Íslendingaþættir Tímans - 24.01.1969, Blaðsíða 14

Íslendingaþættir Tímans - 24.01.1969, Blaðsíða 14
hliða þekking á landbúnaðinum eðli hans og kjörum og hugsunar- hætti fólksins í sveitunum komu þar að fullum notum. Félagsmála- hæfni siína hafði Kristján fljótlega sannað fyrir norðan, enda fólu Skagfirðingar honum fljótlega for ystu í búnaðarfélagsmálum. Hér á þriðju hæð Bændahallar- innar, þar sem tvö stærstu félags- samtök bænda hafa aðalstöðvar sinar hlið við hlið, vann Kristján síðustu árin. Hann var til margs konar starfa kvaddur í fjölda nefnda og stjórna og mjög oft í samvinnu við starfsmenn Búnaðar- félagsins. Þá veit ég, að ég tala fyrir munn okkar allra, þegar ég segi, að með engum var betra að vinna en honum og til hans var alltaf gott að leita. Hjá honurn fengum við holl ráð og góð. Per- sónulega fannst mér að því mesti stvrkur, hughreysting og uppörv- un að leita til Kristjáns í hvers konar vanda, smáum eða stórum, og gerði það reyndar oft . Fjölskyldu Kristjáns kynntist ég vel á Hólum, kvnntist drenglyndi, vitsmunum og skörungsskap Sig- rúnar og börnunum þeirra fjórum, sem voru svo efnileg og ánægju- leg. að þau lýstu upp staðinn, enda öil orðin manndómsfólk nú. Kallið kom snögglega. og við stóðum agndofa eftir. Ég var fjarri á kveðiustundinni. en vil ekki láta hjá líða að senda þessi fátæklegu orð sem þakklætisvott fyrir öll okkar kynni. Sigrúnu, börnum þeirra, tengda- og barnabörnum sendi ég innilegustu samúðgrkveðj ur mínar og konu minnar. Jónas Jónsson. f Hinn 5. desember s.l. var til moldar borinn í Fossvogskirkju- garði Kristján Karlsson, fyrrver- andi skólastjóri á Hólum 1 Hjalta- dal. Kristján var fæddur 27.5.1908 að Landamóti í Köldukinn í Suð- ur-Þingeyj arsýslu. Hann var sonur hjónanna Karls Arngrímssonar bónda þar og síðar bónda að Veisu í Fnjóskadal, og konu hans, Karítasar Sigurðardótt ur frá Draftastöðum. En hún var systir Sigurðar Sigurðssonar, fyrrv. búnaðarmálastjóra. Hann var því af góðu bergi brotinn. Enda bar hann þess merki hvar sem hann fér. Hann gekk ungur menntaveginn, lauk prófi frá Lýðskólanum á Laug um í Reykjadal 1926. Tveim árum síðar lauk hann prófi frá Búnaðar- skólanum á Hvanneyri. Haustið 1929 fór Kristján utan og starfaði fyrst við verklegt nám í Danmörku en gekk síðar á landbúnaðarhá- skóla í Danmörku og lauk þaðan þrófi 1933. Sama ár varð hann ráðunautur Búnaðarsambands Suð urlands og bústjóri í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Störfum þessum gegndi hann í 2 ár. En 1935 var hann skipaður skólastjóri við Bún aðarskólann á Hólum í Hjaítadal og gegndi því starfi til ársins 1961, er hann fluttist til Reykjavíkur. Þá var hann -skipaður erindreki hjá Stéttarsambandi bænda og gegndi því starfi ásamt mörgu öðru til dauðadags. Ég var einn af þeim mörgu, sem átti því láni að fagna að kynnast Kristjáni bæði sem húsbónda og kennimanni. Og fullyrði, að í þvi starfi átti hann engan sinn jafn- ingja. Kristján gegndi skólastjórastarfi á Hólum lengur en nokkur annar hefir gert til þessa. Og eru því nemendur hans stærri og fjöl- mennari hópur en nokkurs annars skólastjóra, sem á Hólum hafa set- ið. Og eflaust munu þeir margir, sem mér eru færari til að minnast síns fyrrverandi skólastjóra og hús bónda. En allir munum við geta tekið undir það að vart hefðum við fengið til þess starfa traustari né drenglyndari mann. Eins og gefur að skilja hlýtur þeim, er forstöðu veita slikum stofnunum, ætíð mik- ill vandi á höndum. Er til náms og dvalar kemur árlega hópur ungra og lítt þroskaðra pilta, sem að sjálfsögðu kunna að vera mis- jafnlega undir það búnir að setj- ast á skólabekk þar sem að námi loknu eru meiri og strangari kröf- ur gerðar um menntun nemand- ans, heldur en þegar um venju- Iega alþýðuskólamenntun er að ræða. Én svo er ætíð um alla þá er nóm stunda í sérskólum. En úr þeim vanda kunni Kristján betur öllum öðrum að ráða. Hann vann sér strax við fyrstu kynni traust og vináttu hvers nemanda síns. Og það traust og sú vinátta hygg ég að þeir hafi aljir til hans borið upp frá því að þeir luku námi á Hólum. Ég var yngstur allra Hólasveina þegar ég var við nám á Hólum, kom þangað aðeins 16 ára gamall og hafði aldrei fyrr úr foreldra húsum farið. En alltaf hefur mér skilizt það betur og betur síðan ég kom meira til vits og þroska hvers virði það er fyrir óþroskað- an ungling, sem í fyrsta sinni fer úr foreldrahúsum að eignast hús- bændur, sem þeir geta borið full* komið traust til hvar og hvenær sem er. Og er ég sannfærður uffl að betri húsbændur hefi ég tæpast getað fengið en þau skólastjóra- hjónin á Hólum, Kr. Karlsson og konu hans, frú Sigrúnu Ingólfs- dóttur, þvi að þau umgengust mig eins og ég væri þeirra eigin sonur. Enda var ég tíður gestur á heimili þeirra og kynntist því fjölskyld- unni tiltölulega meira en margir aðrir skólafélagar mínir. Það, sem sérstaklega vakti eftir- tekt nemenda Kristjáns á honum, var hversu ákveðinn og öruggur hann var, að hverju sem hann gekk, hvort heldur var að kennara púltinu til kennslu, eða annarra starfa með nemendum sínum. Og aldrei mun hann hafa þurft að beita hörku við nemendur sína til þess að þeir hlíðnuðust fyrirskip- unum hans. Þeim lærðist það strak við fyrstu kynni, að bera virðingu fyrir honum og halda þær reglur og þau lög er hann setti þeim- En slíkt er frumskilyrði þess að hægt sé að stjórna stórum hópi ungmenna, að þau virði sinn hús- bónda' og hans boðskap, án þe&s að óttast hann. En það munu nem- endur Kristjáns aldrei hafa þurft að gera, hann kunni manna bezt að ná hugum nemenda sinna s þess að láta þá óttast sig. Það vaf ætíð hressandi blær yfir kennslu- stundunv'Kristjáns og hann ræddi ávallt viðfangsefnið á sem víðustum grundvelli hverju sinni, enda mað- ur vel fróður um þau efni er að landbúnaði lutu. Hann unni ís' lenzkri gróðurmold öllu öðru fremur, um það bera störf hans þágu landbúnaðar á íslandi gleggS't vitni. Því vart mun sá maður fyr' irfinnast á íslandi er meira gagn hefur unnið í þágu islenzkraf bændastéttar og búnaðarmála, en Kristján Karlsson. Með starfi sin-u, sem skólastjóri, vakti hann glæddi áhuga og trú nemenda sinna á gildi moldar og jarðar- gróðurs og hvers virði hann er og mun ætið verða okkur meðan land byggist. 14 IslendingaþættiR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.