Íslendingaþættir Tímans - 24.01.1969, Blaðsíða 7

Íslendingaþættir Tímans - 24.01.1969, Blaðsíða 7
MINNING Jófríður Kristjánsdóttir frá Furubrekkú 'Hinn 11. desember sl. lézt í SjúkraJiúsinu í Styik'kishólmi frú Jó- fríðuir Kristjánsdóttir frá Furu- frrekku, rúmlega áttræð að aldri. Jófríður var fædd 18. okt. 1888 á Ytra-Lágafelli 1 Mikiaholtshreppi, °g voiru foreldrar hennar Kristján Elíasson bóndi þar og kona hans Vigdls Jónsdóttir frá Hólkoti í Stað- firsveit, myndar- og sæmdarhjón. - Börn þeirra voru 4 fyiir utan Jó- íríði, en hin voru: Steinunn hús- *reyja 1 Bergáholti, Elías bóndi á Elliða og Ytra-Lágafelli, Ragnheið- hr húsfreyja í Straumfjarðartungu °g Jóhann bóndná Syðra-Lágafelii, ®em öll eru nú Játin. Öll þessi syst- kini voru vel gefin og hin gervi- ^egustu og öll töluvert s'káidmælt. Jófríður ölst upp 1 foreldrahús- 'Ulh ásamt systkinum sínum við “heiri menningarbrag og bókakost 611 þá var títt og varð þvi snemma bókhneigð og fróðleiksfús. Tvær írændkonuir þeirra Lágafells- 8yotkina voru í fóstur teknar af íoreldrum þeirra og eru þær báðar ú lífi. Sigríður Þórðardóttir í Ólafs- ''ú’k og Elísabet í Keflavík og var ^in síðarnefnda dóttir Steinunnar, en var elzt þeirra Lágafellssystra. Kjá foreldrum sínum dvaldist Jó- fríður til 1915, en þá hóf hún bú- ®kap á Elliða í Staðarsveit með unn bsta sínum Páli Þórðarsyni frá Horgarholti, góðum dreng og traustur. Reyndist hann henni tnaustur förunautur alia ævi, og á ^onu, Bjöm, bóndi á Ingunnar- stöðum, kvæntur Arndlsi Einars- óóttur frá Melum á Kjalarnesi, Hristbjörg, húsfreyja á Þrándar- stöðum, ekkja Ástvalds Þorkels- sonar frá Þorbjarnarstöðum í Hraunum, og Alexíus, vélamaður í Reykjavík, kvæntur Ingibjörgu ^iagnúsdóttur frá Hrauni í Grinda vík. En alls eru niðjar Ingunnar- ®taðahjóna nú tuttugu og sjö. J.H. sambúð iþeirra féll aldrei skuggi. Gengu þau svo 1 hjónaband einu og hálfiu ári síðar. Á Elliða bjuggu þau í 6 ár í samhýli við Einbjörn bróður Páls og Ragnheiði systur Jófríðar. Fluttu svo frá Elliða að Furubrekku í sömu sveit. Þar bjuggu þau í 34 ár og voru jafn- an við þann bæ kennd eftir að þau hættu búskap og fluttu úr Staðar- sveit, en búskap hættu þau vorið 1955 og áftu heima í Grafarnesi við Grundarfjörð eftir það. Á með- an þau bjuggu á Furubrefcku voru þau jafnan rómuð fyirir gestrisni og bjálpsemi og var oft gestkvæmt á heimili þeirra. Aldrei urðu þau þó auðug á veraldarvísu, en höfðu ætíð nóg fyirir sig að leggja og undu .glöð við sitt. Tvo syni eign- uðust þau, Þórð og Jóhannes, sem báðir eru á lífi. Þórður búsettur á Álafossi, en Jóhannes í Borgar- nesi. Þau ólu einnig upp tvær stú-lk ur, Aðalheiði og Fríðu Berglind dóttur hennar og reyndust þeim eigi síður en sonum sín-um. Eru þær báðar á lífi og minnast þeirra með virðingu og þakfclæti. Eins og fyrr getur var oft gest- kvæmt á heimili þeirra á meðan þau bjuggu á Furúbrekku. Minn- ist ég sem þessar línur rita margra ánægjustunda á heimiiU þeirra. Bæði voru vel greind og kunnu frá mörgu að segja og bæði hagorð þó þau héltíu því eigi mik- ið á lofti. Jófríður var sérsta'Mega félagslynd kona. Þegar M.M.S. Stað airsveitar var stofnað árið 1912 var hún einn stofnandi þess og starf- andi félagi um nokkurra ára skeið. Hún var líka ein þeirra kvenna, sem stofnuðu kvenfélagið Sigur- von í Staðarsveit, en það er nú 40 ára gaimalt. Meðan hún var í Stað- arsveit var hún jafnan meðlim ur þess og formaðu-r þess um skeið. Lagði hún ætíð gott til allra mála, sem hún taldi góð og gagnleg. Þannig átti hún frumkvæðið að kvöldvö'kum sem kvenfélagið liélt lSLENDINGAÞÆTTIR 7

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.