Íslendingaþættir Tímans - 24.01.1969, Blaðsíða 20

Íslendingaþættir Tímans - 24.01.1969, Blaðsíða 20
NNING EMELIA SÖBECH Emelía Þórðardóttir fæddist hér i Reykja.vík 15. júní- 1903. Foreldr- ar liennar voru Þórður Jónsson frá Skipanesi 5 Borgarfirði og Sigríð- ur Ólafstióttir frá Traðarbakka á Akranesi. Föður sinn missti Emi- lía aðeins tveggja ára gömul og fiuttist með móður sinni og systur tii 'Vestmannaevja, en þar giftist Sigríður. Guðmundi Magnússyn/ frá Löndum í Vestmannaevjum. Stjúpföður sinn dáðu þær systui enda var Guðmundur sérstakt ijúí menni og börnum sínuni ástkær fað ir. Þau hjónin fluttust til Reykja- víkur-með fjölskvldu sína. er Emi- lía var enn ung stúika. og áttu hér heima síðan eða þar til þau létust árið 1957. Árið 1930 giftist Emilia, Þór- arni Söebecli. ættuðum frá Revk.ja firði og áttu þau hér ávallt heima, að undanskildu f.jögur síðustu árin sem Þórarinn lifði. er þau bjuígu i Kópavogi. en Þórarinn lézt 12. janúar 1962 H.jónaband þeirra Emi líu og Þórarins var eins og bezt verður á kosið og ávöxtur þess varð tveir drengir. þeir Friðrik Ferdin- and og Sigurður Þór, sem nú eru báðir kvæntir menn og margra barna feður. Emilía hafði ekki gengið heil til kógar, í þrjátiu ár hafði hún þ.iáðst af erfiðum sjúkdómi og var vart ferðafær síðustu árin. En Emilía æðraðist aldrei — hún ,var trúuð kona og kjarkmikil og má segia að trúarstyrkur hennar hafi hiálpað þessar fátæklegu línur með þvi að þakka þér órofa tryggð og vináttu við mig og mina frá þvi fyrsta ti)l þess síðasta. Og þess vildi ég mega óska, er ég flyzt yfir í fyrir- heitná landið, að ég fái þig þar fyrir nágranna eins og hér Betri granna get ég ekki hugsað mér öldruðum föður og öðrum að- standendum bið ég blessunar guðs. Rögnvaldur Erlingsson. mest til að hún fékk nokkra sjón aftur, eftir blindu, sem stafaði frá sjúkdóm þeim er hún gekk með. Eitt stærsta leiðarljós Emilíu síð- ustu árin var sonardóttir hennar, sem liún ól upp sem dóttur sína, var mikill kærleikur með þeim og verður ekki ofsagt að Katrín hafi orðið augasteinn Emilíu í stað þeirra er hún hafði misst. Elsku systir, það er svo erfitt að trúa þvi að þú sért farin frá okkur — að hitta þig svo káta og ham- ingjusama á aðfangadag, og fá svo að vita á sjálfan jóladaginn, að þú sért horfin þessum heimi. Ég get ekki trúað því að hið daglega samband. okkar ,sé svo skyndilega rofið og ég fái ekki að sjá þig hérna megin aftur. Elsku Emilía mín, um leið og ég þakka þér aha ástúð þína, all- an kærleika þinn, bið ég guð að blessa þig og varðveita. Ég bið guð að styrkja drengina þína, tengda- dætur og börn þeirra og ekki hvað sízt Katrinu litlu. "Ó systir mín, ég felli sorgartár og syrgi beztan Aíín svo sárt og heitt við áttum saman ótal indæl ár og ekkert skvggði á millum okkar neitt. Allþ frá því að árin voru ung, og að þeitn degi er þú hvarfs á braut. Mörg þín spor af þrautum voru þung þerruð mörg tár er féllu þér í skaut. En alitaf voru bros þín niikl og blið og b.jartur hlátur létti mína lund. Minning þin er með mér alla tíð og tnynd þín dvelur hjá mér hverja stund. Sá var enginn dagur, Emma mín> að ekki ættum sarnan litla stund- Mér er svo kært að ég kom til þín kvöldið fyrir himnaföðursfund. Aðfangadag ég sat við þína sæng og sá í augum þínum gleði og frið. Drottinn hafði ljáð þér l.jóssins væng og látið engla vaka þér við hlíð- Mér er huggun harmi fiiínum * að hjarta þitt var glatt til hinztu stundar. Og við sem vökum, vermum okkur >. veröld þeirri sem þú kyrrlát blundar. Ó Drottinn, þú þekkir hjartans hlið og hlustar eftir öllum bænum mínuni veittu systur minni sálarfrið og sæluvist í blíðum faðmi þínum. Veittu þeim sem sakna, friðar- faðminn fósturdóttur, ættingjum og sonúm styrk þú þá, sem ekki finna friðinn fylltu hjörtu þeiri'a björtum vonum- 2. janúa'r 1968. Jóna Guðrún Þórðardóttir- 20 ÍSLEMDINGAÞÆTTiÉ

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.