Morgunblaðið - 20.05.2004, Side 32

Morgunblaðið - 20.05.2004, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Verkefninu Hug og heilsu varhrundið af stað veturinn2001–2002 á Seltjarnarnesiog virðist þegar hafa gefið góða raun. Nú eru skólarnir orðnir sex, í Mosfellsbæ, Akureyri, Reykja- nesbæ, Garðabæ og Reykjavík. Í vetur tóku um 80 níundu bekkingar þátt í verkefninu, þar sem þeim er kennt að takast á við neikvæðar hugsanir í þeim tilgangi að fyr- irbyggja þunglyndi. Eiríkur Örn Arnarson, for- stöðusálfræðingur sálfræðiþjónustu vefrænna deilda á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi, segir að sjaldgæft sé að þunglyndi greinist fyrir fimm- tán ára aldur, en á því aldursskeiði snaraukist tíðni þunglyndis. Þá komi sömuleiðis kynjamunurinn í ljós, en þunglyndi er um helmingi algengara meðal stúlkna en drengja. „Sú hugmynd kviknaði fyrir nokk- uð löngu hvort ekki væri hægt að koma í veg fyrir þessa miklu aukn- ingu með því að grípa inn í á þessum aldri,“ segir Eiríkur Örn, en hug- myndina að verkefninu fékk Eiríkur í félagi við bandarískan samstarfs- mann sinn, W. Edward Craighead, prófessor við Colorado-háskóla. Læra að takast á við þunglyndi Unnið er eftir aðferðum hug- rænnar atferlismeðferðar, þar sem er lögð áhersla á sálræna og fé- lagslega þætti og samspil ein- staklingsins við umhverfið; það er hvernig einstaklingurinn tekst á við hugsanir sem á hann leita í daglegu lífi og starfi. „Einstaklingurinn lærir hvernig hann á að takast á við þunglyndi, ef og þegar það býr um sig síðar. Lyfjameðferð við þunglyndi er ekki talin virka á sama hátt hjá börnum og ungmennum og hjá fullorðnum. En við getum notað sálræna og fé- lagslega íhlutun fyrir forvarnir,“ segir Eiríkur Örn. Hann segir að rannsóknir hafi sýnt að hugræn at- ferlismeðferð standist samanburð við lyfjameðferð á þunglyndi. Oft gefi góða raun að nota báðar með- ferðirnar saman. Niðurrifsþankagangur hættulegur Rannsóknir hafa bent til þess að algengi meiriháttar þunglyndis sé á bilinu 15–22% meðal ungmenna á aldrinum 15–21 árs í Evrópu, Bandaríkjunum og Japan. Banda- rískar rannsóknir hafa sýnt að um fjórðungur 21 árs ungmenna hefur þegar fengið eitt þunglyndiskast um ævina. Eiríkur Örn segir að rann- sóknir sýni að þunglyndi sé að fær- ast í aukana, Alþjóðaheilbrigð- isstofnunin spái því að árið 2020 verði þunglyndi einn alvarlegasti heilbrigðisvandi heimsins. Eiríkur Örn segir að talið sé að um helmingur ungmenna sem grein- ist með mörg einkenni þunglyndis á aldrinum 14–15 ára fái fyrsta þung- lyndiskastið um tvítugt. Neikvæður þankagangur, sem einkennir þung- lyndi, mótist snemma á táningsaldri og jafnvel fyrr. Með neikvæðum þankagangi er átt við þegar fólk túlkar margt á neikvæðan hátt og skellir gjarnan skuldinni af því sem miður fer á sig. „Það eru vísbendingar um að því fyrr sem þunglyndi býr um sig því alvarlegra kunni það að verða og að þunglyndi sem býr um sig á unga aldri þróist út í það að verða mun al- varlegra en það sem kemur fram síðar á lífsleiðinni. Batahorfurnar eru jafnframt meiri því fyrr sem brugðist er við og eru afleiðingar þunglyndiskasts hjá unglingum gjarnan mun alvarlegri en hjá full- orðnum.“ Eiríkur Örn bendir á að einnig hafi verið sýnt fram á tengsl milli þunglyndis, reykinga og áfeng- isneyslu og að krakkar sem hafi ein- kenni þunglyndis heltist frekar úr lestinni í skóla, lendi frekar í einelti og fleira. Rjúfa vítahringinn Eiríkur Örn segir að Hugur og heilsa snúist um að rjúfa vítahring sem hætt er við að þeir sem temja sér niðurrifsþankagang festist í. „Markmiðið er að leiðrétta bjagaðar hugsanir og skoðanir, en eftir því sem verkefninu vindur fram og skilningurinn dýpkar læra þau að bera kennsl á neikvæðar eða sjálf- virkar hugsanir og hugrenningar. Þannig læra þau að greina og skilja tengsl hugsana, tilfinninga og hegð- unar, jafnframt því að vega og meta rök með og á móti bjöguðum hug- renningum.“ Sem dæmi um niðurrifsþankagang og hvernig hann getur skapað víta- hring nefnir Eiríkur hvernig fólk túlkar það ef það mætir gömlum skólabróður sem ekki heilsar því. Milljón ástæður geti verið fyrir því að gamli skólabróðirinn heilsaði ekki, en sá sem er fastur í vítahring neikvæðra þanka hugsi einhvern veginn á þessa leið: „Hann heilsaði mér ekki af því að ég er svo leið- inlegur og það vill líka enginn tala við mig.“ Viðkomandi sjái þetta sem staðfestingu á því að enginn vilji tala við hann og hann fari því að forðast aðra enn frekar og verði enn stað- fastari á þeirri skoðun að hann sé ómögulegur. Þannig festist ein- staklingurinn í neikvæðum þanka- gangi og vanlíðunin vindi upp á sig. Mikilvægt að byrgja brunninn Eiríkur segir tilganginn með Hug og heilsu tvíþættan. Annars vegar að rannsaka þunglyndi hjá ungling- um og hins vegar meta árangur hug- rænnar atferlismeðferðar til að fyr- irbyggja þunglyndi. „Það er svo mikilvægt að byrgja brunninn, því eftir að ferlið er farið af stað hefur það tilhneigingu til að endurtaka sig. Við verðum að byrja nógu snemma og ná krökkunum ungum, áður en þu sig. Það má segja a þekkt að hægt sé a þróun hjarta- og æ svipað hefur verið sjúkdóma. Tannhei t.d. miklu betri en það er vegna þess ið kennt að hirða u það hefur lítið sem til að reyna að fyri geðsjúkdóma og þa svo spennandi við þ Hugur og heilsa 2001–2 að loknum f verður verkefninu til 100 ungmenni er rauna- og samanbu Eiríkur Örn segi efnið hefjist séu sp lagðir fyrir nemend ar og þannig séu þ sem hafa ákveðin e lyndis fundnir. Han kenni þunglyndis f 30% ungmenna á þ er síðan boðið í gre sem sálfræðingur, að rannsókninni að við krakkana og gr kvæmt skilmerkjum læknafélagsins. Kr dreift í tilrauna- og arhóp. Virðist ber Eiríkur Örn segi vandamál en þungl þessum viðtölum, þ konar hliðarafurð v ekki hafi verið hug haflega. Þannig ha greinst með áfengi vanda, átröskun, at annan vanda. Þessu vísað í sérhæfð úrr Tilraunahópnum upp á námskeið sem vikur. Sálfræðingu efnið, þar sem stuð atferlismeðferð. Kr fræddir um þungly aðferðum hægt er það. Þeim er þanni hugsanir sem valda finna mótrök við þe Eiríkur Örn segi fylgjast með hópun sautján ára aldurs hvort færri hafi fen iskast í hópi þeirra skeiðið en hinum s fengu. Þótt rannsó lokið hafi þegar ko árangur. Þannig ha eftirfylgd á hópunu ið til kynna að þeir skeiðið hafi síður fe iskast en þeir sem fengu. „Það virðist um að námskeiðið Markmið verkefnisins Hugar og heilsu er að fyrirbyggja Kennt að takast á við neikvæðar hugsanir „Einstaklingurinn læ það býr um sig síðar hátt hjá börnum og ræna og félagslega í Vísbendingar eru um að þunglyndi sem býr um sig á unga aldri þróist út í að verða mun al- varlegra en það sem kemur fram síðar á lífs- leiðinni. Eiríkur Örn Arnarson sálfræðingur hefur þróað verkefni sem ætlað er að fyr- irbyggja þróun þunglyndis. Nína Björk Jóns- dóttir ræddi við hann um verkefnið Hug og heilsu þar sem unglingum í áhættuhópi er kennt að takast á við neikvæðar hugsanir. VANRÆKSLA BARNA Velmegun er mikil á Íslandi, enhenni er misskipt og fátækt ogsamspil hennar við vanrækslu barna er alvarlegt vandamál. Í samtali við Sigrúnu Björnsdóttur, skólahjúkr- unarfræðing í Reykjavík, í nýjasta tölublaði Tímarits hjúkrunarfræðinga er sérstaklega fjallað um fátækt í höf- uðborginni. Lýsir Sigrún því í viðtalinu að oft komi Félagsþjónustan og ræði við foreldra barna í skólanum því þeir hafi greinilega ekki nóg til hnífs og skeiðar. Í skólanum, sem hún starfi við, sé boðið upp á skólamáltíðir, en sum börnin hafi ekki efni á að borða og þurfi að horfa á félagana í matartím- um, kannski með lélegt eða ekkert nesti sjálf. Sigrún segir að sumir for- eldrar hafi ekki efni á að borga fyrir gæslu, sem ÍTR býður upp á eftir skólatíma, og fari þá börnin ein heim, sem oft hafi alvarleg áhrif á heilsu þeirra. Þá eigi þessi börn oft ekki föt og búi í lélegu húsnæði og skortur á öll- um þessum sviðum geti sett mark sitt á þau til frambúðar. Freydís Jóna Freysteinsdóttir, lekt- or í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands, segir í samtali við Morgunblaðið í gær að félagsráðgjafar á Íslandi verði mjög áþreifanlega varir við fátækt í störfum sínum og rannsóknir sýni að fátækt sé stór áhættuþáttur varðandi vanrækslu barna. Freydís Jóna segir að talið sé að 7–8% fólks búi við fátækt hér á landi. Í doktorsverkefni sínu skoðaði hún áhættuþætti varðandi endurtekna van- rækslu og rannsakaði meðal annars hvort foreldrar barna, sem vanrækt hefðu börn sín, hefðu þegið fjárhags- aðstoð og hvort þeir ættu í fjárhags- vandræðum. „Um helmingur foreldra, hvort sem um var að ræða eitt tilfelli vanrækslu eða endurtekningar, hafði bæði þegið fjárhagsaðstoð og átti við fjárhagsvandræði að stríða,“ segir Freydís. „Erlendar rannsóknir sýna að börn í fátækum fjölskyldum eru ein- mitt margfalt líklegri til að vera van- rækt en börn í öðrum fjölskyldum.“ Lára Björnsdóttir, félagsmálastjóri Reykjavíkurborgar, kvaðst í viðtali við Morgunblaðið á mánudag geta tekið undir orð Sigrúnar. Hún segir að í des- ember hafi reglum verið breytt til að hægt væri að veita aðstoð og nú sé reynt að koma til móts við ýmsan kostnað, til dæmis við máltíðir í skól- um, dvöl á frístundaheimili ÍTR eftir skóla, tómstundastörf eða leikskóla- dvöl. Þungbært er að vita til þess að hóp- ur barna sé vanræktur í þessu þjóð- félagi og það megi að stórum hluta rekja beint til fátæktar. Einn grunn- þáttur íslensks þjóðfélags er að allir sitji við sama borð. Í því er fólgið að allir eiga jafnan rétt til náms, en það má ganga skrefi lengra og segja að öll börn eigi rétt á að fá að blómstra í skóla. Ef sum börn eiga það á hættu að verða utangátta í skólanum vegna ytri aðstæðna ber þjóðfélaginu að vinna gegn því. Hætt er við því að barn, sem er utangátta í skóla, verði einnig ut- angarðs síðar meir og samkvæmt rann- sóknum eru líkur á að næstu kynslóð- ar, afkomenda þeirra, bíði sömu örlög. Við getum ekki setið hjá á meðan hér verður til svokölluð fátæktargildra, vítahringur fátæktar og vanrækslu barna kynslóð fram af kynslóð. Þessi mál þarf að taka ákveðnari tökum en gert hefur verið til þessa. Ekki er nóg að stoppa í göt, það þarf að ráðast á vandann á öllum stigum stjórnkerfis- ins til þess að afmá þennan smánar- blett á þjóðfélaginu. ÞROSKAÐRI HLUTABRÉFAMARKAÐUR Í síðasta mánuði og byrjun þessa birt-ist í Viðskiptablaði Morgunblaðsins greinaflokkur eftir Eyrúnu Magnús- dóttur blaðamann, þar sem fjallað var um „aldamótabóluna“, hlutabréfaæðið sem rann á marga landsmenn frá því um haustið 1998 og fram eftir árinu 2000. Hlutabréf voru vinsælasta um- ræðuefnið á mannamótum. Í sjón- varpsþáttum gáfu starfsmenn verð- bréfafyrirtækja ráð um hlutabréfa- kaup í fyrirtækjum – en sjaldnast um það í hvaða fyrirtækjum væri skynsam- legt að selja. Almenningur lagði sparn- að sinn í hlutabréf í meiri mæli en áður hafði þekkzt – og margir tóku háar fjárhæðir að láni til að kaupa í fyrir- tækjum, sem sum hver voru ekki einu sinni skráð í kauphöll heldur störfuðu á hinum svokallaða „gráa markaði“, óbundin af skyldum um nákvæma og hlutlæga upplýsingagjöf. Enda halda margir því fram að hækkanir á verði hlutabréfa á þessum tíma hafi ráðizt af væntingum almennings, fremur en haldgóðum upplýsingum um gengi fyr- irtækjanna. Í áðurnefndum greinaflokki kemur skýrt fram að eftir hrun hlutabréfa- markaðarins vorið 2000 hefur margt breytzt. Hlutabréfaráðgjöfin er horfin úr dagskrá ljósvakamiðlanna, grái markaðurinn þurrkaðist út og almenn- ingur fjárfestir ekki lengur í óskráðum bréfum, nógu margir hafa brennt sig á því að taka lán fyrir hlutabréfakaupum til þess að slíkt er nú ekki eins algengt meðal einstaklinga og á umræddu tímabili. Allt bendir þetta til þess að hlutabréfamarkaðurinn hafi tekið út nokkurn þroska. Hitt er svo annað mál að verð hluta- bréfa hér á landi er mun hærra nú en það var fyrir dýfuna árið 2000. Að sumu leyti endurspeglar það gott gengi í ís- lenzku atvinnulífi. Í þetta sinn eru það þó áreiðanlega ekki væntingar almenn- ings, sem stýra verðinu, heldur frekar kaup stærri fjárfesta á bréfum á gengi, sem oft endurspeglar fremur valdabar- áttu og togstreitu í viðskiptalífinu en raunverulegar væntingar um frammi- stöðu fyrirtækjanna. Sérfræðingum ber almennt saman um að íslenzk hlutabréf séu of hátt verðlögð og ákveðin hætta er á því að einn daginn hefjist „verðleiðrétting“ sem komi illa við marga. Ein hættan í því efni er vaxtaþróunin á alþjóðlegum fjármála- markaði. Verðhækkun undanfarinna missera hefur að hluta til verið knúin af ódýru fjármagni, sem staðið hefur stórum fjárfestum til boða og m.a. stuðlað að skuldsettum kaupum í fyr- irtækjum. Með hækkandi vöxtum á flestum gjaldmiðilssvæðum í kringum okkur er hætt við að forsendunum verði kippt undan sumum þeim fjár- festingum. Til þess að hér verði til heilbrigður hlutabréfamarkaður til framtíðar er mikilvægt að litlir fjárfestar geti treyst því að verðið sé ekki keyrt upp tíma- bundið í stórfiskaleik þeirra sem hafa mikið fjármagn á milli handa, heldur sé raunveruleg innstæða fyrir því. Það er mikilvægt að draga lærdóma af sög- unni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.