Morgunblaðið - 20.05.2004, Page 54
ÍÞRÓTTIR
54 FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
LEIKJUM FH í efstu deildum karla
og kvenna á Íslandsmótinu í knatt-
spyrnu, sem fram áttu að fara í dag,
hefur verið frestað vegna fráfalls
Þóris Jónssonar, forystumanns í
knattspyrnudeild FH. Hann lést í
bílslysi á Reykjanesbraut í gær-
morgun.
Karlalið Fylkis og FH áttu að
leika á Fylkisvelli í Árbæ í kvöld en
sá leikur fer fram á laugardaginn
kemur, 22. maí, og hefst hann
klukkan 17.
Kvennalið FH og Vals áttu að
spila í Kaplakrika í dag en þeim
leik hefur verið frestað til mið-
vikudagsins 9. júní.
Leikjum
FH-inga
frestað „ÉG hef fengið nokkrar spólur meðítalska landsliðinu og hef þegar
kortlagt leik þess eins og kostur er,
miðað við þær upplýsingar sem fyr-
ir hendi eru,“ segir Guðmundur
Þórður Guðmundsson, landsliðs-
þjálfari í handknattleik, um vænt-
anlega andstæðinga, Ítali, í undan-
keppni heimsmeistaramótsins.
Aðeins er rúm vika þar til Íslend-
ingar mæta Ítölum í fyrri leik þjóð-
anna sem fram fer á Ítalíu en hann
fer fram í Teramo laugardaginn 29.
maí. Síðari leikurinn fer fram í
Kaplakrika í Hafnarfirði sunnudag-
inn 6. júní.
„Ítalir eru hættulegur andstæð-
ingur sem við verðum að búa okkur
vel undir að mæta. Þeir sýndu það í
forkeppninni þar sem þeir lögðu
Hvít-Rússa og Austurríkismenn að
það ber að taka þá alvarlega. Við
verðum að vera við öllu búnir þegar
út í leikina verður komið,“ sagði
Guðmundur sem hefur undirbúning
sinn með landsliðinu fyrir leikina
við Ítali suður í Grikklandi næst-
komandi mánudag.
„Ég tilkynni sextán manna lands-
liðshóp vegna leikjanna við Ítali á
sunnudaginn eftir fjögurra þjóða
mótið í Belgíu. Það eru tvö til þrjú
sæti laus í hópnum fyrir þá leik-
menn sem standa sig vel á mótinu í
Belgíu,“ sagði Guðmundur sem
reiknar með að gera stillt upp sínu
sterkasta liði gegn Ítölum og eins í
æfingaleikjunum við Austurríki og
Grikklandi í undanfara Ítalíuleikj-
anna.
Guðmundur hefur kortlagt
Ítali fyrir HM-leikina tvo
BJARNI Þór Viðarsson knatt-
spyrnumaður skrifaði í gær undir
fjögurra ára samning við enska úr-
valsdeildarliðið Everton að undan-
genginni læknisskoðun hjá félag-
inu. Bjarni er 16 ára gamall og
hefur leikið með FH allan sinn feril.
Þá hefur hann verið fastamaður í
drengjalandsliðinu þar sem hann
spilaði níu af tíu leikjum liðsins á
síðasta ári og hann er enn gjald-
gengur með því liði í ár. „Ég er
rosalega ánægður með samninginn
og get varla beðið eftir því að byrja
að æfa með liðinu. Aðstæður hjá
Everton eru meiri háttar og allir
þeir sem koma að félaginu hafa
reynst mér ákaflega góðir,“ sagði
Bjarni Þór við Morgunblaðið
skömmu eftir að hafa gengið frá
samningnum við Everton í gær.
Þar með fetar Bjarni Þór í fót-
spor eldri bræðra sinna – Arnar
Þór er hjá Lokeren í Belgíu og Dav-
íð Þór er á mála hjá Lilleström í
Noregi, en karl faðir þeirra er Við-
ar Halldórsson sem lék á árum áður
með FH og íslenska landsliðinu.
„Ég hef átt mér þann draum lengi
að verða atvinnumaður eins og
Arnar og Davíð og ég trúi því varla
enn þá að ég sé kominn í Everton,“
sagði Bjarni, sem mun spila með 18
ára liði Everton á næstu leiktíð og
varaliði félagsins.
Bjarni Þór er nefndur undra-
barnið frá Íslandi í umfjöllun á
fréttavef Sky-sjónvarpsstöðvar-
innar en þar var rætt við David
Moyes, knattspyrnustjóra Everton.
Bjarni Þór Viðarsson
samdi við Everton
SÚ staða kann að koma upp að Guð-
mundur Hrafnkelsson, landsliðs-
markvörður í handknattleik, lendi
hálfpartinn á milli steins og sleggju
þegar kemur að leikjum íslenska
landsliðsins
gegn Ítölum í
undankeppni
heimsmeistara-
mótsins í lok
þessa mánaðar
og í byrjun þess
næsta. Ástæðan
er sú að svo
kann að fara að
félagslið Guð-
mundar í Þýska-
landi, Kronau/Östringen, verði að
leika um að halda sæti sínu í efstu
deild á næstu leiktíð hafni það í 16.
sæti deildarinnar þegar keppninni
lýkur um helgina. Komi til þessari
leikja hjá Guðmundi og félögum
verða þeir eftir því sem næst verð-
ur komist miðvikudaginn 26. maí
og viku síðar 2. júní. Fyrri leikur ís-
lenska landsliðsins við Ítali verður
laugardaginn 29. maí og sunnudag-
inn 6. júní hér heima.
Því gæti svo farið að forráða-
menn Kronau/Östringen setji Guð-
mundi stólinn fyrir dyrnar og krefj-
ist þess að hann taki þátt í leikjun-
um sem skipta liðið miklu máli.
„Við getum beitt okkur í þessu
máli og ætlum að gera það komi til
þess að sú staða komi upp og Guð-
mundur og félagar lenda í þessum
aukaleikjum ofan í landsleikina,“
sagði Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri Handknattleiks-
sambands Íslands í gær. „Komi til
leikjanna og verði þeir settir ofan í
landsleikina, er það ekki eðlilegt.
Það er ekki eðlilegt að mikilvægir
leikir í deildakeppni séu settir nán-
ast ofan í forkeppni heimsmeist-
aramóts. Ég hef sett mig í samband
við Handknattleikssamband Evr-
ópu, og óskað eftir liðsinni í þessu
máli komi þessi staða upp hjá Guð-
mundi,“ sagði Einar ennfremur.
Tvö neðstu lið þýsku 1. deildar-
innar falla í 2. deild en liðið í þriðja
neðsta sæti, 16. sæti, leikur auka-
leiki um sæti í 1. deild að ári, ann-
aðhvort við Post Schwerin eða TSG
LB-Ossweil sem höfnuðu í 2. sæti í
norður- og suðurhluta 2. deildar.
Kronau/Östringen leikur í loka-
umferð 1. deildar á laugardaginn
við Kiel á útivelli, sem er í næst-
efsta sæti og tapar afar sjaldan á
heimavelli. Liðin fyrir neðan, sem
eru í fallsæti nú Eisenach og Stral-
sunder, leika gegn Minden og
Wetzlar. Vinni þau eða geri þau
jafntefli geta þau bjargað sér frá
falli á kostnað Kronau/Östringen,
að því skildu að það nái a.m.k. ekki
í stig.
Verður
Guðmund-
ur ekki með
gegn Ítalíu?
Guðmundur
KNATTSPYRNA
UEFA-bikarinn
Úrslitaleikur í Gautaborg:
Valencia – Marseille................................ 2:0
Rodrigues Vicente 45. (víti), Miguel Mista
58. Rautt spjald. Fabien Barthez 45.
Valencia: Santiago Canizares, Roberto
Ayala, Amedeo Carboni, Cristobal Curro
Torres, Carlos Marchena (Mauricio Pel-
legrino 86.), David Albelda, Ruben Baraja,
Francisco Rufete (Pablo Aimar 64.), Rodr-
igues Vicente, Miguel Angulo (Mohamed
Sissoko 83.), Miguel Mista.
Marseille: Fabien Barthez, Habib Beye,
Manuel Dos Santos, Demetrius Ferreira,
Mathieu Flamini (Laurent Batles 71.),
Brahim Hemdani, Abdoulaye Meite, Camel
Meriem (Jeremy Gavanon 45), Sylvain
N’Diaye (Fabio Celestini 84.), Didier
Drogba, Steve Marlet.
Dómari: Pierluigi Collina frá Ítalíu.
England
Undanúrslit um sæti í 1. deild, síðari leik-
ur:
Bristol City – Hartlepool ......................... 2:1
Bristol City sigraði, 3:2 samanlagt og
mætir Brighton eða Swindon í úrslitaleik.
Undanúrslit um sæti í 2. deild, síðari leik-
ur:
Huddersfield – Lincoln............................ 2:2
Huddersfield sigraði, 4:3 samanlagt, og
mætir Mansfield eða Northampton í úr-
slitaleik.
Noregur
Vålerenga – Rosenborg ........................... 2:2
Staðan:
Tromsö 6 4 1 1 13:5 13
Vålerenga 7 3 4 0 8:5 13
Odd Grenland 6 3 3 0 12:5 12
Ham-Kam 6 2 3 1 5:4 9
Bodö/Glimt 6 3 0 3 9:9 9
Rosenborg 7 2 3 2 8:10 9
Lyn 6 2 2 2 5:4 8
Molde 6 2 2 2 7:7 8
Brann 6 2 1 3 7:6 7
Lilleström 6 1 3 2 7:7 6
Sogndal 6 1 2 3 9:12 5
Viking 6 0 5 1 4:8 5
Fredrikstad 6 1 2 3 8:14 5
Stabæk 6 1 1 4 6:12 4
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Austurdeild, undanúrslit:
Miami – Indiana.................................... 70:73
Indiana vann 4:2 og er komið í úrslit
Austurdeildarinnar þar sem liðið mætir
Detroit eða New Jersey sem eru jöfn, 3:3,
og mætast í oddaleik í nótt.
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla, Landsbankadeildin:
Akranes: ÍA - Grindavík ............................14
Vestmannaeyjar: ÍBV - Fram...................14
Keflavík: Keflavík - KR ........................19.15
Efsta deild kvenna, Landsbankadeild:
KR-völlur: KR - Fjölnir .............................16
Hofsstaðav.: Stjarnan - Þór/KA/KS .........16
Bikarkeppni KSÍ, VISA-bikar karla:
Árskógsvöllur: Reynir Á - KS...................16
Eyrarbakkavöllur: Freyr - Tunglið..........16
Seyðisfj.: Huginn - Leiknir F. ...................16
Sauðárkrókur: Tindastóll - Hvöt ..............16
Húsavík: Boltaf. Húsav. -Leiftur/Dalv.....16
Eskifj.: Fjarðabyggð - Einherji ................16
Í DAG
Spánska liðið var sterkari aðilinnalveg frá byrjun þó svo yfir-
burðirnir væru ekki miklir. Allt virt-
ist stefna í markalausan fyrri hálf-
leik þegar Miguel Angel Mista
Ferrer fékk boltann vinstra megin í
vítateig Marseille, lék aðeins nær,
Barthez kom út á móti og tæklaði
hann harkalega. Collina dómari
benti réttilega á vítapunktinn og dró
upp rauða spjaldið. Ungur vara-
markvörður Marseille tók stöðu
Bartez og þrátt fyrir að hafa staðið
sig ágætlega átti hann ekki mögu-
leika á að verja vítaspyrnu Rodrig-
ues Vicente.
Mista, sem kosinn var maður
leiksins, átti eftir að koma meira við
sögu í leiknum því á 58. mínútu skor-
aði hann með góðu vinstri fótar skoti
framhjá markverðinum unga. Þar
með var í raun ljóst að Valencia væri
orðið meistari því einum færri áttu
leikmenn Marseille litla möguleika
enda höfðu þeir ekki sýnt mikla til-
burði við mark mótherjanna, ekki
einu sinni þegar jafnmargir voru í
liðunum.
Stórsenter Marseille, Didier
Drogba, náði ekki að setja mark sitt
á leikinn enda höfðu varnarmenn
Valencia góðar gætur á honum.
Drogba hafði skorað í öllum öðrum
Evrópuleikjum liðsins á þessari leik-
tíð, en hinn snjalli leikmaður frá
Fílabeinsströndinni mátti sín lítils í
gær gegn einni sterkustu vörn Evr-
ópu, en alls gerði kappinn 75% af
mörkum Marseille í Evrópukeppn-
inni þetta árið.
„Vítaspyrnan gaf okkur byr undir
báða vængi og það var virkilega ljúft
að ganga til búningsherbergisins í
leikhléi eftir að við komumst í 1:0 á
síðustu sekúndum hálfleiksins,“
sagði Mista eftir leikinn.
„Við réðum gangi mála í síðari
hálfleik enda einum fleiri og marki
yfir,“ bætti Mista við.
Mista, sem lék í eina tíð með Real
Madrid en komst venjulega ekki
nema í varaliðið, hefur leikið vel í
vetur. Hann skoraði 19 mörk í 32
leikjum fyrir Valencia í spænsku
deildinni. Fyrir að vera valinn maður
leikins í gær fékk hann um 800 þús-
und krónur sem hann á að nota í eitt-
hvert góðgerðarmál á Spáni.
Valencia varð á dögunum meistari
á Spáni í annað sinn á þremur árum,
var að sigra í Evrópukeppninni í
þriðja sinn. Liðið vann árið 1962 og
1963 og svo aftur núna. Annars hafa
spænsk lið sigrað níu sinnum í þess-
ari keppni, Barcelona 1958, 1960 og
1966, Real Zaragoza 1964, Real
Madrid 1985 og 1986 og svo Valencia
í þrígang. Franskt lið hefur aldrei
fagnað sigri í þessari keppni. Keppni
þessi hét Borgakeppni Evrópu á ár-
unum 1958 til 1971.
Reuters
Pierluigi Collina rekur Fabien Barthez, markvörð Marseille, af velli í lok fyrri hálfleiks.
Bið Valencia
loks á enda
VALENCIA varð í gærkvöldi UEFA bikarmeistari í knattspyrnu, lagði
Marseille að velli 2:0 í úrslitaleiknum sem fram fór í Gautaborg.
Franska liðið missti Fabian Barthez, markvörð sinn, útaf á síðustu
sekúndum fyrri hálfleiks þegar hann fékk að líta rauða spjaldið.
Lokahóf hjá Haukum
Lokahóf handknattleiksdeildar Hauka
verður haldið á Ásvöllum á morgun, föstu-
dag. Húsið er opnað kl. 19.30.
FÉLAGSLÍF