Íslendingaþættir Tímans - 24.01.1969, Blaðsíða 11
MINNING
Sverrir Guðmundsson
bankafulltrúi
Fyirir nokkrum vikum var sá er
Petta ritar á nefndarfundi hér í
b&num ásamt Sverri Guðmunds-
*yni, bankafulltrúa, og fleirum.
Ekk; grunaði mig þá að svona
skammt væri til andláts hans, því
Sverrir var þá að vanda skýr í
hugsun, tillögugóður og hélt fast,
en þó af sinni venjulegu prúð-
mennsku og tiilitssemi, við þau
sjónarmið sem hann taldi því máli
sem um var rætt, fyrir beztu. En
^ér hefur farið sem oft áður, að
i.Skjótt hefur sól brugðið sumri“
Sverrir andaðist í Landsspítalanum
i Reykjavík 28. f.m., en útför hans
var gerð frá ísafjarðarkirkju 3. þ.
m að viðstöddu fjölmenni.
Sverrir Guðmundsson var
íæddur á ísafirði 23. desember
1909. Voru foreldrar hans hjónin
Sigríður Benjaminsdóttir, ættuð úr
Hvrafirði, og Guðmundur Guð-
niundsson, smiður, ættaður úr Arn-
arfirði. Ólst Sverrir upp með for-
eldrum sínum hér í bænum. Hann
stundaði barna- og unglinganám,
°g síðar var hann við nám í Sam-
vinnuskólanum og lauk þaðan prófi
Vorið 1932. Næstu árin stundaði
hann skrifstofuvinnu o.fl. störf hér
* hænum, en á árunum 1936—1940
var hann skrifstofumaður og gjald-
keri Sjúkrasamlags ísafjarðar. Síð-
an hefur hann verið starfsmaður
Rtvegsbanka íslands, útibúsins á
Isafirði, fyrst gjaldkeri og síðan
aðalbókari og fulltrúi.
Sverrir Guðmundsson var mað-
nr mikillar félagshyggju. Alla tíð
lét hann sig miklu varða málefni
Verkalýðsfélagsins Baldurs á ísa-
firði, var lengi í stjórn félagsins
og mörg ár formaður þess. Hann
átti oft sæti í samninganefndum
fyrir félagið.
í mörg ár var Sverrir endurskoð
andi Kaupfélags ísfirðinga og
hafði jafnan mikinn áhuga fyrir
jnálefnum félagsins. Þá var hann
> mörg ár í stjórn Rafveitu fsa-
fjarðar, og hann sat nokkuir .ár í
bæjarstjórn fyrir Alþýðuflokkinn
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
og átti oft sæti í mörgum nefnd-
um á vegum bæjarstjórnar ísa-
fjarðar, m.a. var hann formaður
þeirrar nefndar sem sá um bygg-
ingu fjöllbýlishússins við Túhgötu,
sem tekið var í notkun nú í haust.
í þágu íþróttamálanna lagði Svenr
ir Guðmundsson fram mikið og
gott starf. Hann stundaði mikið
knattspyrnu á yngri árum og í
mörg ár var hann formaður knatt-
spyrnufélagsins Harðar. Þá_ var
hann sæmdur heiðursmerki ÍS og
gullmerki ÍSÍ fyrir mikil og marg-
háttuð störf að íþróttamálum. Að
ýmsum öðrum félagsmálum vann
Sverrir þó þeirra verði ekki getið
hér.
Sverrir Guðmundsson var mann
kostamaður sem bar mjög fyrir
brjósti hagsmuni þeirra sem minna
máttu sín. Hann var ágætlega
greindur og mér fannst hann jafn
an íhuga vandlega hvert málefni
áður en hann tók afstöðu ti!l þess.
Hann var hið mesta prúðmenni í
umgengni. Allan aldur sinn ól hann
hér í bænum, og þess varð oft vart
að hann vildi hagsmuni ísafjarðar
sem mesta í öllum greinum.
Eftirlifandi eiginkona Sverris er
Unnur Gísladóttir, mjög starfhæf
og dugmikil kona. Þau eignuðust
tvö börn, Sigríði, sem er gift og
búsett hér í bænum, og Hallstein,
prentara, sem er kvæntur og bú-
settur syðra.
J'ón Á .Jóhannsson.
Cuðrán Magnúsdóttir
Stóris-Borg
Fædd 1. des. 1884.
Dáin 1. nóv. 1968.
Þú ert, góða Guðrúr mín, af
grátnum vinum kvödd,
en þér var kallið kærast, því
hvíslaði guðleg rödd
Leiki olítt, Ijúft og þýtt, lagið
undur milt,
ég kveð mér hljóðs þó harpan
óðs -é harm.i fyllt.
Hún þarf samt að svngja þér
sóiarlióð og vor,
þínum unga anda með æskufjör
og þor,
Léttum móð glettnvsglóð gylla
léztu allt, i
allir fúsir í þitt hús og enguiri
þar kalt.
Man ég Stóru Borw bú, barn er
gisti ég þar,
allt, bæði úti og inni í umsjá
þinni var.
Ekkert stríð alla tíð unnið gat
þér mein,
þú réðst standa í stórum vanda
styrk og bein.
Yfirboröið eitt ég sá, sem æsk-
• unni er títt,
vel gekk allt hið ytra, að öðru
hugði ég lítt.
Þú varst glöð, góð og hröð,
gamansöm og létt,
helzt ég vildi að tendast skild-
um hlaupasprett.
íramhald á bls. 23.
11
/