Íslendingaþættir Tímans - 24.01.1969, Page 6

Íslendingaþættir Tímans - 24.01.1969, Page 6
varpstæki þegar á fyrstu mánuð- um tilraunaútvarps hér á landi, löngu á undan Qðrum bændum. Það var eitt af fágætinu á Ing- unnarstöðum fyvir fjörutíu árum að fá að setja á sig heyrnartól og heyra raddir manna suður í Reykja vík. Af útvarpinu var hann svo hugfanginn, að .fyrir hans atbeina komu útvarpstæki mjög snemma á /bæi kringum hann. Svo veit ég með vissu, ^ð var um æsku- heimili mitt. Hann fékkst einnig við að finna upp og smíða smátæki, og man Þórey Björnsdóttir Bólstöðum Reyðarfirði F. 30.12 1911. D. 22.10 1968 Gott er sjúkum að sofa, svefninm er náðargjöf, líkama þreyttum að lofa langþráðri að hvílast í gröf Sálin er létt, og líður langt út í bláan geim. þar sumar og sól hennar bíðuir í síbjörtum friðarheim. Við aveðjum þig vina mín kæra hve mí'kil hetja þú varst og margt hefðum mátt af þér læra. Þú margfaldar raun'irnar barst, án þess að æðrast né ikvíða örlaga bergðir þú Skál. Þungbæra þraut máttir líða, þó var svo heilbrigð þfn sál. Börnin þín blessa þær stundir, er bjuggu við móðuryl þinn, hve mjúkar voru þær mundir er milt þerruðu tárin af kinn. Móðir þín kvéður með klöktova kæra ástvininn sinn, hennd í heimi finnst rökkva við hérvistar skilmaðinm. Systkini og vinir þig syrgja svo sárt, þú ert horfin á braut. Sorgarský sóOána byrgja, en sól þín er losnuð frá þraut. Losnuð úr líkamansböndum, er lét hana faigna um stund að sumarsins sólgullnu ströndum xiú svífur á ástvin'arfund. Ragna S. Gunnarsdóttir. ég eftir markatömg, ©r hann gerði. Með henni var bæði fljótlegrá og þægilegra að marka lömbin héld- ur en nota til þess hníf. Um eibt skeið fékkst hann við að móta myndir í leir, og er enn til brjóst- mynd, er hann gerði af systur sinni látinni. Ingunnarstaðahjónin voru mjög ólík, jafnt að útUti, skaphöfn og áhugamálum, og þó bæði mæt, hvort á sinn hátt. Guðrún stór kona, döfek á brún og brá, stór- skorin í andliti. Hún var gædd af- burðadugnaði, víkingur til vinnu og iðjusöm og þrautseig að sama ekapi. Áhugamál hennar voru heimitíð, velferð vina og vanda- manna, búreksturinn og/ skepn- urnar, sem hún sýrndi óbrigðula umhyggju, og er það, að ég ætla, að órækt vitni hverjum manni um gott hjartalag. Henni var mjög fjarri skapi að berast á og mun hafa þótt meira að gilda að vera en sýnast. Skaprik ætla ég, að hún hafi verið, þótt þess gætti ekki að jafnaði, gat verið umvöndunar- söm, ef brotið var gegn þeirn siða- lögum, er hún hafði tileinkað sér, en þó grandvör í orðum og gerð- um og forðaðist Ihlutun um þau málefni, er hún taldi sig ekki varða. Einn ríkasti þáttur skap- gerðar hennar var þó fágæt trú- mennska og tröllaitryggð, sem aldrei brást þeim, er öðlazt höfðu vináttu hennar. Bæði voru þau hjón mjög samhent um mikla gest risni. Lúther var fremur smár vexti, ljós yfirlitum og fríður sýnum, áreiðanlega kvennagull á yngri ár- urn. Hann var maður sérlegá barn góður, og yfirleibt hygg ég, að hjarta hans hafi jafnan staðið með þeim, er minna máttu sín. Hann var samkvæmismaður að eðlisfari og kunni vel gestakomum, ræð- inn og skemmtinn, frjálslegur í tali, fylgdist mjög með hvers kon- ar málefnum, eins þeim sem fjarri starfsvettvangi hans, afdráttaríaus í skoðunum sínum og fór sínu fram, þar sem hann átti málum að ráða. Hann var kappræðumað- ur mikill, stundum einsýnn og ó- væginn í dómum og ályktunum, en hélt þó málflutningi sínum inn an þess ramma eða talaði í þeim tón, að viðmælendur þyrftu ekki að styggjast. Þau voru orðin mörg kvöldin, er hann gekk um gólf í stóru stofunni á Ingunnarstöðum og rökræddi hvers konar mál við gesti sína. En þrátt fyrir lifandi áhuga sinn á margs konar málium, varð hann ekki kallaður félagslynd ur í þröngri merkingu þess orðs. Hann gaf sig ekki að sveitarmál- um umfram það, er snerti hann sjáifan, og hann tók ekki þátt í félagsstanfi, og sM'kt yndi, sem hann hafði af því að blanda geði við aðra, vildi hann sem sjaldn- ast fara út af heimili sinu, áð minnsta kosti ekki hina síðari ára- tugi. T1 Reykjavíkur gat varla heitið að hann kæmi, eftir að bræður hans, er hann átti mest sanian við að sælda, voru látnir. Þótti honum þai’ og mörgu önd- vert farið við það, er veira ætti. Nú er rödd Lúthers hljóðnuð og heyrist ekki framar, og Guðrún gengur ek'ki oftar um beina. Ingunn'arstaðahjón þurftu hvor- ugt að liggja lengi á sóttarsæng, þótt bæði væru lasburða hin alira síðustu misseri. Lúther aridaðist 23. september og var borinn tii grafar í Foissvogskirkjuigarði í Reykjavik. Síðustu fyrirmæli hans voru þau, að láts síns yrði að engu getið, fyrr en hann hefði verið moldu ausinn. Þegar hann var lát- inn, var líkt og Guðrún fyndi, að ævihlutverki sínu væíi iokið. Hún þurfti ek'ki léngur að beita vilja- styrk sínum til þess að halda upp- réttu höfði. Hvíldartími hennar var einnig kominn og 29. otkóber andaðist hún. Eftir er á lífi aðeins ein Þórustaðasystra, K'risitín, er langdvölum var öft á Ingunnar- stöðum, nafnkunn saumakona á siðari tíð. Það hafði áður verið ákveðið, að Guðrún hlyti leg að Saurbæ á Ilval fjarðarströnd, þar sem hvíla for- eldrar hennar og tveir bræður, sem dóu ungir. Sjálf ítrekaði hún það, áður en hún gaf upp öndina. Lúther var þrátt fyrir a-llt sonur Reykjavíkur. -Guðrún lifði nálega allt sitt líf í þrem dölum — Svína- dalnum, þar sem hún sleit barns- skónuim, Botnsdalnum, þar sem hún var æsfeuár sín, og Brynju- dalnium, þar sem hún átti þroska- ár sín öll og elliár. Reiði moldin í Saurbæjargarði henni þæga hvílu. Þannig s streymir elfa tímans. Einnig í ifiannheimi heimtar haust ið sina uppskeru. Eftir lifa fjögur börn þeirra hjóna: Hafsteinn, bæj- arstarfsmaðuir á Akranesi, nieð nokkurn búskap í Hrísakoti fram að þessu, kvæntur EMsabetu, þýzkri 6 IslendingaþættiR

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.