Íslendingaþættir Tímans - 24.01.1969, Blaðsíða 12

Íslendingaþættir Tímans - 24.01.1969, Blaðsíða 12
G Kristján Karlsson Ekkert þekkjum við öruggara en það, að hverri fæðingu fylgir dauði, hvert einasta nýtt líf hlýtir þvi lögmáli að tortímast. Þó er það svo, að við teljum heimsókn dauð- ans til válegra tíðinda og löngum því válegri, sem hann ríður geyst- air í garð. En í rauninni stöndum við alitaf jafn vanmáttug gegn hon um, hversu sem hann drepur á dyr okkar. Ég hefi sjaldan fundið þetta betur en þegar helfregn Kristjáns Karlssonar barst mér til eyrna. Við höfum starfað í slíku mágrenni s.l. fimm ár, að milli okkar hefur alltaf verið innan- gengt, og má jafnvel telja það í viðari merkingu en aðeins um húsa kost. Ég hygg, að óg hafi engan af þessum grönnum mínum sótt jafnoft heim og hann. Ég sendi honum því heilshugar þakkar- kveðju yfir landamærin, ef þess er kostur, og þá ekki aðeins fyrir hlýjuna, sem mætti mér þar, held- ur engu síður fyrir ylinn, sem fylgdi honum inn í stofuna mína, þegar hann leit þar inn að loknu dagsverki, sem mig raunar furðar nú, hversu oft henti, með svo önn- um hlaðinn mann. Og síðasta kvöld ið, sem hann átti leið fram hjá dyr um mínum, hafði hann nægan tíma ti] að rabba við mig um sameigið hugðarefni beggja, jafn hlýr og jafn leitandi og löngum fyrr. En þess eins er ekki að minnast í sam- skiptum okkar. Ógleymdar eru mér og minningar, sem mór er tor- velt að lýsa, minningar frá hinum mörgu komum mínum inn á hið vinMýja heimili þeirra hjóna, um gestrisni þeirra, um glimu þeirra við vandamál hinnar líðandi stund ar, um hina vökulu leit þeirra að lausn þeirra viðfangsefna, sem við horfðu hverju sinni. Áður en þetta nágrenni okkar hófst, hafði fundum okkar Kristj- áns borið alloft saman, en oftast aðeins á förnum vegi. Ég hafði átt þess nokknuim sinnum kost að vera gestur hans, en sjaldan nema í fjöí menni, þar sem hinn almenni ges* skólastjóri ur hvarf. En þar reis hann því hærra, því fjölmennið átti flestra sinna kosta völ þar, sem hann var og kona hans. Fyrst þegar ég barst í straumi slí'ks fjölmennis heim að Hólum, eftir að þau komu þar til valda og í fyrsta sinn, er ég sá þau, vakti stjórn þeirra á fjölmenninu athygli mína. Ég sá hana hvergi, þó fann ég hana í hverju atriði, sem ég náði nokkr- um kynnum af. Ég tel mig síðar hafa síðar fengið svar við því, sem ég velti fyrir mér þá. Það var hin góðviljaða og vökula önn skóla- stjórans og konu hans, sem að baki honum stóð á þann hátt, að í rauninni var flestum þökk á að fá að hlýða. Slíkt er fáum gefið. Haft er eftir Beethoven: „Ég þekki ekkert annað merki mlkilmennis en góðviljann“. Ég hygg, að það hafi einmitt verið hann, sem þar réði ríkjum, hygg, að hann hafi ver ið aðailsmerki þeirra hjóna. Þann- ig komu þau mér fyrir sjónir æ síðan. Kristján var flestum mönnum óliklegri til að berjast til forustu. Hann mun ætíð hafa verið kvadd- ur til hennar af samferðamönnun- um — leitað til han-s um liðveizlu við góð mál. Til þess var hann löngum auðkeyptur, en ekki met- orðanna vegna, heldur vegna löng- unar hans til að leggja fram sína orku og þekkingu í baráttu sam- tíðarinnar fyrir bættum hag þeirra, er honum voru samferða. SMk sýndist mér og samstaða þeirra hjóna um þau viðfangsefni, sem þeim mættu eftir að ég fór að hafa nóin kynni af háttum þeirra og hugðarefnum. Þau komu mér fyrir sjónir sem sjálfstæðiir en sam stæðir vinir, ólíkir þó, en með ó- venju glöggum skilningi á því, að „viðurgefendur og endurgeíendur eru vinir lengst“. Jóhannes úr Kötlum segir frá því, að fyrstu kynni þeirra Kristj- áns hafi verið þau, að Jóhannes hafi gist hjá þeim hjónum á Hól- um og Kristján hafi komið til sín um morguninn „ársæll og fersk- ur“. Ég dáði þessa einföldu og óvenju fögru mannlýsingu, þegar ég las hana. Hitt þykir mér nú meir um vert, að Kristján var ársæll og ferskur til leiðarloka, jafnt í ströngustu önn og þegar hann leitaði hvíldar heima. Þessi ársæld og ferskleiki var hluti af honum sjálfum, Mfsskoðun hans og lífsnautn, aflvakinn að dreng- lyndi hans. Um leið og ég þakka samskipti okkar, sendi ég þeim samúðar- kveðjur, er um sárast eiga að binda. Guðm. Jósafatsson — frá Brandsstöðum. t Fram til síðustu kynslóða hafa flestir íslendingar verið fæddir og uppaldiir í sveit. Sveitirnar lögðu til fólk í ailar hinar nýju stéttir: sjómenn, embættismenn, iðnaðar- menn, verzlunarmenn, hvers kon- ar þjónustumenn, mennta- og fræðimenn. Svona hlaut þetta að verða, framfaraþróunin krafðist verkasikiptingar, sífellt færri hend ur komust að við frumframieiðsl- n IslendingaþættiR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.