Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 55
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 55 HREINSANIR eru hafnar hjá liði Wolves fyrir næstu leiktíð en liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni. Alex Rae er horfinn á braut til Glasgow Rangers, Denis Irwin hefur lagt skóna á hilluna og samningar við Isaac Okornokwo, Steffen Iversen, Nathan Blake og Oleg Luzhny verða ekki endurnýjaðir. Samningur Jóhannesar Karls Guðjónssonar við Úlfana rennur út um næstu mánaðamót en Skaga- maðurinn hefur verið í láni hjá fé- laginu frá spænska liðinu Real Bet- is. Dave Jones, knattspyrnustjóri Wolves, hefur mikinn áhuga á að halda Jóhannesi og hyggjast for- ráðamenn Úlfanna ræða við kollega sína hjá Real Betis en Jóhannes er samningsbundinn liðinu til 2006. Hreinsanir hjá Úlfunum GUÐMUNDUR Þórður Guðmunds- son, landsliðsþjálfari í handknatt- leik karla, valdi í gær þá fimmtán leikmenn sem leika fyrir Íslands hönd á Flanders Cup, fjögurra þjóða móti, í Antwerpen sem hefst á morgun og lýkur á sunnudag. Guðmundur kaus að skilja þá Vil- hjálm Halldórsson, Stjörnunni, Hrafn Ingvarsson, Aftureldingu og markverðina Pálmar Pétursson úr Val og Ólaf H. Gíslason, ÍR, eftir heima úr þeim 19 manna landsliðs- hópi sem hann valdi til æfinga í síð- ustu viku. Íslenska landsliðið sem leikur á mótinu í Antwerpen um helgina verður skipað eftirtöldum leik- mönnum: Markverðir: Birkir Ívar Guðmundsson, Hauk- um, Björgvin Páll Gústavsson, HK. Aðrir leikmenn: Sturla Ásgeirsson, ÍR, Baldvin Þorsteinsson, Val, Bjarni Fritzson, ÍR, Þórir Ólafsson, Haukum, Ró- bert Gunnarsson, Aarhus GF, Vign- ir Svavarsson, Haukum, Arnór Atlason, KA, Ingimundur Ingi- mundarson, ÍR, Heimir Örn Árna- son, Val, Kristján Andrésson, GU- IF, Svíþjóð, Ásgeir Örn Hallgríms- son, Haukum, Einar Hólmgeirsson, ÍR og Valdimar Þórsson, Fram. Íslenska landsliðið mætir Túnis, Serbíu/Svartfjallalandi og Dan- mörku á mótinu á morgun, laugar- dag og á sunnudag. „Þetta mót verður mikil eldskírn fyrir þessa leikmenn,“ sagði Guð- mundur í samtali við Morgunblaðið í gær. „Þetta er þriðja árið í röð sem við sendum lítt reynt lið til mótsins og að því leytinu förum við svipað að og Danir. Með þessu vil ég horfa til framtíðar, freista þess að stækka þann hóp leikmanna sem hægt er að velja úr auk þess sem líta má á þetta sem ákveðna viður- kenningu til þeirra leikmanna sem hafa staðið sig vel í deildinni hér heima,“ sagði Guðmundur. Fjórir settir út í kuldann  RÚNAR Kristinsson lagði upp flest mörk af öllum leikmönnum belgísku 1. deildarinnar í knattspyrnu á ný- liðnu tímabili. Rúnar var maðurinn á bak við 14 mörk sem Lokeren skor- aði, og hann gerði þar að auki 6 mörk sjálfur. Næsti maður á listanum, sem tímaritið Voetbal Magazine tók sam- an, lagði upp 11 mörk.  ARNAR Þór Viðarsson, fyrirliði Lokeren, var sjötti besti leikmaður deildarinnar, samkvæmt stigagjöf Voetbal Magazine. Hann fékk sam- tals 202 stig hjá tímaritinu en sigur- vegari varð Frédéric Herpoel, mark- vörður Gent, með 218 stig. Arnar Þór var eini leikmaður Lokeren sem lék alla 34 deildaleiki liðsins, alla í byrj- unarliði.  SLAVISA Kaplanovic, serbneski varnarmaðurinn hjá Grindavík, verð- ur nær örugglega ekki með liðinu þegar það sækir ÍA heim í úrvals- deildinni í knattspyrnu í dag. Kapl- anovic er ekki búinn að jafna sig af ökklameiðslum sem hann varð fyrir gegn ÍBV í fyrstu umferðinni en þá þurfti hann að yfirgefa völlinn eftir aðeins hálftíma leik.  FRAMARAR eru enn án þeirra Baldurs Bjarnasonar, Daða Guð- mundssonar, Gunnars Þórs Gunn- arssonar og Freys Karlssonar, en þeir voru allir meiddir og léku ekki gegn Víkingi í fyrstu umferðinni. Fram sækir ÍBV heim til Vest- mannaeyja í dag. Í lið ÍBV vantar sem fyrr þá Steingrím Jóhannesson og Pál Hjarðar sem verða ekki leik- færir fyrr en í júní.  LIND Hrafnsdóttir, knattspyrnu- kona frá Vestmannaeyjum, er gengin til liðs við úrvalsdeildarlið FH. Lind, sem er 22 ára og hefur spilað með öll- um yngri landsliðum Íslands, lék 13 af 14 leikjum ÍBV í deildinni í fyrra og skoraði 2 mörk en hún hefur spilað 66 leiki í efstu deild.  HARALD Brattbakk forðaði norsku meisturunum Rosenborg frá sínu þriðja tapi í röð í norsku úrvals- deildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Brattbakk kom inn á sem varamaður gegn Vålerenga og jafnaði, 2:2, þeg- ar fjórar mínútur voru til leiksloka. Rosenborg hefur aðeins unnið tvo af fyrstu sjö leikjum sínum og er um miðja deild en félagið hefur orðið norskur meistari samfleytt frá árinu 1992, eða í tólf ár í röð.  MARC Goodfellow, fyrrum leik- maður með ÍBV og Stoke City, var liði sínu, Bristol City, dýrmætur í gærkvöld, í úrslitakeppni um sæti í ensku 1. deildinni í knattspyrnu. Goodfellow jafnaði, 1:1, gegn Hartle- pool tveimur mínútum fyrir leikslok, og í kjölfarið skoraði einn félaga hans sigurmark Bristol City. Liðið vann þar með 3:2 samanlagt og er komið í úrslitaleik gegn Brighton eða Swind- on. FÓLK Arnór Atlason, sem gengur til liðsvið þýska stórliðið Magdeburg í sumar, sópaði að sér verðlaunum á lokahófinu í gærkvöld en ásamt því að verða fyrir valinu sem besti og efnilegasti leikmaðurinn á leiktíðinni var hann kjörinn besti sóknarmað- urinn og varð markahæsti leikmaður deildarkeppninnar (riðlakeppni og úrvalsdeildar) með 237 mörk. Eftirtaldir voru heiðraðir á loka- hófinu í gær:  Bestu leikmenn: Arnór Atlason, KA, Sylvia Strass, ÍBV. Aðrir sem voru tilnefndir: Andrius Stelmokas, KA, Markús Máni Michaelsson, Val- ur, Anna Yakova, ÍBV, Ramune Pekarskyte, Haukar. Efnilegustu leikmennirnir  Efnilegustu leikmenn: Arnór Atlason, KA, Anna Úrsúla Guð- mundsóttir, Grótta/KR. Aðrir sem voru tilnefndir: Andri Stefan, Hauk- ar, Björgvin Gústavsson, HK, Rakel Dögg Bragadóttir, Stjarnan, Sólveig Kærnested, Stjarnan. Engl og Júlíus bestu varnarmennirnir  Bestu varnarmenn: Birgit Engl, ÍBV, og Júlíus Jónasson, ÍR. Aðrir sem voru tilnefndir: Andrius Stelmokas, KA, Vignir Svarsson, Haukar, Hafrún Kristjánsdóttir, Valur, Martha Hermannsdóttir, Haukar. Pekarskyte og Arnór best í sókn  Bestu sóknarmenn: Ramune Pek- arskyte, Haukar og Arnór Atlason, KA. Aðrir sem voru tilnefndir: And- rius Stelmokas, KA, Einar Hólm- geirsson, ÍR, Anna Yakova, ÍBV, Ramune Pekarskyte, Haukar. Berglind og Ólafur bestu markverðirnir  Bestu markverðir: Berglind Hansdóttir, Valur, og Ólafur Gísla- son, ÍR. Aðrir sem voru tilefndir: Birkir Ívar Guðmundsson, Haukar, Egidijus Petkevicius, Fram, Natasa Lovic, Víkingur, Jelena Jovanovic, Stjarnan. Aðalsteinn og Óskar Bjarni fremstir þjálfara  Bestu þjálfarar: Aðalsteinn Eyj- ólfsson, ÍBV og Óskar Bjarni Ósk- arsson, Valur. Aðrir sem voru til- nefndir: Heimir Ríkarðsson, Fram, Páll Ólafsson, Haukar, Erlendur Ís- feld, Stjarnan, Guðríður Guðjóns- dóttir, Valur. Bestu dómararnir  Besta dómaraparið: Stefán Arn- aldsson og Gunnar Viðarsson. Önn- ur pör sem voru tilnefnd: Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur Haraldsson, Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson. Morgunblaðið/Kristján Arnór Atlason, KA-maðurinn öflugi, var kjörinn besti leikmað- urinn í karlaflokki og einnig sá efnilegasti. Arnór og Sylvia best í vetur ARNÓR Atlason, KA, og Sylvia Strass, ÍBV, voru útnefnd leikmenn ársins í karla- og kvennaflokki á lokahófi HSÍ sem haldið var á Broadway í gærkvöldi. Arnór varð einnig fyrir valinu sem efnilegasti leikmaðurinn hjá körlunum en Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Grótta/KR, varð fyrir valinu hjá konunum. Athygli vakti að Íslands- meistararnir í karlaflokki, Haukar, áttu engan fulltrúa á meðal verð- launahafa en Haukar urðu bæði Íslands- og deildarmeistarar á ný- afstaðinni leiktíð. Lokahóf HSÍ Morgunblaðið/Árni Torfason Sylvia Strass, austurríska landsliðskonan í Íslandsmeistaraliði ÍBV, var kjörin besti leikmaðurinn í kvennaflokki. DICK Advocaat landsliðsþjálfari Hollendinga valdi í gær 23-manna hóp sinn sem leikur á Evrópumótinu í Portúgal í sumar. Fátt kemur á óvart í vali Advocaats en ekkert pláss er fyrir framherjann Jimmy Floyd Hasselbaink og félaga hans hjá Chelsea, Mario Melchiot, en þeir eru til vara svo og Paul Bosvelt miðjumaður Manchester City. Hópinn skipa: Markverðir: Edwin van der Sar (Fulham), Ronald Waterreus (PSV Eindhoven), Sander Westerveld (Real Sociedad). Varnarmenn: Frank de Boer (Rangers), Wilfred Bouma (PSV Eindhoven), Giovanni van Bronck- horst (Barcelona), Phillip Cocu (Barcelona), Johnny Heitinga (Ajax), Michael Reiziger (Barce- lona), Jaap Stam (AC Milan). Miðjumenn: Mark van Bommel (PSV Eindhoven), Edgar Davids (Barcelona), Clarence Seedorf (AC Milan), Wesley Sneijder (Ajax), Rafael van der Vaart (Ajax), Boude- wijn Zenden (Middlesbrough ). Framherjar: Pierre van Hooij- donk (Fenerbache), Patrick Kluivert (Barcelona), Roy Makaay (Bayern München), Andy van der Meyde (Inter Mílanó), Ruud van Nistelrooy (Manchester United), Marc Over- mars (Barcelona), Arjen Robben (PSV Eindhoven). Ekkert pláss fyrir Chelsea- leikmennina í hollenska hópnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.