Morgunblaðið - 20.05.2004, Síða 29
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 29
Skógarhlíð 18, sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða nú spennandi ferð þann 5. júní til þessarar heillandi
borgar í 8 nætur. Hér getur þú kynnst fegurstu borg Evrópu, gamla
bænum, Hradcany kastala,
Karlsbrúnni, Wenceslas torginu, og
farið í spennandi kynnisferðir með
fararstjórum Heimsferða sem
gjörþekkja borgina. Á þessum tíma
skartar Prag sínu fegursta.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 29.950
Flugsæti með sköttum. Verð m.v.
netbókun. Símabókunargjald kr. 1.500.
Verð kr. 49.950
Flug og hótel í 8 nætur, m.v. 2 í
herbergi, Hótel ILF. Innifalinn
morgunverður, íslensk fararstjórn og
skattar. Verð m.v. netbókun.
Símabókunargjald kr. 1.500.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Stökktu til
Prag
5. júní - Hotel ILF
frá kr. 49.950
samkvæmt könnun á mataræði Ís-
lendinga,“ segir í skýrslunni.
Tekin voru 49 sýni frá 17 framleið-
endum úr 29 verslunum. Af 28 salt-
kjötssýnum voru 17 með nítrítmagn
yfir leyfilegum hámarksgildum,
samkvæmt aukaefnareglugerð.
Tekið af markaði
„Þarna er um að ræða veruleg frá-
vik frá leyfilegum hámarksgildum
fyrir nítrít í saltkjöti. Framleiðendur
þess saltkjöts sem greindist með
nítrít yfir leyfilegum hámarksgildum
hafa þegar stöðvað dreifingu á við-
komandi vörum og eru að endur-
skoða framleiðsluferla.
Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga
mun fylgjast með þeim úrbótum sem
framleiðendur gera og taka sýni af
saltkjöti á markaði á næstu mánuð-
um,“ segir enn fremur í skýrslunni.
Tekið var 21 sýni af söltuðu og eða
reyktu kjöti og fór ekkert þeirra yfir
leyfilegt hámark fyrir nítrít. Salt-
hlutfall mældist hins vegar 1,7–6,3%.
Framleiðendur sem sýni voru tek-
in hjá eru Borgarnes kjötvörur, Búr-
fell, Bautabúrið, Ferskar kjötvörur,
Fjallalamb, Gæðafæði, Holta-
Reykjagarður, Kjarnafæði, Kjöt-
kaup, Kjötsel, Kjötsmiðjan, Kjöt-
vinnsla B. Jensen, Kjötvinnsla Esja,
Norðan heiða, Norðlenska, Síld og
fiskur og Sláturfélag Suðurlands og
Bónus.
RÚM 60% saltkjötssýna innihéldu
nítrít yfir leyfilegum hámarksgild-
um, samkvæmt mælingum í eftirliti
Umhverfisstofnunar og heilbrigðis-
eftirlits sveitarfélaga. Stuðst er við
hámarksgildi í reglugerð um auka-
efni í matvælum og er leyfilegt há-
mark nítríts 100 mg/kg.
Mælt var magn salts og nítríts í
kjötvörum og voru annars vegar tek-
in sýni af kjötvörum í kringum
sprengidag og hins vegar tekin sýni
af reyktu og/eða söltuðu kjöti og
unnum kjötvörum. Heilbrigðiseftir-
lit í Hafnarfirði, Kópavogi, Umhverf-
is- og heilbrigðisstofa Reykjavíkur
og heilbrigðiseftirlit Kjósarsvæðis,
Norðurlands eystra og Austurlands
tóku þátt í verkefninu.
Í skýrslu Umhverfisstofnunar
segir að hlutfall salts í saltkjötssýn-
um hafi mælst 2,6%–7,4%, sem jafn-
gildir frá 2,6 g í 7,4 g í 100 g af vöru.
„Matvæli eins og smurostur, unn-
ar kjötvörur, morgunkorn, popp-
korn, pakkasúpur og -sósur, nasl,
niðursoðnar og niðurlagaðar vörur
og aðrir tilbúnir réttir geta innihald-
ið mikið af salti. Salt inniheldur natr-
íum sem meðal annars getur valdið
hækkuðum blóðþrýstingi. Manneld-
isráð hefur nýlega breytt ráðlegg-
ingum sínum og mælir með því að
saltneysla sé ekki meiri en fimm
grömm á dag. Meðalneysla Íslend-
inga var 8,9 g af salti á dag árið 2002,
Morgunblaðið/Ásdís
Saltkjötssýni voru tekin í verslunum í kringum síðasta sprengidag.
Umhverfisstofnun og heilbrigðis-
eftirlit athuga kjötvörur
Nítrít yfir hámarks-
gildum í rúmum
60% saltkjötssýna
ALMENNT eru litlar breytingar á
meðalverði ávaxta og grænmetis
milli apríl og maí, samkvæmt verð-
könnun Samkeppnisstofnunar, sem
gerð var 10. maí síðastliðinn.
„Verðlag á ávöxtum og grænmeti
hefur þannig haldist svipað um
nokkurt skeið, en rétt er að taka
fram að verð á grænmeti og ávöxtum
er sveiflukennt og ræðst meðal ann-
ars af verði á erlendum mörkuðum,
uppskeru og árstíma,“ segir í niður-
stöðum könnunarinnar.
Í mörgum tilvikum er mikill verð-
munur milli verslana, bendir Sam-
keppnisstofnun ennfremur á.
„Mikilvægt er að neytendur geri
sér grein fyrir þessum verðmun og
versli þar sem verðið er lágt. Með því
móti veita þeir aðhald og stuðla þar
með að lægra vöruverði. Í meðfylgj-
andi töflu má sjá dæmi um mikinn
mun á lægsta og hæsta verði nokk-
urra tegunda grænmetis og ávaxta.“
Nánari upplýsingar um könnunina
er að finna á www.samkeppni.is
!"
#
$%
&' ("
! )
*
Litlar breytingar á ávaxta-
og grænmetisverði
LISTIR
ÞJÓÐLÖG og madrígalar, þ.e.
fjölradda lög frá gullöld kórpólýfóní-
unnar á 16. öld, voru á boðstólum á
fjölsóttum vortónleikum Kammer-
kórs Hafnarfjarðar í söngvænum
hálfmánasal tónlistarskóla bæjarins.
Upp til hópa mjög falleg lög, en líka
fjölbreytt, þar sem söngaðal alþýðu í
framúrskarandi útsetningum og
sumir fremstu fjölröddunarmeistar-
ar tónsögunnar lögðust á eitt. Ís-
lenzku þjóðlögin fimm voru flest af
kyrrlátari barnagælusortinni nema
„kamikaze“-sjóarastemman Ég að
öllum háska hlæ (Hallgrímur Helga-
son) og hið vel mótaða Veröld fláa
(Hjálmar H. Ragnarsson). Bezt
tókst þó síðasta lagið, Hættu að
gráta hringaná, í ferskri útsetningu
Hafliða Hallgrímssonar.
Ítalskir madrígalar voru næsti lið-
ur; tveir eftir Vecchi, einn eftir Mar-
enzio og tveir eftir tímamótahöfund-
inn Monteverdi er byrjaði í
endurreisn og endaði í barokki. Bezt
heppnaðist Lasciate mi morire hans,
en annars virtist frekar dapur hljóm-
ur yfir flestu, jafnvel þótt inntónun
væri mjög örugg, enda bjargaði hún
miklu. Það sem maður saknaði mest í
ítölsku – og ekki síður í ensku madrí-
gölunum á eftir – var fyrir utan inn-
lifaðri textatjáningu einkum og sér í
lagi meira fjaðrandi portató, þó að
tenútósöngur kórsins félli vel að
hægari íslenzku þjóðlögunum og
þeim amerísku í lokin. Að ekki sé
minnzt á munaðarvöru eins og
sveigjanlega mótun í tíma og styrk,
sem reynist að vísu iðulega ærið
tímafrek í æfingu og því meira ein-
kennandi fyrir kóra er koma oftar
fram. Hin kerskna „málaliðakvöld-
lokka“ („Landsknecht-Ständchen“)
Orlandos di Lasso, Matona mia cara,
þar sem ástarbrimillinn neðan svala
telur upp fágunarleysi sitt sér til
meðaumkvunarauka líkt og í amer-
íska ellismellinum Don’t know much
about history, rann hins vegar hug-
ljúft niður, nema hvað styrkand-
stæður „bergmála“ voru of óskýrar.
Ólíkt hofferðugri var lútusöngur/
kórlag Dowlands Come again fyrst
eftir hlé, og megininntak hans inn-
pakkað bifgeirskri hæversku. Því þó
að nútímaaukamerking „to come“
hafi varla verið til um 1600 kom „to
die“ í staðinn, þar eð syndsamlegar
ögurstundir hýnætur urðu til frá-
dráttar ævitíma skv. ríkjandi hjátrú.
Heldur daufara var yfir Go crystal
teares hans, en Fine knacks for la-
dies var laufléttur og vantaði aðeins
fjaðurmagnaðra portató. Hið bráð-
fallega kórlag Thomasar Tallis If ye
love me kom og vel út. „Balet“-
kenndur madrígal Morleys, You that
want to my pipes, reis þó hæst úr
ensku deildinni, einkum fyrir for-
söngkonurnar í sópran er kapell-
umeistari þeirra tíma hefði ekki hik-
að við að láta ræna í sinn kór.
Niðurlag tónleikanna skartaði
tveim afbragðsgóðum útsetningum á
amerískum þjóðlögum, vöggusöng-
num Black sheep (John Rutter) og
Shenandoah (James Erb) sem mun
„sea shanty“ vinnusöngur, nánar til-
tekið akkerisvindulag, þar sem út-
setjarinn notaði skemmtilega þétt-
skaraðan kanon-rithátt í seinni
hluta, líkt og til að undirstrika báru-
fall. Hér var mjög fallega sungið, og
bar jafnvel minna á karlaundirvikt
kórsins en tölur hermdu.
Raddir þjóðanna
TÓNLIST
Hás alir
Vortónleikar Kammerkórs Hafnarfjarðar.
Stjórnandi: Helgi Bragason. Sunnudag-
inn 16. maí kl. 20.
KÓRTÓNLEIKAR
„Hér var mjög fallega sungið,“ segir meðal annars um tónleika Kammerkórs Hafnarfjarðar um liðna helgi.
Ríkarður Ö. Páls s on
SAGNFRÆÐINGAFÉLAG Íslands
og Félag þjóðfræðinga á Íslandi
halda landsbyggðarráðstefnu á
Stokkseyri og Eyrarbakka á laug-
ardag kl. 9.30. Ráðstefnan ber yf-
irskriftina Menning og mannlíf við
Ströndina. Flutt verða 11 erindi
sem snerta sögu og menningu
suðurstrandarinnar og lágsveita
Árnessýslu, auk kynninga á menn-
ingarstofnunum í héraði.
Ráðstefnan er öllum opin.
Dagskrá og nánari upplýsingar
má finna á vefsvæði Sagnfræðinga-
félags Íslands, www.akademia.is/
saga.
Sagnfræðingar
halda ráðstefnu
Grillréttir, Asíuréttir, Fljótlegir réttir,
Tertur og Salöt nefnas t fimm nýjar
matreiðs lubækur há PP forlagi.
Agnes Vogler og Friðsemd Guðjóns-
dóttir þýddu úr þýs ku. Meðal upp-
s krifta í As íuréttum má nefna djúp-
s teikt wan-tan, s jávarréttarkarrí,
s atays puot og mangó las s i. Í Fljótleg-
um réttum tekur engin upps krift
meira en hálftíma. Í bókinni um Grill-
rétti er bæði kryddleginn fis kur, græn-
meti, ávextir, s ós ur og ídýfur. S alat-
bókin hefur að geyma upps kriftir að
ýmis s konar s alötum, bæði s em bit-
um á milli mála, forréttir og s em aðal-
réttir. Tertubókin hefur að geyma kök-
ur og tertur s em Þjóðverjar eru
annálaðir fyrir.
Hver bók er 96 bls. Verð: 990 kr.
stk.
Matur
♦♦♦