Íslendingaþættir Tímans - 24.09.1977, Side 36

Íslendingaþættir Tímans - 24.09.1977, Side 36
Ingvar Arnason á Bjalla Ingvar Árnason bóndi á Bjalla i Landsveit andaöist aö heimili sinu miövikudaginn 3. ágúst siðastliðinn. Hann var orðinn 87 ára að aldri, fæddur að Látalæti i Landsveit, þar sem nú heitir Múli, 7 marz 1890. Foreldrar hans voru hjónin Þórunn Guðlaugs- dóttir og Árni Kollin Jónsson sem þar bjuggu. Þau eignuöust fimm börn og komust af þeim fjórir synir til fullorðinsára auk Ingvars þeir Jón, lengi bóndi á Lækjarbotnum i Landsveit, Guö- mundur hreppstjóri i Múla og Guðni, sem iengi var verzlunar- stjóri hjá Sláturfélagi Suður- lands, en þeir Ingvar og Guöni voru tviburar. Móðir Ingvars dó 1894, faðir hans tveim árum siðar og fór Ingvar þá i fóstur til föðurbróður sins, Guðna Jónssonar bónda í Skaröi og Guðnýjar Vigfúsdóttur konu hans. Þar dvaldist Ingvar óslitiö til vorsins 1914 að hann fluttist að Bjalla i Landsveit, reisti þar bú og kvæntist Málfriöi Amadóttur Arnasonar i Látalæti og Þórunnar Magnúsdóttur konu hans. Heimili þeirra Ingvars hef- ur siðan verið á Bjallanum. Frumbýlingum var óhægt um vik á þeim árum eins og oftar, og hafði bærinn á Bjallanum veriö fluttur undan sandfoki 1908, hag- ar litlir og heyskapur rýr heima fyrir. Harðindaárin komu með stuttu millibili, skepnuhöld með lakasta móti vorið 1914 og vetur- inn 1917-1918 mesti frostavetur sem komið hafði siöan 1882. Sumarið 1918 var mikið grasleysi um uppáveitir Suðurlands, enda heyjuöust ekki nema fjórir hest- burðir af túninu á Bjalla. Einu kýrfóðri náði Ingvar suður I Safa- mýri um sumariö og einhverjum reytingi á engjum undir haust. Þeir vita sem til þekkja hvernig er að berjast við heyskap á illa sprottnu og óvörðu engi með handverkfærum og eiga auk þess sifelldan sandágang yfir höfði sér. Þau Bjallahjón voru að kunn- ugra sögn samhent i þvi aö efla og bæta jörðina, búa þannig að bú- stofninum að skepnunum liöi vel og þær gæfu góðan arö enda tókst þaö. Eftir tæplega tveggja ára- tura búskap var Ingvar búinn að rækta og girða tún fyrir meöalbú endurbyggja og stækka nær öll hús á jörðinni, hlaða öll gripahús og (hiöður úr hraungrjóti, einnig hluta af túngarði og matjurta- garða. Ekki var Ingvar þó einnað verki. Hann haföi stundum vinnu- mann hluta úr ári og i þessari sveit hefur tiðkazt aö nágrannar hjálpuöu hveröörum eftir þörfum þegar endurnýja þurfti húsakost eða standa i öðrum mannfrekum framkvæmdum, þarsem hver gat endurgoldið öörum i vinnu. Og ekki mun hafa staðið á Bjalla- heimilinu að taka sinnþátti þessu fremur en öðru samstarfi, enda nágrennið gott. Til að hlaöa úr hraungrjóti svo vel fari, þarf lagni og útsjónarsemi, enda vek- ur vel hlaðinn hraungrýtisveggur aðdáun. Þekkt dæmi um þaö er kirkjugarösveggurinn i Skarði á Landi, en Ingvar á Bjalla var einn af aðaihleöslumönnum hans ásamt fleiri Landmönnum sem löngum hafa kunnað til slikra verka. Þau Bjallahjón eignuðust fimm börn, og eru fjögur á lifi. Arnþór ókvæntur, hefur alla tið verið á Bjallanum og unnið foreldra- heimilisinu. Þórunn er látin fyrir um þremur áratugum, fyrri kona Magnúsar Magnússonar frá Galtalæk, barnlaus. Ragnheiður, ógift, forstöðukona i Reykjavik. Guðriður, siöari kona Magnúsar Magnússonar frá Galtalæk búsett i Reykjavík og eiga einn son. Svanfriður, gift Sæmundi Jóns- syni bankamanni, búsett i Reykjavik og eiga fjórar dætur. Þá ólu þau Bjallahjón upp dóttur nágranna sins, þar sem heimilis- ástæöur voru mjög erfiðar, Þuriöi Jónsdóttur frá Lunansholti. Hún er gift Björgvini Kjartanssyni viðskiptafræðingi og eiga þau fjögur börn. Fram yfir hálfáttrætt gekk Ingvarhiklaust að allri vinnu eins og hann hafði alltaf gert, en raun- ar má segja að siðustu áratugina hafi búskapurinn hvilt á herðum Arnþórs sonar þeirra. Hafa þá dæturnar og fósturdóttirin og þeirra fjölskyldur löngum lagt heimilinu lið, hver eftir sinum ástæðum þegar tóm hefur gefizt frá öðrum störfum til að skreppa austur i Landsveit, stundum i þurrhey stundum til annarra bú- starfa. Ingvar á Bjalla var öðrum mönnum fróðari um sveit sina og sögu hennar, og á Landmannaaf- j réttiogi Fiskivötnum (Veiðivötn- ' um) innan Tungnaár var hann hverjum manni kunnugri. Þetta ásamt traustleika og öryggi i ferðum varð til þess að hann var, eins og Jón og Guðmundur bræð- urhans, eftirsóttur fylgdarmaður ferðamanna, innlendra og er- lendra, um þær slóðir, allt austur i Skaftafellssýslu meðan einkum var ferðazt á hestum. I einni ferðinni inn á afrétt, inn i Snjóöldufjallgarð haustið 1936, fundu þeir Ingvar og félagi hans i smalamennsku minjar um bústað manns sem auðsjáanlega haföi flúið mannabyggö og leitað sér skjóls og lifsviðurværis i faðmi öræfanna þar sem sizt var manna von. Frá þeirri ferð segir i bók- inni Útilegumenn og auðar tóttir eftir ólaf Briem. Ingvar hafði mikla ánægju af að rifja upp og segja frá ferðum af þessu tagi, en ekki hefur mikið verið skrásett af þeim fróðleik sem hann bjó yfir. Mér er þvi fagnaðarefni að hafa nú i vor komið þvi i verk að hitta hann aö máli og fengið hann til aö segja svolitiðfrá afréttinum. Þótthann væri þá orðinn farinn að heilsu, varð þess ekki vart i frásögnum hans af afréttum og smala- mennsku. Þeirri andlegri heilsu hélt hann þrátt fyrir likamlegan islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.