Morgunblaðið - 20.05.2004, Page 25
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 25
- SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000
www.terranova.is
Akureyri, sími 461 1099
Súpersól til
Portúgal
16. júní
frá 29.995.-
Tryggðu þér síðustu sætin í sólina til Portúgal í maí eða júní á hreint ótrúlegum
kjörum í beinu flugi Terra Nova til Portúgal. Þú getur valið um viku eða tveggja
vikna ferð og dvalið við frábærar aðstæður, enda er sumarið komið í Portúgal
og auðvelt að njóta alls sem staðurinn hefur að bjóða. Og auðvitað nýtur þú
þjónustu fararstjóra Terra Nova allan tímann. Þú bókar ferðina og 3 dögum
fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir í fríinu þínu í Portúgal.
Kr. 29.995
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, í viku 26. maí
eða 16. júní. Innifalið flug, gisting og skattar.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800 á mann.
Kr. 39.990
M.v. 2 saman í gistingu í viku 26. maí eða 16.
júní. Innifalið flug, gisting og skattar.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Keflavík | Aðaltörnin hjá garðeigendum er á vorin. Þá
þarf að koma görðunum í gott horf og þá verður auð-
veldara að halda þeim við yfir sumarið.
Allir garðeigendur eru því með hugann við garðinn
þessa dagana. Þeir duglegustu hafa þegar tekið til
hendinni en hinir eru enn að safna kjarki og ætla bráð-
um út í garð. Kolbrún Sigurbergsdóttir sem býr við
Hringbraut í Keflavík er í fyrrnefnda hópnum. Hún var
að stinga upp blómabeð undir stóra trénu og garðálf-
urinn virtist ánægður með það.
Hjá flestum eru verkefnin næg. Ráðast þarf á ill-
gresið og hreinsa beðin. Planta blómum og trjám,
klippa og bera á. Svo sprettur grasið svo hratt að kom-
ið er að fyrsta slætti.
Morgunblaðið/Ásdís
Dugleg í garðvinnunni
Keflavíkurflugvöllur | Um tíu
starfsmönnum flotastöðvar varnar-
liðsins á Keflavíkurflugvelli verður
sagt upp störfum um næstu mán-
aðamót vegna hagræðingar í rekstri
Bandaríkjaflota. Nokkur ný störf
verða til annars staðar hjá flotastöð-
inni.
Flotastöð varnarliðsins hóf í
morgun að kynna fulltrúum stétt-
arfélaga fyrirhugaðar breytingar í
starfsliði. Hefur það í för með sér að
um tíu íslenskum starfsmönnum
verður sagt upp störfum. Í tilkynn-
ingu varnarliðsins er jafnframt tek-
ið fram að í athugun sé að nokkur
störf Bandaríkjamanna verði skipuð
íslenskum starfsmönnum á næst-
unni. Sagt er að auglýst hafi verið
eftir umsækjendum vegna rúmlega
tíu sumarstarfa í mötuneyti og á
skrifstofum og eftir sex iðnaðar-
mönnum í föst störf. Þá hafi um
tuttugu störf skapast hjá nýju
einkafyrirtæki sem nýlega hóf veit-
ingarekstur í varnarstöðinni.
Þeir sem missa vinnuna nú eru
skrifstofumenn og lagermenn, flest-
ir félagar í Verslunarmannafélagi
Suðurnesja. Guðbrandur Einarsson,
formaður félagsins, segir að þau
nýju störf sem talað sé um nýtist
ekki þeim mönnum sem nú verði
sagt upp og notar orðið sýndar-
mennsku um ummælin. Þetta séu
sumarafleysingastörf og tilfærslur
innan vinnustaða. Þá segir hann að
yfirlýsing um að Íslendingar fái
störf sem Bandaríkjamenn sinni nú
sé aðeins orð á blaði og hann vilji
sjá breytinguna gerast áður en
hann leggi trúnað á hana. Tilhneig-
ingin hafi hingað til verið önnur þar
sem vilji hafi verið til að ráða
Bandaríkjamenn í sem flest störf.
Uppsagnarfrestur mannanna sem
nú var sagt upp er frá einum og upp
í sex mánuði. Þeim verður veitt að-
stoð við aðlögun og atvinnuleit með
ýmsum hætti, að því er fram kemur
í tilkynningu varnarliðsins.
Uppsagnahrinu ekki lokið
Með þessum uppsögnum hefur
135 íslenskum starfsmönnum varn-
arliðsins verið sagt upp störfum.
Guðbrandur telur að uppsagnar-
hrinunni sé ekki lokið, ef miðað sé
við þann sparnað sem talað hafi ver-
ið um að flotinn þurfi að ná.
Tíu sagt upp hjá flotastöðinni
Sandgerði | Fjórir bæjarfulltrúar
frá Vogi á Suðurey í Færeyjum og
makar þeirra eru í heimsókn í Sand-
gerði. Bæirnir eru í vinabæja-
sambandi. Ákveðið var á fundi bæj-
arfulltrúa í gær að auka samskipti
félaga og stofnana til að rækta vina-
bæjasambandið betur.
Samskipti íbúa Vogs og Sand-
gerðis hófust á árinu 1957 þegar
Knattspyrnufélagið Reynir fór í
heimsókn til Færeyja. Eftir það
voru teknar upp heimsóknir á milli
bæjanna, meðal annars á vegum fé-
laga og skóla, og frá árinu 1987 hef-
ur verið formlegt vinabæjasamband.
Í Vogi eru um 1.480 íbúar og hefur
íbúafjöldinn staðið í stað á und-
anförnum árum.
Færeysku gestirnir munu skoða
eitt og annað á Suðurnesjum í ferð
sinni hingað. Þeir heimsóttu stofn-
anir í Sandgerði í gær og bæjarfull-
trúarnir funduðu.
Bæjarfulltrúar frá Vogi í Færeyjum í heimsókn í Sandgerði
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Vinir hittast: Færeysku gestirnir frá Vogi á Suðurey skoðuðu leikskólann Sólborg í Sandgerði og hér eru þeir
fyrir utan skólann ásamt leikskólastjóranum, bæjarstjóranum í Sandgerðisbæ og bæjarfulltrúum.
Ákveðið að efla samskiptin
STJÓRN Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum (SSS) mun ekki gera
tillögu um sameiningu sveitarfélaga
á svæðinu. Hefur þetta verið til-
kynnt til nefndar um sameiningu
sveitarfélaga.
Nefnd félagsmálaráðherra um
sameiningu sveitarfélaga óskaði eft-
ir samstarfi við landshlutasamtökin
um vinnslu tillagna um sameining-
arkosti. Stjórn SSS óskaði eftir áliti
sveitarfélaganna. Bæjarstjórnir
Grindavíkur, Sandgerðis og Garðs
lögðust á móti sameiningu, hrepps-
nefnd Vatnsleysustrandarhrepps er
enn með málið til athugunar og bæj-
arstjórn Reykjanesbæjar taldi sam-
einingu af hinu góða. Í ljósi þessara
svara ákvað stjórn SSS að gera ekki
tillögu um sameiningu á svæðinu, að
svo komnu máli.
„Mér finnst það mikilvægt að
þetta skyldi verða einróma niður-
staða stjórnar SSS og held að erfitt
verði fyrir sameiningarnefndina að
koma með tillögu um sameiningu á
þessu svæði eftir þetta,“ sagði Sig-
urður Jónsson, bæjarstjóri í Garði
og stjórnarmaður í Samtökum sveit-
arfélaga á Suðurnesjum, þegar rætt
var við hann um málið.
Sigurður sagði að mikil uppbygg-
ing væri í Garði og kvaðst sannfærð-
ur um að sjálfstætt sveitarfélag væri
forsenda hennar. Slík uppbygging
ætti sér ekki stað ef Garður væri til
dæmis hluti af Reykjanesbæ.
Efnt til íbúaþings
Hreppsnefnd Vatnsleysustrand-
arhrepps ákvað á síðasta fundi sín-
um að efna til íbúaþings um samein-
ingarmálin. Fram kemur í samþykkt
hreppsnefndarinnar að hún telur
nauðsynlegt fyrir sveitarfélög í land-
inu að skoða reglulega hvort ná megi
fram hagstæðari rekstri og betri
þjónustu við íbúa sveitarfélaga með
aukinni samvinnu eða eftir atvikum
sameiningu við önnur sveitarfélög.
Íbúar sveitarfélaga eigi að hafa
mikið um það að segja hvort samein-
ing við annað eða önnur sveitarfélög
sé talin fýsileg eður ei. „Með hliðsjón
af nýju átaki félagsmálaráðuneytis-
ins í sameiningu sveitarfélaga mun
hreppsnefnd standa fyrir íbúaþingi
um sameiningarmál. Hreppsbúum
verður þar gefið tækifæri til þess að
taka þátt í opinni umræðu um kosti
og galla sameiningar,“ segir í sam-
þykkt hreppsnefndarinnar.
Leggja ekki
fram tillögu um
sameiningu
Opin æfing | Léttsveit Tónlistar-
skóla Reykjanesbæjar, eldri deild,
verður með svokallaða opna æfingu
í dag, uppstigningardag. Æfingin
verður milli 15 og 17 á sal skólans
að Austurgötu 13 í Keflavík. Jafn-
framt mun Léttsveitin hafa opið
kaffihús á sama stað og selja kaffi
og heimabakaðar kökur við vægu
verði.
Léttsveitin mun um miðjan júní
halda í tveggja vikna tónleikaferð
til Bandaríkjanna og Bermúda og
er opna æfingin haldin í tilefni af
þeirri ferð.
Sveitina langar til þess að bjóða
Suðurnesjamönnum á æfinguna til
að hlýða á efnisskrá ferðarinnar og
til að sjá og heyra hvernig svona
hljómsveit æfir.