Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 137. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Magnaðir
tónleikar
Guðný Guðmundsdóttir fagnar 30
árum sem konsertmeistari Listir
Viðskipti | Gagarín finnur fjölina á ný Tréskipa-
smiður á uppleið í KB banka Úr verinu | Rannsaka
sandhverfueldi Róleg sala á úthafskarfa
HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær
Pétur Þór Gunnarsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóra Gallerís Borgar,
og Jónas Freydal Þorsteinsson í
málverkafölsunarmálinu svonefnda,
og hnekkti þar með dómi Héraðs-
dóms Reykjavíkur í málinu, en þar
voru mennirnir dæmdir í sex og fjög-
urra mánaða fangelsi.
Meirihluti Hæstaréttar taldi álits-
gerðir sérfræðinga sem starfa hjá
Listasafni Íslands ekki tækar fyrir
dómi þar sem listasafnið er einn
kærenda í málinu. Því teljist sekt
mannanna ekki nægjanlega sönnuð.
Tveir dómarar af fimm skiluðu sér-
atkvæði þar sem þeir komust að
þeirri niðurstöðu að ákærðu væru
sannir að sök.
Jón H. Snorrason, yfirmaður efna-
hagsbrotadeildar lögreglunnar í
Reykjavík, segir dóminn veikan.
Hann segir það umhugsunarefni
hvort hann setji það fordæmi að sér-
fræðingar sem vinna hjá ríkinu telj-
ist vanhæfir til að gefa álit í málum
þar sem ríkið á einhverja hagsmuni.
Ragnar Aðalsteinsson, verjandi
Péturs Þórs, lýsti yfir ánægju með
niðurstöðuna og sagði forsendur
dómsins þær sömu og komið hefðu
fram í málflutningi fyrir héraðsdómi,
að sönnunargögnin dygðu ekki til
sakfellingar.
Sýknað í fölsunarmáli
Sérfræðiálit/4
AÐ MINNSTA kosti tíu Palestínumenn, flestir
þeirra unglingar, biðu bana þegar ísraelskir
hermenn skutu á um það bil þúsund Palest-
ínumenn sem mótmæltu aðgerðum Ísraelshers
í flóttamannabúðum við bæinn Rafah á Gaza-
svæðinu. Fimmtíu manns særðust í árásinni,
þar af 20 lífshættulega.
Sjónarvottar sögðu að ísraelsk herþyrla
hefði skotið allt að fjórum flugskeytum á Pal-
estínumennina þegar þeir gengu frá miðbæ
Rafah og í áttina að flóttamannabúðunum. Ísr-
aelskir embættismenn sögðu hins vegar að
þyrlan hefði aðeins skotið viðvörunarskotum
og töldu líklegt að mannfallið hefði orðið þegar
skriðdreki skaut fjórum sprengikúlum.
Fólkið var að mótmæla aðgerðum Ísr-
aelshers í flóttamannabúðunum þar sem 34
Palestínumenn hafa beðið bana síðan ísraelskir
hermenn réðust inn í búðirnar á þriðjudag til
að eyðileggja göng og byggingar sem Ísraelar
segja að hafi verið notuð til að smygla vopnum.
Öryggisráðið gagnrýnir Ísraela
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti
í gærkvöldi ályktun þar sem það gagnrýnir
manndrápin og aðgerðir Ísraelshers í Rafah.
Ályktunin naut stuðnings allra aðildarlanda
ráðsins nema Bandaríkjanna sem sátu hjá í
stað þess að beita neitunarvaldi.
Talsmaður Evrópusambandsins í utanríkis-
málum sakaði Ísraelsher um „ófyrirleitni og
skeytingarleysi um líf saklauss fólks“. George
W. Bush Bandaríkjaforseti kvaðst hafa miklar
áhyggjur af málinu og óskað eftir skýringum
Ísraelsstjórnar á mannfallinu.
Reuters
Palestínumaður heldur á pilti sem særðist í
árás ísraelskra hermanna í Rafah í gær.
Skotið á
mótmælend-
ur á Gaza
Minnst tíu Palest-
ínumenn féllu, flestir
þeirra unglingar
Rafah. AFP.
EIN skærasta stjarna óperuheimsins, Olga
Borodina, söng með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands í Háskólabíói í gærkvöld fyrir fullu húsi
áheyrenda. Borodina syngur í virtustu óp-
eruhúsum heims, jafnt austanhafs og vestan,
og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir
Einnig Söngva og dansa dauðans eftir Múss-
orgskí. Sem aukalag tók hún aríu Dalílu, Mon
coeur, úr óperunni Samson og Dalílu eftir
Saint-Saëns, við gríðarlegan fögnuð tónleika-
gesta. Þá var hljómsveitinni ekki síður klapp-
að lof í lófa.
söng sinn. Hún þykir skara fram úr í rúss-
neskum óperum, en einnig sem Carmen, í
samnefndri óperu eftir Bizet.
Í gærkvöldi söng hún einmitt hina frægu
Seguidillu Carmenar, við mikinn fögnuð, og
fleiri atriði úr frönskum og ítölskum óperum.
Morgunblaðið/Golli
Mikil hrifning á tónleikum Olgu Borodinu
Viðskipti og Úr verinu í dag
BANDARÍSK herþyrla gerði í
gær árás á hús í eyðimerkurþorpi í
Írak, nálægt landamærunum að
Sýrlandi, og yfir 40 manns biðu
bana, að sögn íraskra embættis-
manna. Þeir sögðu að fólkið hefði
verið að halda brúðskaupsveislu í
húsinu þegar árásin var gerð en
talsmaður Bandaríkjahers neitaði
því í gærkvöldi.
Talsmaður hersins sagði að
árásin hefði verið gerð á Sýrlend-
inga, sem hefðu barist með írösk-
um uppreisnarmönnum gegn her-
námsliðinu í Írak. Bandarískir
hermenn hefðu meðal annars fund-
flutningabíl sem sagt var að hefði
verið notaður til að flytja þá sem
létu lífið í árásinni. Meðal annars
sáust þar lík nokkurra barna.
Írakar sögðu að veislufólkið
hefði hleypt af byssum upp í loftið
til að fagna brúðkaupinu eins og
venja er á þessum slóðum. Banda-
rískir hermenn hefðu komið á
staðinn til að kanna hvað væri að
gerast og síðan farið í burtu.
Skömmu síðar hefði þyrlan gert
árás á svæðið og lagt tvö hús í rúst.
Ramadi er eitt af helstu vígjum
uppreisnarmanna sem hafa barist
gegn hernámsliðinu í Írak.
ið vopn í húsinu eftir árás þyrlunn-
ar.
Segja börn hafa látið lífið
Ziyad al-Jbouri, aðstoðarlög-
reglustjóri Ramadi, sagði að 42–45
hefðu látið lífið í árásinni sem var
gerð á hús í afskekktu eyðimerk-
urþorpi nálægt landamærunum að
Sýrlandi og Jórdaníu. Hann sagði
að á meðal hinna látnu væru fimm-
tán börn og tíu konur.
Læknir á sjúkrahúsi í Ramadi
sagði að 45 hefðu beðið bana.
Fréttasjónvarp AP fékk mynd-
bandsupptöku þar sem lík sáust á
Yfir 40 Írakar sagð-
ir bíða bana í árás
Herþyrla sögð hafa gert árás á fólk í brúð-
kaupsveislu en Bandaríkjaher neitar því
Bagdad. AP.
HALLDÓR Ásgrímsson ut-
anríkisráðherra afhenti ný-
verið sendiherra Bandaríkj-
anna á Íslandi formleg
mótmæli íslenskra stjórn-
valda vegna upplýsinga um
misþyrmingar íraska fanga í
Abu Ghraib-fangelsinu í
Bagdad í Írak. Var sendiherr-
ann sérstaklega kallaður í ut-
anríkisráðuneytið af þessu til-
efni.
„Hann kvaðst mundu koma
þeim sjónarmiðum íslenskra
stjórnvalda á framfæri við
stjórnvöld í Washington,“
sagði Halldór í utandagskrár-
umræðu um stöðu mála í Írak
á Alþingi í gær. /10
Pyntingum
mótmælt
við sendi-
herrann