Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 22
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Tölt og skeið | Ákveðið hefur verið að þrjátíu efstu töltarar landsins muni eiga þátttökurétt í töltkeppni LM 2004 á Hellu í sumar. Ekki verður um lágmarks- einkunn að ræða, heldur munu þeir þrjátíu sem hlotið hafa hæstar ein- kunnir í forkeppni í tölti á löglegum mót- um í ár komast að, segir á vef Bænda- samtakanna, bondi.is. Í skeiði verða það svo þeir 12 hestar sem hlotið hafa besta tíma í 150 m og 250 m skeiði á löglegum mótum á árinu, þ.e. 12 í hvorri grein. Í 100 m fljúgandi skeiði kom- ast 15 hestar að, þ.e. 15 bestu tímarnir í ár fengnir á löglegu móti. Þegar talað er um löglegt mót, er átt við mót þar sem keppt er eftir lögum og reglum LH og við aðstæður sem uppfylla skilyrði LH til mótahalds. Ætlunin er að birta reglulega stöðulista í þessum greinum fram að móti en nánari fréttir verður að finna á vefsíðu landsmóts- ins www.landsmot.is. Úr bæjarlífinu Meindýraplága | Heilbrigðisnefnd Suð- urnesja hefur í samþykkt gert athugasemdir við afskiptaleysi Umhverfisstofnunar af fisk- eldi Íslandslax hf. að Stað í Grindavík. Á fundi nefndarinnar á dögunum sagði fulltrúi Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja frá bréfaskrifum embættisins til Umhverf- isstofnunar vegna meindýraplágu við Ís- landslax í Grindavík. Í framhaldi af því var samþykkt að gera athugasemdir við af- skiptaleysi Umhverfisstofnunar. „Skortur á eftirliti og eftirfylgni vegna fráveitumála hefur valdið meindýraplágu í nánasta umhverfi fyrirtækisins. Slælegt eft- irlit stofnunarinnar er til þess fallið að þyngja störf heilbrigðisnefnda gagnvart öðr- um fyrirtækjum. Nefndin beinir því til stofn- unarinnar að hún taki á málinu þegar í stað.“ Auglýst hefur veriðeftir lögum í sam-keppni um Ljósa- næturlagið 2004. Lag og texti á að vera einkenn- islag fyrir menningar- og fjölskylduhátíð Reykja- nesbæjar sem haldin verður í byrjun sept- ember. Frestur til að skila inn lögum rennur út 18. júní. Fram kemur í frétt á heimasíðu Reykjanes- bæjar að öllum er heimil þátttaka. Aðalverðlaunin eru 400 þúsund krónur auk þess sem höfundur lagsins sem verður í öðru sæti fær 150 þúsund og verð- laun fyrir þriðja sætið eru 100 þúsund. Lag fyrir Ljósanótt Húsavík | Kiwanisklúbb- urinn Skjálfandi er sem fyrr öflugur bakhjarl Björgunarsveitarinnar Garðars á Húsavík. Ný- lega afhentu Kiw- anismenn sveitinni að gjöf sex höggþolna og vatnshelda sjónauka og fartölvu í bíla sveit- arinnar. Við sama tæki- færi var formlega afhent- ur slöngubátur ásamt utanborðsmótor. Morgunblaðið/Hafþór Björgunarsveitarmennirnir Guðmundur Flosi Arnar- son og Þórir Örn Gunnarsson ásamt Sigurgeiri Aðal- geirssyni úr Kiwanisklúbbnum Skjálfanda, við bátinn. Öflugur bakhjarl Stefán Valgeirssonvar Norður-Þingeyingum vil- hallur, m.a. varðandi vegagerð á Melrakka- sléttu. Það var Stefáni Þ. Þorlákssyni hugstætt og gramdist honum þegar flokksforystan sparkaði nafna sínum. Á kjördag var hann með for- ystumönnum á Hótel KEA en þegar hann ætl- aði að kveðja, þá héldu þeir að sér höndum, og- Stefán skrifað í gestabók- ina sem gekk um salinn: Ég hef vandlega íhugað eitt og álít það geti engan meitt þó við framsóknarmenn fleygjum eitt skipti enn því viti sem var aldrei neitt! Í hagyrðingaþætti Guð- mundar Valtýssonar í Feyki yrkir Dagbjartur Dagbjartsson: Ýmsa vísu gert ég gat sem góðir vinir muna. Oftast var þó eitthvert pat með aðra hendinguna. Vit Framsóknar pebl@mbl.is Grundarfjörður | Mótaröð Ís- landsmóts sjóstangveiðifélaga hófst með tveggja daga móti í Grundarfirði í umsjón Sjóst- angveiðifélags Reykjavíkur. Þetta er þriðja árið sem móta- röðin hefst í Grundarfirði. Keppendur fengu ágætt veður, þó var heldur meiri kaldi fyrri daginn og var þá ekki farið jafn djúpt og seinni daginn en þá var fiskurinn stærri og jafnari. Þátttakendur voru 65 talsins, 53 karlar og 12 konur. Þrettán bátar voru í för með mannskap- inn veiðidagana. Samtals voru dregin úr sjó rúm 24 tonn á sjós- töng þessa daga en mestur hluti aflans var þorskur. Aflahæstur karla var Pétur Sigurðsson, Sjóstangveiðifélagi Akureyrar, með 722 kg alls, en aflahæsta kona var Sigfríð Ósk Valdimars- dóttir, einnig frá SA, en hún dró samtals 696 kg. Með hæstan meðalafla báta var Birta SH með tæp 620 kg á stöng, skip- stjóri á Birtu var Kristinn Ólafs- son, Grundarfirði. Stærsta fisk mótsins dró Guðmundur Svav- arsson frá Sjóstangveiðifélagi Reykjavíkur, það var þorskur sem vó 13,630 kg. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Þeim stóra landað: Alls fengust um 24 tonn á sjóstöngina og var aflanum landað í Grundarfjarðarhöfn. Góð veiði á fyrsta mótinu Sjóstöng UNDIRRITAÐUR hefur verið samningur milli Fangelsismálastofnunar og Byrgisins líknarfélags um vistun afplánunarfanga á meðferðarheimili Byrgisins á Ljósafossi í Grímsnesi. Samkomulag um þetta tók gildi 1. desember sl. en hefur nú verið staðfest með undirritun samnings. Samkvæmt tilkynningu frá Byrginu er samningurinn afrakstur tilraunar um vist- un fanga sem hófst árið 2000 í Rockville og þótti gefa góða raun. Miðað er við að ekki verði fleiri en tveir til þrír fangar á meðferðarheimilinu hverju sinni og þeir verði að jafnaði ekki lengur þar en sex mánuði í senn. Forsendur fyrir vistun eru að fangi samþykki skilyrði Fangelsismálastofnunar og fari í einu og öllu eftir fyrirmælum hennar og Byrgisins. Fangar vistaðir í Byrginu ATVINNUMÁLANEFND Ísafjarðar- bæjar afhenti 18. maí sl. frumkvöðlaverð- laun ársins 2003. Fyrir valinu varð fyrir- tækið 3X-Stál á Ísafirði sem sérhæfir sig í framleiðslulausnum fyrir sjávarútveginn. Fyrirtækið á tíu ára afmæli í ár og hefur verið í örum vexti frá upphafi og alltaf skil- að hagnaði. Hjá 3X-Stál starfa um 25–30 manns. Aðalstöðvar þess eru á Ísafirði en dótturfyrirtæki er í St Johns í Kanada. Auk þess á 3X-Stál hlut í Rennex á Ísafirði sem er sérhæft renniverkstæði og fram- leiðir íhluti fyrir 3X-Stál auk annarra fyr- irtækja víða um land. Frumkvöðull á Ísafirði Morgunblaðið/Ómar Frá Ísafirði. Rangárþing eystra | Nú er í bígerð að reisa nýjan skála á Tind- fjallasvæðinu. Það eru björg- unarsveitin Dagrenning á Hvols- velli, björgunarsveit Austur-Landeyja og Flugbjörg- unarsveitin á Hellu sem reisa munu hinn nýja skála sem áætlað er að verði um 65 fermetrar að stærð. Skálinn mun koma í stað gamla skálans sem reistur var á árunum 1955–1956 af bændum og ýmsu áhugafólki um útivist á svæðinu. Í Tindfjöllum eru nú þrír skálar en hér er um neðsta skálann að ræða. Skipulags- og byggingarnefnd Rangárþings eystra fór ásamt byggingarfulltrúa sveitarfélagsins í boði björgunarsveitanna að skoða aðstæður á staðnum og hvar nýi skálinn verður staðsettur. Áætlað er að hann verði settur niður fyrir framan gamla skálann sem verður rifinn að verki loknu. Morgunblaðið/Steinunn Ósk Í Tindfjöllum: Hópurinn sem skoðaði aðstæður framan við gamla skálann. Nýr skáli rís í Tindfjöllum HÉÐAN OG ÞAÐAN Vorhreinsun í Garðabæ | Vorhreinsun lóða í Garðabæ hófst síðasta mánudag og lýkur á föstudag. Starfsmenn þjónustu- miðstöðvar verða á ferðinni þessa viku og fjarlægja garðaúrgang sem settur hefur verið í poka á gangstétt eða götu utan lóða- marka. Greinar og afklippur mega þó vera lausar en gott er að binda þær í búnt. Starfsmennirnir hafa undanfarna þrjá daga farið yfir allan bæinn og taka svo lokayfirferð á morgun, svo nú fer hver að verða síðastur.      
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.