Morgunblaðið - 20.05.2004, Side 50
DAGBÓK
50 FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík.
SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222,
auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569
1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald
2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. ein-
takið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Kroonborg og Mána-
foss koma í dag. Goða-
foss og Helgafell fara
í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Petrow kemur í dag.
Fréttir
Fjölskylduhjálp Ís-
lands Eskihlíð 2–4 í
fjósinu við Miklatorg.
Móttaka á vörum og
fatnaði, mánudaga kl.
13–17. Úthlutun mat-
væla og fatnaðar,
þriðjudaga kl. 14–17.
Sími skrifstofu er
551 3360, netfang dal-
ros@islandia.is, gsm
hjá formanni 897 1016.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Fannborg
5. Fataúthlutun
þriðjudaga kl. 16–18.
sími. 867 7251.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Skrif-
stofa s. 551 4349, fax.
552 5277, mataraðstoð
kl. 14–17.
Mannamót
Eldri bæjarbúar Sel-
tjarnarnesi. Hand-
verkssýning verður
haldin í dag, á degi
aldraðra, uppstigning-
ardag, kl. 14–18 í fé-
lagsmiðstöðinni að
Skólabraut 3–5, gengið
er inn á jarðhæðinni.
Fólk er hvatt til að líta
inn og skoða afrakstur
vetrarstarfsins. Gler-
list, keramik, bókband,
prjónlist, hekl, út-
saumur, kortaútsaum-
ur, þrívíddarmyndir,
krukkumálun, steina-
málun, trémálun og
margt fleira. Kaffi og
nýbakaðar vöfflur til
sölu í matsalnum.
Félagsstarf eldri
borgara í Mosfellsbæ.
Handavinnusýning
eldri borgara í Mos-
fellsbæ verður í Dval-
arh. Hlaðhömrum,
í dag kl. 13–15. Einnig
verður kórsöngur Vor-
boðanna og dansarar
sýna línudans.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Dagsferð á
vegum kirkjunnar.
Lagt af stað kl. 10 frá
Vídalínskirkju.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Hand-
verkssýning í Hraun-
seli 22. til 24. maí.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Brids kl. 13.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 14. syng-
ur Gerðubergskórinn í
guðsþjónustu í Fella-
og Hólakirkju, stjórn-
andi Kári Friðriksson.
Gigtarfélagið. Leik-
fimi alla daga vik-
unnar. Létt leikfimi,
bakleikfimi karla,
vefjagigtarhópar, jóga,
vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
GA-Samtök spilafíkla,
Fundarskrá:
Þriðjud: Kl. 18.15, Sel-
tjarnarneskirkja, Sel-
tjarnarnes. Miðvikud:
Kl. 18, Digranesvegur
12, Kópavogur og Eg-
ilsstaðakirkja, Egils-
stöðum. Fimmtud: Kl.
20.30, Síðumúla 3–5,
Reykjavík. Föstud: Kl.
20, Víðistaðakirkja,
Hafnarfjörður. Laug-
ard: Kl. 10.30, Kirkja
Óháða safnaðarins,
Reykjavík
og Glerárkirkja, Ak-
ureyri. Kl. 19.15 Selja-
vegur 2, Reykjavík.
Neyðarsími: 698 3888
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl.
20 að Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
OA-samtökin. Átrösk-
un / Matarfíkn / Ofát.
Fundir alla daga.
Upplýsingar á
www.oa.is og síma
878 1178.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið
hús alla laugardaga
frá kl. 14.
Kattholt. Flóamark-
aður í Kattholti,
Stangarhyl 2, er opinn
þriðjud. og fimmtud.
frá kl. 14–17. Leið 10
og 110 ganga að Katt-
holti.
Fífan Dalsmára 5 í
Kópavogi, tart-
anbrautir eru opnar
almennu göngufólki og
gönguhópum frá
kl.10–11.30 alla virka
daga.
Blóðbankabíllinn.
Ferðir blóðbankabíls-
ins: sjá www.blod-
bankinn.is.
NA (Ónefndir fíklar).
Neyðar- og upplýs-
ingasími 661 2915.
Opnir fundir kl. 21 á
þriðjudögum í Héðins-
húsinu og á fimmtu-
dögum í KFUM&K,
Austurstræti.
Hafnargönguhóp-
urinn. Kvöldganga kl.
20 miðvikudaga. Lagt
af stað frá horni Hafn-
arhússins norð-
anmegin.
Í dag er fimmtudagur 20. maí,
141. dagur ársins 2004, uppstign-
ingardagur. Orð dagsins: Verið
gyrtir um lendar, og látið ljós yð-
ar loga, og verið líkir þjónum, er
bíða þess, að húsbóndi þeirra
komi úr brúðkaupi og þeir geti
lokið upp fyrir honum um leið og
hann kemur og knýr dyra.
(Lk. 15, 35.)
Vefþjóðviljinn skrifaði ígær: „Í dag kemur
frumvarp til breytingar á
útvarps- og samkeppn-
islögum að öllum lík-
indum til síðustu umræðu
á Alþingi. Vefþjóðviljinn
hefur frá upphafi sínu
lagst gegn hvers kyns
samkeppnislöggjöf gegn
einkafyrirtækjum, þess-
ari sem annarri. Hinn 13.
janúar síðastliðinn sagði
hér í blaðinu: „Þeir sem
vilja banna mönnum að
vera umsvifamiklir út-
gefendur eru í raun ekki
að biðja um annað en að
blöð verði rifin af les-
endum og lokað fyrir við-
tæki manna. Neytendur
eiga að hafa síðasta orðið
um hvaða fjölmiðlar lifa
og hverjir ekki. Vanda-
mál íslenskra fjölmiðla-
notenda til þessa hefur
verið að stjórnmálamenn
hafa ákveðið að stórum
hluta hvaða fjölmiðla
neytendur kaupa því
landsmenn eru neyddir
til áskriftar að Rík-
isútvarpinu. Er það í al-
vöru sem menn halda því
fram að færa þurfi aukið
áhrifavald um það hvaða
fjölmiðlar starfa hér frá
neytendum til pólitík-
usa?“ Þessi afstaða hefur
verið ítrekuð margsinnis
undanfarnar vikur og
rétt að gera það einu
sinni til nú þegar stefnir
í afgreiðslu frumvarps-
ins.
Þetta frumvarp er ekkiaðeins slæmt út af
fyrir sig heldur er með
þessu frumvarpi skapað
slæmt fordæmi um íhlut-
un í atvinnulífið. Eins og
heyra má á andstæð-
ingum frumvarpsins á al-
þingi eru þeir ekki and-
vígir því að sett séu lög
um þessi mál heldur vilja
þeir hafa þau öðruvísi.
Það er í raun óþarft að
rifja upp gömul ummæli
þeirra um þessi mál.
Þessi þrá til að setjaauknar reglur um
fjölmiðla kemur fram í
nær hverri ræðu stjórn-
arandstæðinga þessa
dagana enda er það
„málsmeðferðin“ sem er
þeim hugleiknust en ekki
málið sjálft. Þeir vilja all-
ir auknar reglur um hver
og hvernig á að gefa út
blöð og útvarp. Bara
ekki þessi lög. Það er
miður að þeim eða öðr-
um sem síðar kunna að
komast til valda sé gefið
þetta fordæmi.
En mikilvægasti lær-dómurinn sem menn
gætu dregið af þessu
máli öllu saman er að á
meðan hér eru víðtæk
samkeppnislög og önnur
samkeppnisyfirvöld en
neytendur verður alltaf
freistandi og þægilegt
fyrir stjórnmálamenn að
setja lög af þessu tagi.
„Samkeppnisstofnun skal
hafa eftirlit með …“.
„Samkeppnisyfirvöld
skulu grípa til ráðstaf-
ana …“ Það breyttist
ekki, þegar nafni Verð-
lagsstofnunar var breytt
í Samkeppnisstofnun, að
stofnunin er beittasta
vopn stjórnmálamanna
gegn frjálsum markaði.“
STAKSTEINAR
Neytendur eiga að hafa
síðasta orðið
Víkverji skrifar...
Víkverja líst ákaflegavel á hugmynd Þjóð-
minjasafnsins um að láta
koma 7,5 metra háu
sverði úr graníti fyrir á
Melatorgi. Raunar finnst
Víkverja full ástæða til
að taka til athugunar
hvort ekki mætti koma
fyrir listaverkum á fleiri
hringtorgum eða við um-
ferðaræðar á höfuðborg-
arsvæðinu. Listaverkum
hefur til þessa helst ver-
ið fundinn staður í al-
menningsgörðum eða á
stöðum þar sem fólk á leið fótgang-
andi. Þetta var væntanlega skyn-
samleg ráðstöfun og hugsun á sínum
tíma þegar það var ekki á færi allra
að eiga bíl en tímarnir hafa breyst
og bíllinn fyrir löngu orðið aðalsam-
göngutæki manna og óþarfi að láta
bílistana fara algerlega á mis við
listina. Eru ekki listaverkin einmitt
gerð til þess að fólk njóti þeirra og
þá líka þeir sem aka um á bílum og
búa kannski í úthverfum þar sem
slík verk eru sjaldgæf?
x x x
Dóttir Víkverja á unglingsaldri ferí kórferðalag til útlanda í sumar
og hefur lagt hart að sér við að safna
fyrir ferðinni. Hún er hins vegar
fremur óhress með fjármálalega
stjórnun á fé kórstúlknanna í ferð-
inni. Þar er Víkverji henni algerlega
ósammála og finnst fyrirkomulagið
skynsamlegt. Gisting, morgun- og
kvöldmatur er innifalið í ferðinni en
síðan úthluta farastjórarnir stúlk-
unum dagpeningum og fá þær allar
nákvæmlega sömu upphæðina til
þess að eyða í mat, drykki eða ís yfir
daginn. En þess fyrir utan hefur svo
hver sína upphæð til þess að kaupa
fatnað, gjafir o.s.frv. og ráða þá for-
eldrar því hver sú upphæð er.
Dóttur Víkverja finnst nokkuð
hart að fararstjórar taki
af henni hennar eigin
peninga og skammti
henni dagpeninga en
Víkverja finnst aftur á
móti skynsamlegt að
jöfnuðar sé gætt með
þessum hætti þannig að
ekki séu sumar stúlkur
með fullar hendur fjár á
meðan aðrar hafa
kannski miklu minna að
spila úr. Víkverja finnst
peningalegur sam-
anburður ærinn fyrir
hjá unglingum nútímans
og fagnar því sérstaklega þessari
„sósíalísku ráðstöfun“ þeirra sem
stjórna kórferðalaginu.
x x x
En burtséð frá þessari skömmtun ádagpeningum er dóttir Víkverja
hin spenntasta yfir ferðinni og er nú
farin að telja niður enda ekki nema
mánuður í ferðina miklu. Og spenn-
ingurinn virðist vera eitthvað ámóta
og fyrir jólin þegar dóttir Víkverja
var yngri því hún settist niður einn
daginn og eyddi drjúgum tíma í að
búa til eigið dagatal til þess að rífa af
þangað til farið verður í ferðina
miklu.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Hverjir eru góðir
stjórnendur?
ÞAÐ er aðeins til ein gerð
af mönnum sem geta talist
góðir stjórnendur. Það eru
þjónar. Menn stjórna vel
með því að þjóna fólki.
Þessir menn hafa oft trúar-
lega afstöðu eða hafa
ákveðna hugsjón að leiðar-
ljósi.
Sumir þeirra hefja jafn-
vel hvern dag á bæn um að
þeim megi auðnast að láta
gott af sér leiða. Það er erf-
itt að vera stjórnandi. Það
er ekki auðvelt að horfast í
augu við tíðarandann og
svara spurningunni: Hvað
leiðir til góðs og hvað leiðir
til ófarnaðar? Lélegir
stjórnendur spyrja aldrei
þessara spurninga. Og láta
sér svarið í léttu rúmi
liggja. Þeirra leiðarljós er
framinn og persónuleg
stærð. Greindum tækifær-
issinnum vegnar oft vel þó
að þeir svíki sitt fólk og
skilji það eftir í eymd sinni.
En braut raunverulegs
stjórnanda er ekki aðeins
erfið hún er líka oft hættu-
leg. Hann veit það en hann
er hvorki kominn til að
vinna eða tapa heldur til að
axla ábyrgð.
Gunnar Dal.
Á kostnað hvers græð-
ir Landsbankinn?
ÉG óska Landsbankanum,
banka „allra“ landsmanna,
til hamingju með stórgróða
þeirra sem upplýstur hefur
verið undanfarið.
En á kostnað hvers er
hann? Búið er að loka öðru
útibúi af tveimur á Selfossi
og er nú þjónustan aðeins í
gamla Landsbankahúsinu.
Þar er aðgengi fyrir fatlaða
ekkert og erfitt aðkomu
fyrir þá sem eru ekki ungir
og sprækir.
Það var ekki með glöðu
geði sem viðskiptavinur
Landsbankans til margra
áratuga hætti viðskiptum
við bankann vegna þessa.
Reyndar varð hann örlítið
móðgaður og fannst hann
ekki vera þess verður, þrátt
fyrir áratuga tryggð við
Landsbankann, að vera við-
skiptavinur hans lengur,
þar sem útibú með góðu að-
gengi fyrir heldri borgara,
var lagt niður. Væntanlega
í sparnaðarskyni svo sýna
mætti góðar afkomutölur.
Þessi viðskiptavinur er
örugglega ekki sá eini sem
grípur til þessara aðgerða.
Þess má geta að aðrir bank-
ar á Selfossi bjóða alla vel-
komna í sín hús og er að-
koma þar til fyrirmyndar.
Margrét Ívarsdóttir.
Tapað/fundið
Sólgleraugu
í óskilum
SÓLGLERAUGU í gler-
augnapoka fundust á horni
Hringbrautar og Tjarnar-
götu fyrir rúmri viku. Upp-
lýsingar í síma 895 8180.
Dýrahald
Hvolpar
fást gefins
MJÖG fallegur border col-
lie-hvolpur fæst gefins,
fimm mánaða. Upplýsingar
í síma 587 8276.
VELVAKANDI
S varað í s íma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl. is
LÁRÉTT
1 torleystan hnút, 8
furða, 9 erfðafé, 10 fag,
11 skepnan, 13 sárum, 15
íláta, 18 lægja, 21 lengd-
areining, 22 ginna, 23
tryllast, 24 hestaskítur.
LÓÐRÉTT
2 bál, 3 aldinið, 4 rudda-
mennis, 5 rándýrum, 6
hönd, 7 stirð af elli, 12
reið, 14 hár, 15 drolla, 16
linnir, 17 skyldmennisins,
18 megna, 19 klampana,
20 sigaði.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 sorti, 4 fress, 7 pilta, 8 ragni, 9 náð, 11 róar, 13
bygg, 14 Ítali, 15 hólk,17 kunn, 20 gin, 22 kafla, 23 aldin,
24 afræð, 25 ganar.
Lóðrétt: 1 sópur, 2 rulla, 3 iðan, 4 ferð, 5 Engey, 6 sting,
10 ábati, 12 rík, 13 bik, 15 Hekla, 16 lofar, 18 undin, 19
nánar, 20 garð, 21 nagg.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html