Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 19
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 19 NEÐRI deild breska þingsins var rýmd í skyndi í miðjum fyrirspurnatíma Tonys Blairs forsætisráðherra í gær eftir að purpurarauðu dufti var kastað í Blair frá áhorfendastúku. Lenti duftið á baki forsætisráðherrans en það reyndist vera skaðlaust, að sögn lögregl- unnar. Tvær duftsendingar munu hafa lent í salnum, önnur hafnaði milli Blairs og Gordons Browns fjármálaráðherra, hin á Blair. Karlmaður í jakkafötum stóð skyndilega upp í áhorfendastúkunni og hrópaði „manstu“ og síðan eitthvað um „fimm ár“. Maðurinn er sagður vera félagi í samtökum er nefnast Fathers 4 Justice en þau hafa oft beitt óvenju- legum aðferðum til að vekja athygli á baráttu sinni fyrir auknum rétti feðra. Blair var augsýnilega brugðið þar sem hann stóð og svaraði fyrirspurnum þing- manna. Forseti deildarinnar, Michael Martin, sleit þingfundi þegar í stað en fundurinn hófst aftur klukkustund síðar. Maðurinn, sem henti duftinu í Blair, stóð á svæði, sem ætlað er þingmönnum úr lávarða- deildinni og gestum þeirra. Svæðið, þar sem almenningi er ætlað að vera, er girt af frá þingsalnum með öryggisgleri en ekki svæðið þar sem gestir þingmanna halda sig. Annar maður sást halda miða á lofti en ekki er vitað hvað stóð á honum. Báðir voru mennirnir handteknir. Þeir voru gestir Llil Golding barónessu úr Verkamannaflokknum. Hún sagðist í gær vera miður sín yfir atburð- inum og hét því að aðstoða lögregluna við að upplýsa málið. Dufti fleygt í Tony Blair í þinginu London. AFP, AP. AP Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. SKRIFSTOFA Gerhards Schröd- ers, kanslara Þýskalands, kærði í gær atvinnulausan mann, sem réðst að kanslaranum og gaf honum eyrnafíkju á pólitískum fundi fyrr í vikunni. Schröder var að gefa eiginhand- aráritanir á fundi jafnaðarmanna í borginni Mannheim þegar mað- urinn vatt sér að honum og sló til kanslarans. Var hann strax yf- irbugaður af öryggisvörðum en við yfirheyrslu vildi hann ekki nefna neina ástæðu fyrir framferði sínu. Í Þýskalandi er hins vegar mikil óánægja með frammistöðu stjórn- arinnar í efnahagsmálunum. Árið 1991 var ráðist á Helmut Kohl, fyrrverandi kanslara, með eggjum og málningu en hann sló frá sér og reyndi sjálfur að handtaka þann, sem það gerði. Kært fyrir eyrnafíkju Mannheim. AFP. MILTON Friedman, nóbels- verðlaunahafi og einn þekkt- asti hagfræðingur síðari tíma, telur „umtals- verðar líkur“ á því að evru- svæðið leysist upp á næstu árum. Þetta mat Fried- mans kemur fram í viðtali hans við net- miðilinn euob- server.com. Friedman telur að erfitt muni reynast að fella saman hagkerfi ríkja Evrópusambandsins og mynda úr þeim eina heild. Hagkerfi þeirra séu mjög ólík og hið sama eigi við um menningu þeirra og tungu- mál. Hann telur að vandinn muni aðeins aukast í kjölfar stækkunar Evrópu- sambandsins. Aðildarríki þess eru nú 25 eftir að tíu ný ríki bættust í hópinn fyrsta þessa mánaðar. Evrusvæðið tekur enn hins vegar aðeins til tólf aðildarríkja en nýju ríkin hyggjast öll taka upp evruna sem gjaldmiðil í fyllingu tím- ans. Fjögur nýju ríkjanna, Kýpur, Eistland, Slóvenía og Litháen, hyggjast taka evruna upp við fyrsta tækifæri. Friedman kveðst ekki vilja fullyrða að evrusvæðið leysist upp en telur „sterkar líkur“ á að sú verði raunin „á næstu árum“. Hann segist raunar telja að evran hafi fram til þessa reynst ágætlega en seg- ir að miklir erfiðleikar séu trúlega framundan nú þegar Evrópusambandið hafi verið stækkað. Hann telur að gömlu gjaldmiðlarnir verði teknir upp á ný líði evran undir lok. Heftandi reglur Friedman, sem fékk nób- elsverðlaunin í hagfræði árið 1976, segir að um einstök hagkerfi Evrópuríkja gildi að þau séu yfirleitt nokkuð öflug. Vandinn sé sá að Evrópuríkin hafi komið sér saman um heftandi reglur sem standi hagkerfum þeirra fyrir þrif- um. Friedman segir engan vafa leika á því hvernig Evr- ópusambandið ætti að bregð- ast við. Það þurfi að fella úr gildi íþyngjandi lög og reglu- gerðir. Þá verði ríkisútgjöldin að minnka. „Reglurnar eru að sliga hagkerfi Evrópusam- bandsins,“ segir Friedman. Friedman efast um evruna Milton Fried- man hagfræð- ingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.