Íslendingaþættir Tímans - 07.09.1968, Blaðsíða 1
o
ISLE^DIWGAÞJETTIR
Timans
«. TBL. 1. ÁRG.
LAUGARDAGUR 7. SEPT. 1968
SIGFUS halldórs
FRÁ HÖFNUM
Fæddur 27. desember 1891.
Dóinn 19. ágúst 1968.
Haldóra Bjarnadóttir segir frá
því í ævisögu sinni, að er hún var
rúmlega tvítug að aldri, hafi hún
Verið heimiliskennari hjá Jónínu
Jónsdóttur, ekkju Árna, Sigurðs-
sonar frænda síns, er þá bjó að
Höfnum á Skaga. Heimilið var
mannmargt og nemendur Hall-
dóru voru margir, ungir og gaml-
ir, vinnumenn og vinnukonur, og
unglingar úr nágrenninu. Hún seg
ir ennfremur:
„Á heimilinu var lítill gestur,
Sigfús Halldórs, sonarsonur Árna
bónda. Hann var þá aðeins þriggja
ára gamall. Hann var furðulegt
barn, og er hann sá nemandi minn,
sem er mér minnisstæðastur. Virt-
ist liann eiginlega læra allt af
sjálfu sér. Fluglæs var hann
tveggja ára, eftir því sem sagt
Var. Hann hafði gaman af að fylgj-
ast með í landafræðitímum. Eitt
sinn, þegar óg kom inn í stofuna,
þar sem kennslan fór fram, sat
stór og sterklegur vinnumaður og
hlýddi á Sigfús. Sigfús litli benti
á lönd og borgir á kortinu. Sigfús
er yngsti kennarinn og nemandi
hans elzti nemandinn, sem ég hefi
haft um dagana.1
Ég hefi heyrt frá því sagt, að
Sigfús hafi þegar í barnæsku les-
ið og kunnað síðan utanbókar alla
stóru Mannkynssögu Páls Melsteðs
sem var í fimm bindumm
Sigfús fæddist á Þingeyrum
Þriðja dag jóla árið 1891. Foreldr-
ar hans voru hjónin Halldór sýslu-
skrifari Árnason frá Ilöfnum og
Huríður Ragnheiður Sigfúsdóttir,
prests á undirfelii Jónssonar. Á
nieðal móðursystkina Sigfúsar var
Björn alþingismaður á Kornsá.
Um það lejdi er Sigfús var sex
ára gamall, skildu foreldrar hans
að samvistum, og fór faðir hans
til Ameríku, en Sigfús var í um-
sjá móður sinnar þar til hún and-
aðist. En hún dó sama vorið og
Sigfús fermdist.
Móðir Sigfúsar var kennslu-.