Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 01.06.1972, Qupperneq 11

Íslendingaþættir Tímans - 01.06.1972, Qupperneq 11
Arið 1923 keypti hann timaritið „Eimreiðina” og annaðist sjálfur út- gáfu hennar og ritstjórn til ársins 1955. 1 höndum Sveins varð Eimreiðin afar vinsælt og viðlesið timarit, enda tók hún til meðferðar ýms framfara- og menningarmál, sem á dagskrá voru með þjóðinni hverju sinni. Þar birtust einnig jöfnum höndum ljóð og þýðingar á sögum og ritgerðum eftir fræga erlenda höfunda, allt á fáguðu og vönduðu máli i þýðingu ritstjórans. Enda var Sveinn ávallt einkar vand- virkur og kröfuharður um efnisval. 1 Eimreiðinni birtist meðal annars einhver fyrstu kvæði ýmissa hinna yngri góðskálda vorra, þar á meðal Daviðs Stefánssonar, Jóns Magnús- sonar, Jóhannesar úr Kötlum og Guðmundar Böðvarssonar, svo að nokkrir séu nefndir. Átti Eimreiðin þvi merkan þátt i þvi að kynna þessi ungu skáld og greiða kveðskap þeirra veg að hjarta þjóðarinnar. bá flutti Eimreiðin einnig erindi og hugvekjur um andleg mál. bæði um trúarleg og siðferðileg efni. Auk timaritsgreina sinna þýddi Sveinn bækur og ritgerðir um sálræn og dulfræðileg efni. Mál þar meðal annars nefna bækurnar „Máttar- völdin” og „Ósýnileg áhrifaöfl.” eftir Alexander Cannon. Voru Sveini þessi viðfangsefni sér- staklega hugstæð, enda voru þau i samræmi við lifsskoðun hans og áhugamál. Árið 1920 kvæntist hann eftirlifandi eiginkonu sinni Steinunni Arndisi Jóhannesdóttur, hinni mikilhæfustu og merkustu konu, sem reyndist honum hinn traustasti lifsförunautur og sann- ur vinur alla ævi. A yngri árum vöktu þau Sveinn og Steinunn sérstakt at- hygli sakir glæsimennsku og tiginnar framkomu. Þeim hjónum varð 5 barna auðið. Misstu þau eina dóttur á bernskualdri. Hin börn þeirra eru: Olgeir, járnsmiður, kvæntur Guð- björgu Steinsdóttur, Sigurður, fulltrúi borgarfógeta, kvæntur Elinu Briem, bórarinn framkvæmdastjóri, kvæntur Ingibjörgu Arnadóttur, allir búsettir i Reykjavik og Þórdis, gift Jóni Bergs- syni verkfræðingi, búsett i Hafnar- firði. Eins og áður er getið var Sveinn glæsimenni i sjón, vörpulegur og virðulegur i fasi. Framkoma hans öll vitnaði um prúðmennsku, stillingu og skapfestu. Hann var ákveðinn i skoðun um og heill og sannur i orði og athöfn. Slik er mynd hans i hugum vina hans og samferðamanna. Um langt skeið Sigurbjörn Annan dag þessa mánaðar var komið að Sigurbirni L. Knudsen, þar sem hann var látinn i bil sinum. Svo snöggiega og óvænt kvaddi hann þennan heim, vandamenn, vini og kunningja. Hinn fyrsta mai dvaldi Sigurbjörn ásamt eftirlifandi konu sinni, frú Val- gerði Þórmundsdóttur, góða stund á heimili minu og dóttur sinnar Huldu. Var hann hress i bragði, eins og hans var vani, nýkominn frá hátiðarhöldum launþega. Til framgangs mála launþega hafði Sigurbjörn Iagt drjúgan skerf, sem bezt sést á þvi, að hann var einn af stofnendum Iðju, félags verksmiðju- fólks, og nú siðustu ár ævi sinnar kjör- inn heiðursfélagi þeirra samtaka. 1 öllu þvi er varðaði kjör og afkomu starfaði hann i Frimúrarareglunni hér i Reykjavik. Rækti hann þau félags- störf af kostgæfni og árvekni, eins og allt, sem honum var hugleikið og hann hafði með höndum. Þá má geta þess,að Sveinn var vel skáldmæltur þótt hann flikaði þvi litt, enda var hann i eðli sinu dulur, hljóðlátur og yfirlætislaus. h'rá æskuárum var Sveinn einlægur og ákveðinn trúmaður, sem hvorki efaðist um handleiöslu Guðs né að handan jarðneskrar tilveru vorrar biði vor nýtt vaxtarskeið i bjartri og þroskariki veröld. Slfk trú er ljós og leiðarstjarna á vegum vorum. Hún er þess valdandi, aö þrátt fyrir skugga og skýja skýjabólstra lifsins eygjum vér ávallt árroða æðra lifs og bjarta frið- arhöfn fyrir stafni. Ég efast ekki um það,að hinn látni vinur vor hafi við um- breytingu sina borizt mót eilifri árdagsbirtu, þar sem duldar rúnir ráðast og æðstu vonir vorar verða að veruleika. Vér vinir hins látna kveðjum hann með þakklæti og virðingu, þó kærastar kveðjur og heitastar þakkir berist hon- um frá ástrikri eiginkonu, elskandi börnum, systkinum og skylduliði er i rikustum mæli höfðu notið kærleika hans, tryggðar og ræktarsemi. Við hjónin sendum ástvinum hans einlægar samúðarkveðjur og biðjum þeim farsældar og blessunar um öll ókomin ár. Þorsteinn Jóhannesson. L. Knudsen launþega, auk almennra málefna, kom fram i rökræðum við Sigurbjörn, að hann bjó yfir raunsæi, miklu við- sýni og ekki sizt drengskap. Rúmlega fjóran og hálfan áratug nutu verksmiðjurnar Nói, Hreinn og Siríus óskertra starfskrafta Sigur- björns, og finnst mér þessi langi starfsaldur hjá sama fyrirtæki lýsa vel staðfestu hans og traustum persónu- leika. Mér er kunnugt um#að Sigur- björn naut virðingar allra samstarfs- manna, yfirboðara og vinnuveitenda fyrir prúða framkomu, n ær eindæma ósérhlifni, trygglyndi og heilindí. Arvekni í starfi var Sigurbirni I blóð borin i svo rlkum mæli, að viða hefði þurft að bera niður til þess að finna hans lika. Allt heimilislif Sigurbjörns og konu hans var mjög jákvætt, og þó svo að eflaust hafi gefið á bátinn i langri sambúð, þá var engu flikað, heldur unnið að úrlausn i’ kyrrþey, Öííum tiT farsældar, og eiga báðir aðilar heiður skilinn fyrir. Vel væri að slikur heimilisbragur, sem fyrirfannst á heimili Valgerðar og Sigurbjörns, væri almennur, en heyrði ekki til undan- tekninga. Eftir þá rúmlega tvo áratugi, sem liðnir eru siðan leiðir okkar Sigurbjörns tengdust, þá er mér efst i huga þakklæti fyrir að hafa átt þess kost að kynnast honum og hafa hann mér til fyrirmyndar i mörgu. Vera má að margur sá, sem ekki þekkti Sigur- björn, haldi að það sem að framan er ritaö, sé raus og oflof, Sigurbirni látn- um I hag, en þeir er gerzt þekktu Sigurbjörn vita, að hér er aöeins farið með staðreyndir. Þó svo að án vafa verði fyllt það skarð, sem hoggið hefir verið með burtkvaöningu Sigurbjörns til æðra lifs, þá verður það skarð vand- fyllt. Ég bið algóðan guð að varðveita aila þina tilveru, kæri vinur minn og tengdafaðir. Hittumst heilir. Ásgeir Einarsson. t islendingaþættir 11

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.