Íslendingaþættir Tímans - 24.09.1977, Blaðsíða 15

Íslendingaþættir Tímans - 24.09.1977, Blaðsíða 15
Pálmi Pétursson skrif stof ustj óri Iþessum fáu orðum er ekki aetl- un min aö rekja æviferil Pálma Péturssonar, skrifstofustjóra hinnar sameiginlegu skrifstofu rannsóknastofnana atvinnuveg- anna. Ég minnist hans fyrst og fremst scm eins mins nánasta samstarfsmanns þau ár, sem ég hef starfað hjá Rannsóknaráði rikisins. Pálmi Pétursson var fæddur á Akureyri 20. april, 1909. Hann réðist til Atvinnudeildar háskól- ans 1. janúar, 1946, en hafði dður m.a. stundað sjálfstæð verzlunar- störf á Siglufirði. Atvinnudeildin, sem var eins konar uppeldisstöð islenzkrar rannsóknarstarfsemi, var aðeins fárra ára þegar Pálmi kom þangað. Pálmi Pétursson var bókari og gjaldkeri Atvinnudeildar, sem var undir stjórn Rannsóknaráðs rikisins. Með lögum frá 1965 var Atvinnudeildinni skipt og 5 sjálf- stæðar stofnanir settar á fót, auk Rannsóknaráðs. Þá þótti þó sjálf- sagt, aö þessar stofnanir hefðu sameiginlega skrifstofu, sem annaðist fjármál þeirra almennt. Pálmi Pétursson varð skrifstofu- stjóri þeirrar skrifstofu. Þessi samvinna er ef til vill gleggsti vitnisburöurinn um það traust, sem forstjórar rannsóknastofn- ananna og aðrir opinberir aðilar báru til Pálma Péturssonar. Pálmi gegndi þannig yfir 31 ár A slðari árum, þegar heilsu Sigur- bjargar tók að hraka, naut hún ein- stakrarumhyggjufjölskyldu sinnar og vik, þó einkum þeirra sem næst bjuggu þeirra spor voru ótalin, en mikils metin. Lækkar llfdaga sól. Löng er oröin mín ferö. Fauk I farranda skjól, fegin hvildinni verð . Guð minn gefðu þinn frið, gleddu og blessaðu þá! sem aö lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (H. Ándrésd.) Blessuð sé minning Sigurbjargar I Merkigerði. Megi llfsviðhorf hennar og hjrártahlýja verða okkur hinum leiðarljós um ókomin ár. Bryndfs Steinþórsdötir. ábyrgðarmiklu starfi I þágu rannsóknarstarfseminnar og var nátengdur þeirri'þróún' sem oröiö hefur á þvi sviði nánast frá upp- hafi Atvinnudeildar háskólans. Starf Pálma var ekki auðvelt. Atvinnudeild háskólans var I upp- hafi að sjálfsögðu litil og fjár- magnið ekki ýkjamikið. Það hef- ur hins vegar aukizt allhröðum skrefum og er nú farið að nálgast milljarðinn, sem hin sameigin- lega skrifstofa ber ábyrgðá. Það var heldurekki auöveltaö vera á- byrgur gagnvart forstjórum 6 stofnana, sem allir hafa að sjálf- sögöu sinar skoðanir á þvi, hvern- ig verja beri fjármagninu. Pálmi hikaði aldrei við að gera sinar at- hugasemdir, ef hann taldi ráð- stöfun fjármagns ekki I samræmi við opinberar reglur eða ofvaxið fjárhag viðkomandi stofnunar. Sjálfur réðist ég til'Rannsókna- ráðs rlkisins árið 1957. Pálmi var þvi lengi einn minn nánasti samstarfsmaður. Stundum skarst i odda eins og gengur og gerist, en málin leystust ávallt, þvi mér varð fljótlega ljóstað fyrir Pálma vaktialdrei annaö en að hafa það, sem réttast er og heilbrigðast i fjármálum stofnunarinnar. Stundum slæddust villur inn I bókhaldið, eins og mannlegt er, en mér lærðist einnig fljótlega að hafa litlar áhyggjur af sliku, þvi i meðferö fjármagns átti Pálmi fáa sina líka að heiöarleika og ráö- vendni. Oft er sagt að maöur komi i manns stað, og svo verður ef til vill enn. Þó getur nú vel svo fariö að viö fráfall Pálma veröi breyt- ing á þvl samstarfi um fjármál og bókhald, sem verið hefur hjá rannsóknastofnunum atvinnu- veganna, þvi ég hygg að skarð það, sem Pálmi skilur eftir, verði vandfyllt. Pálmi kvæntistárið 1952 eftirlif- andi eiginkonu sinni, önnu Lisu Berndtsen frá Gautaborg. Votta ég henni og bömunum dýpstu samúð mina. Steingrímur Hcrmannsson. f Atorkumaður og góður þegn er genginn. Pálmi Pétursson, skrif- stofustjóri Rannsóknarstofnana atvinnuveganna var snögglega brott kallaöur hinn 2. marz 1977. Hann var fæddur á Akureyri hinn 20. april 1909, sonur hjónanna Péturs Péturssonar, kaupmanns á Akureyri og Siglufiröi, og Þór- önnu Pálmadóttur. Þau hjón voru af merkum skagfirzkum og hún- vetnskum ættum, sem ekki veröa raktar hér. Þau voru vinsæl og vel metin eins og þáu áttu kyn til. Pétri kynntist ég persónulega, er hann var kominn á efri ár. Fann ég, aö þar fór maður friður sýn- um, góðum gáfum gáfum gædd- ur, háttvis og hlýr. Pálma Péturssyni kynntist ég fyrst I Gagnfræöaskólanum á Akureyri, sem þá var að veröa menntaskóli. Vorum viö skóla- bræður þar veturinn 1928-’29. Var það fyrsta ár mitt þar, en Pálma siöasta. Uröu kynni okkar þar ekki náin, en þvi meiri siðar. Ég leit upp til hans og bekkjarfélaga hans, sem verðandi stúdenta, en taldi mig I hópi fákunnandi byrj- anda. Pálmi var i fyrsta hópnum, sem leyfi fékk til að þreyta stúdentspróf við Gagnfræðaskól- ann á Akureyri par á staðnum, en áður höfðu þeir, sem öfluðu sér þekkingar við þann skóla til að ganga undir stúdentspróf, oröið að fara til Reykjavíkur til að þreyta prófið, stundum fótgang- andi aöra leið, vegna lélegra samgangna. islendingaþættir 15

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.