Morgunblaðið - 20.05.2004, Side 30
LISTIR
30 FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Á LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík
verður sýning á ljósmyndaseríu
myndlistarkonunnar Roni Horn
opnuð í miðrými Kjarvalsstaða kl.
15 í dag. Sýningin heitir Hún,
hún, hún og hún og er um að ræða
myndaseríu úr búningsklefum
Sundhallar Reykjavíkur sem Roni
Horn varpar nýju ljósi á. Sundhöll
Reykjavíkur hannaði Guðjón Sam-
úelsson á árunum 1929–37 en hún
hefur verið Roni Horn afar hug-
leikið viðfangsefni.
Í frétt frá Listasafni Reykjavík-
ur segir m.a.: „Í verkinu Hún,
hún, hún og hún sem sýnt er á
Kjarvalsstöðum er fjölmörgum
myndum úr kvennaklefa Sundhall-
arinnar raðað saman líkt og í
bútasaumsteppi. Uppröðunin
minnir þannig á brotakennda
skynjun okkar á umhverfinu, í
gegnum augað sem sífellt blikkar.
Dularfullt völundarhús búnings-
klefanna er torskilið í þessum
myndum, eins og það er jafnvel
fyrir þá sem eru á staðnum. Með
þessum myndum sýnir Roni sam-
spil dyra, hurða og veggja sem sí-
fellt breytast, því þegar eitt rými
opnast er öðru lokað. Uppsetning
myndanna í heila fleti er líka mik-
ilvæg til að gefa áhorfandanum
skýrari mynd af rýminu, sem þó
heldur áfram að rugla hann.“
Ræktar tengsl
við land og þjóð
„Bandaríska listakonan Roni
Horn er einn þeirra Íslandsvina
sem hafa um langt skeið ræktað
tengsl sín við land og þjóð. Hún er
án efa einn virtasti myndlist-
armaður samtímans og ein fárra
kvenna sem náð hafa að kveðja
sér hljóðs í veröld sem hún segir
engan þurfa að fara í grafgötur
um að er mun hliðhollari körlum
en konum.“
Roni Horn fæddist í New York
árið 1955, og í sinni fyrstu utan-
landsferð árið 1975 kom hún til Ís-
lands. Hún hefur síðan komið
hingað reglulega, á hér nú sitt
annað heimili og fjölda vina og
kunningja um allt land.
„Í huga Roni Horn er Ísland
ákveðið mótvægi við stórborgina
New York – og nú, eftir nær 30
ára samband við landið, telur hún
heimsóknir hingað sér nauðsyn-
legar einfaldlega til að halda lífinu
í jafnvægi. Þau verka hennar sem
tengjast Íslandi eru fyrst og
fremst ljósmyndir og textar, og
gefnar hafa verið út ýmsar bækur
sem tengjast slíkum viðfangs-
efnum. Þannig telur bókaröðin To
Place nú átta bækur, en í þeim öll-
um hefur Ísland verið helsti efni-
viðurinn,“ segir í frétt safnsins.
Sýningin stendur til 22. ágúst.
Brotakennd
skynjun á
umhverfinu
Kvennaklefar Sundhallarinnar séðir með augum listakonunnar Roni Horn.
ANNA Klara Georgsdóttir sópran
og Sæberg Sigurðsson bassi halda
söngtónleika í Tónlistarhúsinu Ými
við Skógarhlíð kl. 20 í kvöld. Tónleik-
arnir eru liður í 8. stigs prófum frá
Nýja tónlistarskólanum. Þau eru
nemendur Gunnars Guðbjörnssonar.
Á efnisskránni eru m.a. ensk, þýsk
og íslensk sönglög, aríur og sam-
söngsatriði úr óperum eftir W.A.
Mozart og lög úr söngleikjum eftir
G. Gershwin.
Undirleikarar á píanó eru Bryn-
hildur Ásgeirsdóttir og Guðbjörg
Sigurjónsdóttir.
Söngtón-
leikar í Ými
SÝNINGIN Bókverk – bókalist
verður opnuð í Handverk og hönnun,
Aðalstræti 12 í dag. Til bókverka
teljast bækur sem eru einstakar,
handgerðar eða fjölfaldaðar í tak-
mörkuðu upplagi. Bækurnar eru
sjálfstæð og fullgerð verk þar sem
form og innihald haldast í hendur við
listhandverk bókagerðar.
140 verk voru send inn í sam-
keppni sem var haldin. Dómnefnd
valdi úr innsendum verkum og munu
um fimmtíu verk frá þrjátíu og fjór-
um aðilum verða á sýningunni.
Sýningin er til 13. júní. Opin frá 13
til 17 alla daga nema mánudaga.
Bókverk
á sýningu
♦♦♦
STARF forstöðu-
manns Kynningar-
miðstöðvar íslenskr-
ar myndlistar (KÍM)
hefur verið auglýst
laust til umsóknar
og rennur umsókn-
arfresturinn út nú
um mánaðamótin. Í
auglýsingu sem birt-
ist í Morgunblaðinu
á dögunum kemur
fram að hin nýstofn-
aða Kynningarmið-
stöð íslenskrar
myndlistar sé sjálfs-
eignarstofnun með
sérstaka stjórn og
að markmið stofnunarinnar sé að
kynna íslenska myndlist erlendis
og auka þátttöku íslenskra mynd-
listarmanna í alþjóðlegu mynd-
listarstarfi. Fram kemur einnig
að forstöðumaður sé yfirmaður
stofnunarinnar í fullu starfi og að
viðkomandi verði ráðinn af stjórn
hennar til fimm ára í senn, en
þetta er í fyrsta sinn sem ráðið er
í stöðuna.
Stjórn KÍM er skipuð Ingi-
björgu Pálmadóttur sem er for-
maður, en hún var tilnefnd af
menntamálaráðuneytinu, dr. Ólafi
Kvaran fyrir hönd listasafnanna,
en hann er varaformaður í stjórn-
inni, Elínu Flygenring sem til-
nefnd var að utanríkisráðuneyt-
inu og þeim Helga Þorgils
Friðjónssyni og Sigrúnu Ingu
Hrólfsdóttur fyrir hönd Sam-
bands íslenskra myndlistarmanna
(SÍM).
Samkvæmt stofnskrá KÍM
(sem nálgast má t.d. á vef SÍM á
slóðinni: sim.is) er ljóst að for-
stöðumanni er ætlað að móta
starfsemi stofnunarinnar jafn-
framt því að sjá um daglegan
rekstur og stjórn fjármála KÍM í
umboði stjórnar. Hann á að vinna
að fjáröflun, undir-
búa gerð fjárhags-
áætlana og annast
reikningsskil, auk
þess að stýra fund-
um fagráðs KÍMs. Í
auglýsingunni er
ekki kveðið á um
neinar menntunar-
eða hæfniskröfur, en
að sögn Ólafs Kvar-
an var ákveðið að
hafa auglýsinguna
frekar opna. „Með
því vonumst við til
að fá sem breiðastan
hóp umsækjenda.
Við gerum í sjálf-
ur sér engar formlegar mennt-
unar- eða hæfniskröfur, en ég
myndi segja að við séum að leita
að manneskju sem hafi góða
þekkingu og yfirsýn yfir mynd-
listarheiminn auk þess að geta
sinnt kynningarmálum á kraft-
mikinn hátt. Út frá menntun og
reynslu umsækjenda mun stjórn-
in síðan velja þann sem okkur
þykir líklegastur til að sinna því
hlutverki sem forstöðumanni
KÍM er ætlað.“
Að sögn Ólafs er ljóst að for-
stöðumanni verði ætlað að móta
hina listræna stefnu stofnunar-
innar í samvinnu við stjórnina.
„Það má segja að miklar vænt-
ingar séu á forstöðumanninn um
að hann gegni þessu stefnumót-
unarhlutverki sínu ásamt stjórn-
inni, bæði hvað varðar verkefni
og aðferðir.“
Góð sambönd
erlendis kostur
Ólafur minnir á að markmið
KÍM sé fyrst og fremst að kynna
íslenska myndlist erlendis og
auka þátttöku íslenskra myndlist-
armanna í alþjóðlegu myndlist-
arlífi. „Væntanlegur forstöðu-
maður ber því mikla ábyrgð á því
að stuðla að því að kynna ís-
lenska myndlist fyrir umheimin-
um og ekki síst vinna að því að fá
erlenda aðila hingað til lands og
veita þeim bæði þá þjónustu og
upplýsingar sem þeir þurfa.“
Að sögn Ólafs væri það vissu-
lega ótvíræður kostur ef umsækj-
andinn hefði annars vegar yfirsýn
yfir erlent myndlistarlíf og góð
sambönd inn í myndlistarheiminn
erlendis. „Það væri auðvitað
kostur, en samt verður að gera
ráð fyrir því að væntanlegur for-
stöðumaður hafi alla möguleika á
að þróa þessa stofnun og starfs-
umhverfi sitt.“
Aðspurður segir Ólafur það vel
koma til greina að ráða útlending
í starf forstöðumanns og bendir á
að staðan hafi verið auglýst í er-
lendum listtímaritum.
Í fyrrnefndri stofnskrá KÍM
kemur fram að forstöðumaður
sjái um að ráða annað starfsfólk
stofnunarinnar. Spurður hvor
frekari mannaráðningar séu fyr-
irhugaðar svarar Ólafur því til að
þær séu ekki beint á döfinni en
að málið verði vissulega skoðað
um leið og starfsemi KÍM sé
komin í gang, enda sé þá fyrst
hægt að meta hverjar hinar raun-
verulegu þarfir stofnunarinnar
eru.
Aðspurður hvenær ráðgert sé
að væntanlegur forstöðumaður
taki við störfum svarar Ólafur að
það verði vonandi sem allra fyrst.
Það fari einfaldlega eftir því hvað
stjórnin er fljót að fara yfir um-
sóknir og komast að niðurstöðu,
en í stofnskránni er kveðið á um
að samþykki allra stjórnarmanna
þurfi fyrir ráðningunni. Fyrir
áhugasama má þess að lokum
geta að umsóknir skulu berast
stjórn KÍM í Hafnarstræti 16 í
Reykjavík fyrir 1. júní nk.
Starf forstöðumanns Kynningarmiðstöðvar
íslenskrar myndlistar auglýst laust til umsóknar
Ætlað að móta
starfsemina
Ólafur Kvaran
DAGSKRÁ Óperunnar á vormiss-
eri 2004 lauk með sýningu á
Carmen á Eskifirði 14. maí sl.
Undirbúningur næsta starfsárs er
kominn í fullan gang og verða
stærstu verkefni vetrarins 2004–
2005 óperan um morðóða rak-
arann Sweeney Todd eftir Steph-
en Sondheim og Tosca eftir Pucc-
ini.
Sweeney Todd verður frum-
sýnd 8. október en þetta er í
fyrsta sinn sem sú ópera er sett
upp hér á landi og jafnframt
fyrsta verk Sondheims sem hér
er sett á svið, en verk hans sjást
reglulega á fjölum leikhúsa og
óperuhúsa í Evrópu og Banda-
ríkjunum. Óperan var frumsýnd í
New York árið 1979 og hefur
verið sýnd víða um heim á síðast-
liðnum tveimur áratugum. Verkið
hefur hvarvetna vakið mikla at-
hygli enda umfjöllunarefnið
krassandi í meira lagi.
Sweeney Todd hefur snúið
heim til London til að hefna
harma. Hann tekur upp fyrri iðju
sem bartskeri, en nú sker hann
fleira en hár og skegg og eiga
ekki allir viðskiptavinir aft-
urkvæmt úr stólnum hjá honum.
Á neðri hæðinni hefur frú Lovett
nú loks fengið úrvals hráefni í
gómsætar kjötbökur sínar sem
seljast hraðar en nokkru sinni
fyrr. Óhætt er að segja að sagan
sé blóðug og grimm en þó ein-
kennist óperan af leiftrandi húm-
or og litríkum persónum. Sögu-
sviðið er London á tímum
iðnbyltingarinnar, þar sem Lund-
únaþokan alræmda er þykkari en
nokkru sinni og persónurnar
stjórnast af heitum og sterkum
tilfinningum. Margir telja að sag-
an sé byggð á raunverulegum at-
burðum.
Leikstjóri verður Magnús Geir
Þórðarson og hljómsveitarstjóri
Kurt Kopecky. Snorri Freyr
Hilmarsson
hannar leik-
mynd, Filippía
Elísdóttir bún-
inga og Þórður
Orri Pétursson
hannar lýsingu.
Gísli Rúnar
Jónsson vinnur
nú að íslenskri
þýðingu á lausu
máli og bundnu.
Með titilhlut-
verkið, Sweeney
Todd, fer Ágúst
Ólafsson, og er
þetta fyrsta
hlutverk hans
hjá Íslensku óp-
erunni. Ingveld-
ur Ýr Jónsdóttir
syngur hlutverk
frú Lovett og í
öðrum helstu hlutverkum eru
Maríus Sverrisson, sem syngur
nú í fyrsta sinn í Íslensku óp-
erunni, Hulda Björk Garð-
arsdóttir, Davíð Ólafsson, Þor-
björn Rúnarsson, Snorri Wium,
Sesselja Kristjánsdóttir og Örn
Árnason leikari, en sá síðast-
nefndi þreytir nú frumraun sína
á sviði Óperunnar.
Elín Ósk syngur Toscu
Tosca verður frumsýnd í febr-
úar 2005. Leikstjóri verður Jamie
Hayes og hljómsveitarstjóri er
Kurt Kopecky. Þórunn María
Jónsdóttir hannar búninga, Will
Bowen leikmynd og Björn Berg-
sveinn Guðmundsson lýsingu.
Ráðning söngvara í helstu hlut-
verk er langt komin og má þar
nefna að Elín Ósk Óskarsdóttir
mun syngja titilhlutverkið, Toscu.
Hlutverk Cavaradossi verður í
höndum Jóhanns Friðgeirs Valdi-
marssonar og Ólafur Kjartan Sig-
urðarson fer með hlutverk
Scarpia.
Íslenska óperan leggur drög að
starfsemi sinni á næsta leikári
Sweeney Todd
og Tosca stærstu
verkefni ársins
Elín Ósk
Óskarsdóttir
Ágúst Ólafsson