Íslendingaþættir Tímans - 07.09.1968, Blaðsíða 15
Svava Ingadóttir Nielsen
Ágústs af Jónasi höfðu djúp og
varanleg áhrif á viðhortf hans til
stjómmála. Gerðist hann hinn ör-
uggasti stuðningsmaður samvinnu-
hreyfingarinnar og taldi með réttu
að þau samtök myndu verða hin
mesta lyftiistöng fyrir íslenzka
bændastétt. Hann er sérlega stét-
vís bóndi, er mjög umhugað um
veg og virðingu séttar sinnar.
Hann var þegar á unga aldri ákveð
inn andstæðingur danska valdsins,
hafði bjargfasta tru á framtíð þjóð
arinnar.
Ágúst hlaut 1 vöggugjöf marga
þá eiginleika er gerðu honum
kleift að sigrast á þeim miklu erf-
Iðleikum er oft urðu á vegi hans.
Hann er prýðilegum gáfum gædd-
ur bæði til sálar og líkama, at-
orkumaður, verkmaður ágætur ráð
snjall með afbrigðum og hugkvæm
ur. Mun honum vart nokkru
sinni hafa hugkvæmzt að gefast
upp, hvað sem á bjátaði.
Ágúst á því láni að fagna að
eiga ágæta konu, sem hefur verið
honum hinn traustasti lífsförunaut
ur. Er sambúð þeirra óvenju góð,
enda eiga þau svo vel skap sam-
an að slíkt er fágætt. Þau eru
jafnan með glöðu bragði, gestrisin
og greiðvikin með afbrigðum.
Þau hjónin eignuðust tíu börn,
sem öll eru á lífi. Öll eru þau hin
uiannvænlegustu, góðir og nýtir
þjóðfélagsborgarar, nú stoð og
stytta sinna öldruðu foreldra, stolt
þeirra og gleði, enda er uppeldi
þessa stóra og glæsilega barna-
hóps hið mesta afrek þeirra sam-
eiginlega. Börnin eru þessi:
Karl Ásgrímur, sölustj. á Akur-
,.eyri, Helga Jóhanna, gift á Akur-
eyri, Ingibjörg Vilhelmína, ekkja á
Sauðarkróki, Sigrún Halldóra, gift
í Reykjavík, Björn Arnar, bóndi í
Hjaltastaðaþinghá, Halldór Ragn-
ar, bóndi í Hjaltastaðaþinghá, Guð-
jón Sverrir, starfsm. hjá Selfoss-
hreppi, Guðgeir, fulltrúi hjá Sam-
vinnutryggingum, Reykjavík, Skúli
Björgvin, rafvirkjameistari á Sel-
fossi, Rannveig Heiðrún, gift á Sel-
fossi.
Ég lík máli mínu með þvi að
votta Ágústi og fjölskyldu hans
hugheilar þakkir fyrir alla vin-
somd í minn garð bæði fyrr og
síðar og óska þeim gæfu og geng-
ís á ókomnum árum.
Skúli Þórðarson.
ÍSLENDINGAÞÆTTiR
Fædd 13. maí, 1926.
Dáin 16. ágúst, 1968.
Svava var dóttir þeirra hjóna,
Guðlaugar Erlendsdóttur og Inga
Halldórssonar, bakarameistara í
Reykjavík.
Svava mun hafa fengið gott upp-
eldi. En, þó að heimili foreldar
hennar teldist all vel bjargálna, þá
mun Svövu svo og öðrum tveimur
dætrum, fljótleg hafa skilizt, að
•án vinnu og fyrirhafnar, verður
litlu áorkað. Svava tamdi sér að
einbeita kröftum sínum að því,
sem hún tók sér fyrir hendur
hverju sinni, enda skapmikil og
góðum gáfum gædd.
Að loknu barnaskólanámi hóf
hún nám í Verzlunarskóla íslands
og lauk þaðan prófi vorið 1944,
með ágætum vitnisburði. Á skóla-
árunum vann Svava á sumrin, m.a.
í tvö sumur á Skrifstofu Ölgerðar-
innar Egill Skallagrímsson í
Reykjavík. Að loknu prófi í Verzl
unarskólanum hóf hún störf
hjá 0. Brynjólfsson og Kvar-
an, og starfaði þar í rúm-
lega tvö ár. Síðan dvaldist
hún í Englandi í tæplega
eitt ár, við framhaldsnám. Eftir
heimkomuna hóf hún störf hjá
Loftleiðum í Reykjavík og starfaði
þar, þar til að hún giftist og stofn-
aði heimili.
Þó að Svava hafi, vegna góðra
hæfileika sinna, haft gott og vel
launað starf, þá kaus hún þó held-
ur húsmóðurstörfin.
Hinn 5. janúar árið 1952 giftist
hún eftirlifandi manni sínum
Gunnmari Ö. Nielsen, ættuðum frá
Seyðisfirði, þáverandi sölustjóri hjá
Heildverzluninni Eddu í Reykja-
vík.
Svava lagði sömu alúðina við hús-
móðurstörfin, sem önnur störf.
Eignuðust þau hjón brátt myndar-
legt heimili, þar sem velvilji, hlýtt
viðmót, glaðværð og gestrisni réði
ríkjum. Varð þeim tveggja barna
auðið, sem eru Guðlaug 16 ára,
nemandi í Verzlunarskóla íslands
og Gunnlaugur Pétur 6 ára, bæði
efnileg börn.
Fljótlega, eftir að þau Svava og
Gunnmar giftust, hófu þau sjálf-
stæðan heildsölurekstur. Hafa þau
hjónin verið mjög samhent um
heildsölureksturinn, svo sem um
annað. Er Gunnmar vel virtur verzl
unarmaður, bæði innan sinnar stétt
ar og utan.
Við, samferðafólk Svövu, eigum
erfitt með að sætta okkur við það.
að hún skuli ekki lengur vera hér
á meðal okkar, en svo er þó kom-
ið.
Vinir hennar og fjölskylda
þakka langa vináttu, nú þegar leið-
ir skiljast að sinni.
Ég, sem þessi fáu orð skrifa,
votta eiginmanni og börnum sam-
úð mína, svo og öldruðum föður,
sem missti konu sína þegar hún
var á bezta aldri, og verður nú
einnig að þola missi sinnar elztu
dóttur.
Ég veit að hinir fjölmörgu
vinir Svövu og fjölskyldu hennar á
Hjarðarhaga 19, þakka henni góð
kynni og vinsemd, um leið og þeir
senda ástvinum hennar og fjöl-
skyldu sínar innilegustu samúð-
arkveðjur, yfir fráfalli þessarar
góðu og mikilhæfu konu, sem okk-
ur finnst öllum að' allt of fljótt
hafi verið kvödd héðan.
ólafur Svcrrisson.
15