Íslendingaþættir Tímans - 24.01.1969, Blaðsíða 18

Íslendingaþættir Tímans - 24.01.1969, Blaðsíða 18
Valgerður Jónsdóttir. Fædd 1 maí 1879 Dáin 2. jan. 1968. Bjami Sigurðsson Fæddur 26. jóní 1875. Dáinn 26 janúar 1965. björg Halifríður, næst elzt, hún lézt í Reykjavík 16. apríl 1935 eft- ir margra ára vanheilsu, 26 ára að aldri, nýgift Þorleifi Thorlacius, skipasmið. Yngst barnanna er Anna Guðrún, heimili hennar er á Ökrum, Seltjarnarnesi Á Sauðárkróki bjuggu þau í 14 ár, þar vann Bjarni alls konar störf, þau áttu fyrst framan af nokkrar kindur, geitur og hænsni, eiiís og fleiri á Sauðárkróki í þá daga, einnig var hann sláturhús- 'stjóri á haustin, hjá Kristjáni Gísla syni kaupmanni par Á vetrum fékkst hann við bókband og ýmsar iagfæringar fyrir hina og aðra, og þegar Iítið var um vinnu á Sauðár- króki, fór hann til annarra lands- hluta, og vann þar tíma og tíma eftir því sem atvincu var að fá, því oft var lítið um vinnu heima fyrir á ýmsum tímum ársins í þá daga. I félagsmálum var hann einnig starfandi við leiklist og söng, hann var einn af stofnendum Bænda kórsins, karlakórs, sem starfaði í mörg ár í Skagafirði og söng víða um sveitir, og þótti flestum er til hanS heyrðu, hann vera til mikils menningarauka á beim árum, sem og hann einnig var. Glaðlyndi Bjarna og félagsandj urðu til þess að hann var eftirsóttur félagi og átti hann því marga vini og kunn- ingja, sem lögðu leið sína heim til þeirra hjóna. Og bað var oft gest- kvæmt á heimili Valgerðar og Bjama, sérstaklega á haustin í slát urtíðinnl og svo á miðjum vetri, þvi þá var venjulega hln víðfræga Sæluvika Skagfirðinga haldin á Sauðárkróki, með alls konar listi- semdum, og þangað komu alllr sem gátu í einn eða tvo daga, til að njóta þar ánægjunnar af því, sem þar fór fram, þá var oft svo margt um manninn hjá þeim hjón- um að þau gengu iðulega úr rúm- um sínum vegna næturgesta. Gest risni þeirra var þekkt og þegin af skyldfólki þeirra beggja, viðsvegar úr Skagafjarðarsýslu. Hjónaband þeirra Valgerðar og Bjama var mjög gott, þó skapgerð þeirra væri mjög ólfk á ýmsum sviðum, hún var fyrirmyndar hús- móðir, góð móðir og þrifin og reglusöm á öllum sviðum og leysti allt mjög vel af hendi, sem hún tók að sér. Árið 1925 fluttu þau suður á land, fyrát til Hafnarfjarðar, og voru þau þar til heimilis í 3 ár. Þaðan fóru þau fcil Reykjavikur, Bjarni stundaði aðallega húsasmíð- ar, en ekki var hann faglærður í þeirri iðn, en leysti samt öll sín verkefni vel af hendi. því æfingin gerir meistarann, enda alla ævi unnið við smíðar. Á seinustu árum ævi sinnar, þegar hann var hættur að vinna við smíðar, sneri hann sér eingöngu að bókbandsiðjunni og stundaði nana, þangað-til að heils- an fór að bila fyrir alvöru, og h^nn varð að hætta Síðustu 20 árin bjuggu þau á Seltjarnarnesi, í húsi Steinars son- ar síns og tengdadóttir, Hróðnýjar Pálsdóttur, þar bjuggu þau unz heilsan bilaði og hann varð að leggjast á sjúkrahús um tíma, þá fluttist hún til dóttur sinnar Önnu og tengdasonar, Guðmundar Jóns- sonar að Ökrum á Seltjarnarnesi. Þangað kom Bjarni þegar hann kom af sjúkrahúsinu og var að mestu rúmliggjandi það sem hann ótti eftir ólifað, síðasta mánuð ævi sinnar lá hann á sjúkrahúsi og and aðist þar.. Valgerður var heilsugóð og hafði fótavist fram undir það síðasta, hún naut þess lengst af þegar gestl bar að garði, og hafði yndi af því að eiga alltaf eitthvað goti 1 handraðanum tll að gleðja litla frændfólkið sitt með, þegar það kom til hennar í heimsókn. Síð- asta sumarið sem hún lifði, hrak- aði heilsu hennar áberandi mikið, og um haustið var hún við rúmið af og til, fram í desembermánuð, þá var hún flutt á sjúkrahús, og andaðist hún þar eftir eins món aðar legu. Ég undirrituð sem skrifa þessa minningar-grein, vil með því kærU foreldrar votta ykkur hjartans þakklæti, fyrir alla ykkar ómetan legu hjálp og aðstoð við okkur hjónln, er við bjuggum norðan- lands, með því að taka að ykkur «yni okkar á méðan þeir voru við sltt nám hér í Reykjavík, Óskar, sem kom til ykkar rétt eftir fe'i'111 ingaralduir og dvaldi á heimili ykk ar á meðan hann var við prent' nám og þangað til hann gifti siS og stofinaði heimili sjálfur. Og hjá ykkur var hans annað heimili hér syðra á meðan hann llfði. Hann var aðeins 26 ára Peý air hann drukknaði og lét eftir sig konu og tvær dætur. Við þökkum ykkur einnig fyri* umönnun hinna drengjanna sein einnlg dvöldu hjá ykkur legri eða skemmri tíma við nám og störf a meðan þess þurfti við. Blessuð sé minning ykkar og þökk fyr^ allt og allt. Anna G. Bjarnadótir. t 18 ISLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.