Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 51 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake NAUT Afmælisbörn dagsins: Þú et frumleg/ur og opin/n fyrir umhverfi þínu. Þú ert jafnframt skapandi og hefur mikið að gefa öðrum. Leggðu hart að þér á þessu ári því þú munt uppskera á því næsta. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það verður mikið að gera hjá þér næsta mánuðinn. Þú munt hugsanlega fara í ferða- lag auk þess sem það verður mikið að gera heima fyrir. Reyndu að njóta þess sem þú ert að gera þrátt fyrir ann- ríkið. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú munt líklega eyða óvenju miklu á næstu vikum. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Sólin og venus eru í merkinu þínu og því ertu orkumikil/l og hefur mikið aðdráttarafl. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú þarft að gefa þér meiri tíma til einveru á næstu fjór- um vikum. Þú þarft á því að halda til að halda einbeitingu þinni og hugarró. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú munt njóta mikilla vin- sælda næsta mánuðinn. Það er eins og það vilji allir vera í návist þinni. Njóttu þess að vera í sviðsljósinu og þiggðu öll heimboð sem þér berast. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú verður hugsanlega beð- in/n um að taka á þig aukna ábyrgð. Þú ættir endilega að samþykkja það því þú munt ekki eiga í neinum vandræð- um með að standa undir því. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Á næstu vikum muntu hafa mikla þörf fyrir að ferðast og víkka sjóndeildarhring þinn. Láttu það endilega eftir þér. Ef þú kemst ekki í burtu get- urðu kynnt þér eitthvað nýtt í nánasta umhverfi þínu. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú átt óvenju auðvelt með að fá lán eða aðra fyrirgreiðslu þessa dagana. Notaðu tæki- færið en gættu þess þó að fara ekki yfir strikið. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Sólin er beint á móti merkinu þínu og því gætirðu þurft á óvenju mikilli hvíld að halda. Taktu það rólega og einbeittu þér að nánustu samböndum þínum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú hefur þörf fyrir að skipu- leggja þig og koma hlutunum í lag í kring um þig. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Ástamálin líta vel út þennan mánuðinn. Hvort sem þú verður ástfangin/n eða leikur þér að saklausu daðri mun líf þitt örugglega verða áhuga- vert á næstunni. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Heimilið og fjölskyldan verða í brennidepli hjá þér næstu fjórar vikurnar. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. HVER Á SÉR FEGRA FÖÐURLAND Hver á sér fegra föðurland, með fjöll og dal og bláan sand, með norðurljósa bjarmaband og björk og lind í hlíð, með friðsæl býli, ljós og ljóð, svo langt frá heimsins vígaslóð? Geym, drottinn, okkar dýra land, er duna jarðarstríð. Hver á sér meðal þjóða þjóð, er þekkir hvorki sverð né blóð, en lifir sæl við ást og óð og auð, sem friðsæld gaf? Við heita brunna, hreinan blæ og hátign jökla, bláan sæ hún unir grandvör, farsæl, fróð og frjáls – við yzta haf. Hulda (Unnur Benediktsdóttir Bjarklind) LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 70 ÁRA afmæli. Ámorgun, föstudaginn 21. maí, verður sjötug Auð- ur Garðarsdóttir, Bárugötu 35, Reykjavík. Hún og eig- inmaður hennar, Jóhannes Bergsveinsson, læknir, taka á móti gestum á afmæl- isdaginn kl. 16–19 í Kirkju- hvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ. PUNKTAR eru mælikvarði á styrk handar – tommu- stokkur sem brugðið er á spilin, svo að ekki þurfi að treysta á tilfinninguna eina. En reyndir spilarar vita að punktarnir eru ekki ná- kvæmir í sama skilningi og tommustokkur smiðsins – skiptingin hefur sitt að segja, samlegan og sagnir mótherjanna. Oftast nær veitir ekkert af 25 punktum til að vinna þrjú grönd, en stundum dugir minna, jafn- vel mun minna. Norður gefur; NS á hættu. Norður ♠K102 ♥DG542 ♦K82 ♣D10 Vestur Austur ♠G843 ♠D65 ♥ÁK86 ♥93 ♦973 ♦Á54 ♣74 ♣Á8653 Suður ♠Á97 ♥107 ♦DG106 ♣KG92 NS eiga aðeins 22 punkta á milli handanna, en samt eru þrjú grönd augljóslega mjög góður samningur. Hjálpast þar allt að: milli- spilin í spaða og tíurnar í hinum litunum. En í upp- hafi leiks er vafasamt að nokkur eigi opnun við borð- ið! Spilið er frá Íslands- mótinu í paratvímenningi og á þremur borðum var spilið hreinlega passað út. En allmargir kusu þó að vekja á einu hjarta í norður. Í þeim hópi var Ljósbrá Baldursdóttir. Vestur Norður Austur Suður – 1 hjarta Pass 1 grand * Pass 2 lauf * Dobl 2 tíglar * Pass 2 hjörtu Pass 3 grönd Pass Pass Pass Makker hennar, Björn Eysteinsson, svaraði á kröfugrandi og endursögn Ljósbrár á tveimur laufum er margræð: sýnir ann- aðhvort sterk spil (minnst 16 HP) eða lágmarksopnun (með jafnri skiptingu, ell- egar laufi eða spaða til hlið- ar). Þetta er hins svokallaða sænska „norn“. Austur not- aði tækifærið og doblaði gervisögnina til að benda makker sínum á útspil í laufi. Björn leit framhjá doblinu að sinni og svaraði kerfisbundið með tveimur tíglum til að sýna 9–12 HP. Ljósbrá skýrði þá frá lág- markshendi með tveimur hjörtum, 11–15 punktum og flatri skiptingu. Eftir þessa þróun er kerf- issögn suðurs tvö grönd – áskorun í þrjú grönd með 11–12 punkta. En spil Björns höfðu batnað veru- lega eftir dobl austurs á tveimur laufum og hann ákvað að skjóta á þrjú grönd sjálfur, frekar en leggja það á makker að hækka tvö grönd í þrjú. Það reyndist vel, því níu slagir voru auðsóttir. E.s. Jaðarhendur eru oft skreyttar með lýsingarorð- unum góður/vondur eða fal- legur/ljótur. Í þessu felst hvorki siðferðileg né fag- urfræðileg skírskotun, held- ur er óbeint verið að taka inn í myndina skiptinguna og staðsetningu háspila. Eitt er athyglisvert við þetta spil. Bæði norður og suður eru með „ljóta“ 11 punkta. En þegar þessar ljótu 11-punkta hendur leggjast saman verður út- koman gullfalleg þrjú grönd! BRIDS Guðmundur Páll Arnars on DEMANTSBRÚÐKAUP. Í dag, fimmtudaginn 20. maí, eiga 60 ára hjúskaparafmæli hjónin Ingunn K. Þormar og Garð- ar P. Þormar, Maríubakka 28, Reykjavík. Þau verða að heiman í dag. 1. Rf3 Rf6 2. c4 c5 3. Rc3 Rc6 4. d4 cxd4 5. Rxd4 g6 6. e4 Bg7 7. Rc2 0–0 8. Be2 d6 9. 0–0 Rd7 10. Bd2 Rc5 11. f3 Rd4 12. Rxd4 Bxd4+ 13. Kh1 Bg7 14. Hc1 a5 15. b3 Bd7 16. Be3 Bc6 17. Dd2 He8 18. Hfd1 Be5 19. Rb5 Bg7 20. Hb1 Rd7 21. Bf1 b6 22. a3 Bb7 23. Hdc1 Bc6 24. Df2 Bb7 25. b4 axb4 26. axb4 Bc6 27. Rc3 Ha3 28. Rd5 Db8 29. c5 b5 30. Bg5 Bf8 31. Bf4 Ha6 32. cxd6 exd6 33. Hd1 Bg7 34. Dh4 Kh8 35. Bg5 He6 36. Hbc1 Rf8 37. Df4 Db7 38. Bh6 Ha4 39. Hb1 Be8 40. Dd2 Bxh6 41. Dxh6 Dc8 42. Rf4 Hf6 Staðan kom upp á pólska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu Lukasz Cybo- rowski (2.565) hafði hvítt gegn Piotr Murdzia (2.455). 43. Rh5! og svartur gafst upp enda taflið gjörtapað eftir 43. … gxh5 44. Dxf6+. Skákþing Norðlendinga verður haldið um helgina á Sauðárkróki og er nánari upplýsingar um mótið að finna á skak.is. SKÁK Helgi Ás s Grétars s on Hvítur á leik. EDEN - HVERAGERÐI Bjarni Jónsson listmálari hefur opnað sína árlegu sýningu og eru viðfangsefnin mjög fjölbreytt Opið 17.–31. maí. Afmælisþakkir Mínar innilegustu þakkir færi ég fjölskyldu minni og vinum fyrir góðar gjafir, blóm og skeyti í tilefni af 90 ára afmæli mínu. Lifið heil. Anna Steindórsdóttir Haarde.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.