Íslendingaþættir Tímans - 07.09.1968, Blaðsíða 10
MINNING
Jón M. Bjarnason
frá Skarði
Jón Bjarnason látinn.
Þar féll hreinskilnasti og djarf-
asti maður sem ég hef kjmnzt á
minni ævibraut. Kynni okkat Jóns
urðu ekki náin. Við kynntumst við
störf okkar í stjórnmálum. Þar
sem Jón vann manna sk&leggast
að sínum hugðarefnum.
Hann var einlægur vinur alþýð
unnar í orði og verki, hann vissi
og skildi að alþýðan erum við,
þú og ég. Og með því að tala máli
þinu uppskar hann góðvild og
virðingu.
Þessi fátæklegu orð mín eru
til að votta virðingu mína fyrir
góðum manni og þeim aðferðum
er hann beitti í félagsstarfi sínu.
Þar var ekkert laumuspil, heldur
var maðurinn hreinn, og beinn
og heiðarlegur, sagði án refja það
sem honum brann í brjósti. Þeir
eru fáir hans líkar, því miður.
Megi hann í æðri tilveru öðlast
það líf er hann barðist fyrir.
Pétur Einarsson.
f
Mánudaginn 2. september var
borinn til grafar frá Fossvogs-
kirkju Jón M. Bjarnason frá Skarði
1 Eyrarsveit, en síðast þjó hann
að Álfhólsvegi 95 í Kópavogi og
var starfsmaður í skrifstofu Al-
þýðusambands íslands. Hann lézt
27. ágúst eftir langa og erfiða sjúk
dómslegu. Með Jóni Bjarnasyni er
fallinn í val hinn mætasti maður
og óvenjulegur á marga lund sakir
mannkosta sinna og félagshyggju.
Jón M. Bjarnason fæddist að
Skarði í Eyrarsveit í Strandasýslu
28. okt. 1907, og voru foreldrar
!hans Bjarni Jónsson bóndi þar,
Elíassonar bónda á Klúku. Kona
.Bjarna á Skarði og móðir Jóns var
Valgerður Einarsdóttir frá Sand-
nesi.
Jón ólst upp þar nyrðra við venju
leg kjör sveitabarna á þeim Arum,
naut ekki skólanáms að ráði en
varð fróður vel af heimalestri og
nánum kynnum við lífsbaráttu og
félagslíf. Hann var ágætlega
greindur, ötull, léttur í lund og
mjög félagslyndur. Hann tók
snemma þátt í félagslífi sveitar
sinnar og var þar oftast í farar-
broddi, gegndi þegar á ungum
aldri margvislegum trúnaðarstörf
um og beitti sér fyrir framförum
og félagslegum átökum, einkum í
búskap og ræktun.
Árið 1942 kvæntist Jón Huldu
Elíasdóttur frá Lágáfelli í Staðar-
sveit hinni mestu myndarkonu.
Voru þau fyrst á Skarði nokkur
ár en fluttust 1952 suður að Svarf
hóli í Stafholtstungum í Borgar-
firði og bjuggu þar tvö ár, en
1954 fluttu þau enn búferlum og
þá suður í Njarðvík. Þar bjuggu
þau nær áratug. Jón stundaði þar
margvíslega vinnu, og lét að sér
kveða í félagslífi sem jafnan áð-
ur, enda voru honum falin marg
vísleg trúnaðarstörf, sat meðal
annars í hreppsnefnd um skeið.
Jón var alla bíð mjög ákveðinn
samvinnumaður, og í Njarðvík
beitti hann sér fyrir stofnun kaup
félags og var formaður þess um
skeið.
Árið 1963 fluttist Jón Bjarna-
son með fjölskyldu sína í Kópa
vog, kom sér upp góðri íbúð þar,
og þau hjón áttu þar skemmtilegt
og mjög aðlaðandi heimili, sem
óblandin ánægja va? að koma á,
bæði sakir vinsemdar og gestrisni
hjónanna beggja og ekki sízt fyr-
ir það, hve gaman var að spjalla
við Jón M. Bjarnason. Nutum við
kunningjar hans í Kópavogi — en
þeir urðu þegar margir — þess í
níkum mæli.
Þegar Jón fluttist í Kópavog,.
réðst hann starfsmaður í skrif-
stofu Aliþýðusambands íslands.
Hafði hann jafnan mikinn áhuga
á kjörum vinnandi stétta, lét sig
verkalýðsmál miklu skipta og
stóð jafnan heill í þeirri bar-
áttu, enda glöggur vel á þau mál.
í Kópavogi starfaði Jón mikið að
félagsmálum. Hafði hann sérstak
an hug á að greiða fyrir íbúða-
byggingum hinna efnaminni
fjölskyldna og beitti sér fyrir
auknu félagsstarfi og framkvæmd-
um í Byggingafélagi Samvinnu-
manna og að hans frumkvæði var
efnt til samvinnunefndar af bæj-
arins hálfu um þau mál og stuðn
ingur og fyrirgreiðsla við bygginga
samvinnufélög aukið eftir mætti.
Bar starf Jóns og annarra, sem
að þessu unnu þegar góðan árang
ur.
í félagsstarfi Framsóknarmanna
var Jón M. Bjarnason ætíð með
lífi og sál og var ætíð boðinn og
búinn að leggja á sig hvers konar
fyrirhöfn. Það er jafnan ánægju-
legt að starfa í félagsskap með
svo sporléttum, samvinnuþýðium
og ósíngjörnum mönnum.
Jón var ágætlega máli farinn
og skemmtilegur ræðumaður, létt
ur og fjörugur, skemmtinn og oft
fyndinn vel. Ræður hans léttu
margan fundinn og vöktu bros og
kátínu. Þó var hann mikill al-
vörumaður í afstöðu sinni til
mála, hafði mjög ákveðnar skoðan
10
ÍSLENDINGAÞÆTTIR