar. Einar var laginn við að fá fólk til að starfa saman, hafði létta lund en var mjög fylginn sér. Við störf- uðum saman í samninganefndum fyrir SFR og var hann mjög hlið- hollur stétt minni en þá voru sjúkraliðar að hasla sér völl sem stétt. Hann vann þar gott starf ásamt Ingibjörgu á Sundlaugar- veginum eins og hún var kölluð í minni fjöskyldu, en hún var kona föðurbróður míns, góð kona og gegn, og var einn af fyrstu sjúkra- liðunum. Vann hún mikið starf inn- an SFR og unnu þau vel saman. Þegar kosið var um formann SFR þetta ár voru það mínar fyrstu kosningar í SFR, þá kaus ég Einar til formanns enda treysti ég honum vel. Einar Ólafsson var einn af frumkvöðlum að uppbyggingu orlofshúsa í Munaðarnesi og á Stóru-Skógum og var mjög áhuga- samur um að allt væri gert af myndarskap. Hann trúði á sam- vinnuformið varðandi reksturinn EINAR ÓLAFSSON ✝ Einar Ólafssonfæddist á Eski- firði hinn 11. maí 1925. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi 8. maí síðastliðinn og var útför hans gerð frá Fossvogskirkju 19. maí. þar. Reyndar var sam- vinnuform hans lífs- sýn og var hann fram- sóknarmaður mikill eins og hann átti kyn til. Jafnframt vann hann að því öllum ár- um að BSRB, ásamt aðildarfélögunum, kæmu sér upp varan- legu húsnæði þar sem flest aðildarfélögin gætu haft sameigin- lega aðstöðu. Ég man þegar hann dreif mig niður á Grettisgötu 89, þar sem BSRB er til húsa núna, til að sýna mér bygg- ingarframkvæmdirnar sem þá stóðu yfir, og einnig til að selja mér þá hugmynd að þarna gætu sjúkraliðar fengið skrifstofu og þjónustu frá stéttarfélögum sínum, sem þá voru hin ýmsu aðildarfélög innan BSRB. Varð það úr að við sjúkraliðar fengum aðstöðu í hús- inu en það var mikið gæfuspor fyr- ir okkar unga félag sem var að stíga sín fyrstu spor í baráttunni. Við Einar vorum ekki alltaf sam- mála um leiðir þó oft fyndum við málamiðlun í samstarfi okkar. Það endaði þó með því að leiðir skildu þegar ég gaf kost á mér sem for- maður SFR og varð það. Einar tók kosningaósigri sínum með dreng- lyndi og óskaði mér velfarnaðar í starfi af alhug. Einar var jafnan glaður og reifur í viðkynningu, hress í bragði og hlýlegur, en gat verið hæðinn ef hann vildi það við hafa. Einari Ólafssyni var mjög um- hugað um fjölskyldu sína og átti góða konu sem stóð eins og klettur við hlið hans, og oftar en ekki var það hún sem þurfti að sinna stórum barnahópi. Það er nú þann- ig að þeir sem vinna að jafn anna- sömu starfi og vera formaður í stéttarfélagi þurfa skjól heima. Ég sendi Hansínu, börnum Ein- ars og öðrum aðstandendum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Sigríður Kristinsdóttir. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR EYJÓLFSSON, Tómasarhaga 44, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Grund við Hringbraut aðfaranótt mánudagsins 17. maí. Útför hans verður gerð frá Eyvindarhólakirkju, Austur-Eyjafjöllum, laugardaginn 22. maí kl. 14.00. Sigríður Jósefsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN JÓNSSON, Þrúðvangi 13, varð bráðkvaddur sunnudaginn 9. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum af alhug auðsýnda samúð. Ómar Guðjónsson, Þóra Eiríksdóttir, Gerður Guðjónsdóttir, Guðmundur Emil Sigurðsson, Guðlaug Linda Guðjónsdóttir, Stefán Flego og barnabörn. Útför ástkærrar móður minnar, tengdamóður og ömmu, INGIBJARGAR ÓLAFSDÓTTUR, áður til heimilis á Dalbraut 20, fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 21. maí kl. 10:30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeir, sem vilja minnast hennar, láti SÍBS njóta þess. Ólafur Guðmundsson, Vanessa Chernick, Sabína og Ethan Erik. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RUTH VITA GUNNLAUGSSON, Blásölum 24, Kópavogi, áður til heimilis á Móavegi 11, Njarðvík, lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn 16. maí. Jarðarförin fer fram frá Njarðvíkurkirkju (Innri-Njarðvík) laugardaginn 22. maí kl. 10.30. Soffía Guðmundsdóttir, Þorfinnur Finnlaugsson, Gunnlaugur Karl Guðmundsson, Agnes Agnarsdóttir, Guðmundur Ingvi Guðmundsson, Dagný Hafsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför systur okkar og mágkonu, STEFANÍU UNU PÉTURSDÓTTUR, Austurbrún 6, Reykjavík. Sérstakar þakkir til stafsfólks gjörgæsludeildar Landspítalands við Hringbraut fyrir hlýja og góða umönnun. Bogi Pétursson, Margrét Magnúsdóttir, Jóna Vilborg Pétursdóttir, Guðlaug Pétursdóttir, Stefán Pétursson, Kristbjörg Magnúsdóttir, Jón Pétur Pétursson, Sigurlína Pétursdóttir, Eyvindur Pétursson, Halldór Pétursson, Bryndís Björnsdóttir, Ingi Kristján Pétursson, Þorsteinn Pétursson, Snjólaug Aðalsteinsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.