Íslendingaþættir Tímans - 24.09.1977, Side 17

Íslendingaþættir Tímans - 24.09.1977, Side 17
Guðný Björnsdóttir frá Hnefilsdal F. 20. maí 1906 D. 17. júli 1977 Þú hafðir fagnaö með gróandi grösum og grútið hvert blóm sem dó. Og þér hafði lærst að hlusta uns hjarta i hverjuin steini sló. og þér fannst vorið þitt vera svo fagurt og veröldin ljúf og góð. Og dauðinn þig leiddi í höll sina heim þar sem hvelfingin við og blá reis úr húmi hnigandi nætur mcð hækkandi dag yfir brá. Þar stigu draumar þins liðna lifs i loftinu mjúkati dans. Og drottinn brosti, hver bæn var oröin að blómum við fótskör hans. Tóm.Guðm. / Er minnast skal Guðnýjar Björns- dóttur frá Hnefilsdal kemur fyrst upp i hugann hversu sérstæð kona hún var um margt, og hve heimurinn væri bet- ur á vegi staddur ef við jarðnesk börn ættum jafn mikla umhyggju og rausn til handa meðbræðrum okkor og vær- um jafn öfundarlaus i annarra garð sem hún var. Bænir hennar studdu margan sjukan ogóstyrkan á lifsins braut og kærleik- ur hennar náði til allra sem um sárt áttu að binda. 1 litlu stofunni hennar, þar sem hún einnig svaf og ól upp dótturdöttur sina, var ætið pláss og hjartarúm fyrir gesti og gangandi^háa sem lága, og þá ekki siður lága sem áttu ekki margt at- hvarf. Guðný fæddist i Hnefilsdal á Jökul- dal, N-Múl. 20. mai 1906 dóttir hjón- anna Björns Þorkelssonar, hrepp- stjóra og fræðimanns og Guðriðar Jónsdóttur. Guðný átti tiu systkini. Tvödóu iæsku.Einar og Sigurborg, en niu náðu fui'orðinsárum. Af þeim eru Sigurður, Ólafur og Einar látnir. Eftir lifa Jón, fyrrv. bóndi á Skeggjastöð- um, Jökuldal, Þorkell fyrrv. bóndi sið- ar húsvörður i Rvik. Stefán forstjóri Mjólkursamsölunnar i Rvik, Sigriður húsfrú, Hlöðum við Lagarfljót og Helga húsfrú að Desjarmýri, Borgar- firði eystra. Ennfremur ólst upp meo þeim að miklu leyti Arni Hallgrimsson bóndi Minni-Mástungu Gnúpverja- hreppi. t þessum stóra og mannvænlega systkinahópi á mannmörgu rausnanog menningar heimili ólst Guðný upp. Foreldrar hennar voru bæði vel menn- uð á þeirra tima mælikvaröa, Björn gagnfr. úr Flensborg, en Guð- riður hafði numið i kvennaskólanum á Akureyri. Guðný sótti menntun sina i héraðssk. að Eiðum. Næm var hún og fróðleiksfús og ritfær vel, þótt litt héldi hún þvi á lofti. Arið 1936 giftist Guðný Steinþóri Einarssyni frá Djúpalæk, ágætum manni, sem dó langt um aldur fram. Þau eignuðust fjögur börn. Eitt dó ný- lega fætt, en á lifi eru Stella Björk, húsfrú i Neskaupstað, Snælaug Alda tannlæknir í Danmörku og Hjalti Karl, lögfræðingur i Rvik, öll gift og eiga samtals átta börn. Auk þeirra ól Guðný upp dótturdóttur sina Guðnýju Þóru Hjálmarsdóttur, sem nú er 17 ára. Árið 1952 missti Guðný mann sinn og stóð ein með þrjú stálpuð börn. Þaö var enginn dans á rósum aö vera ekkja meö þrjú börn þá, og verður sjálfsagt aldrei, en Guðný kvartaði ekki, heldur hlúði að börnum sinum og studdi þau til náms af fórnfýsi og kærleika, enda uppskar hún eins og hún sáði. Fóstur- dóttir hennar og nafna, Guöný Þóra, var umvafin kærleika hennar og ástúð enda óx hún upp sem elskuleg stúlka sem flytur nú af landi brott til móöur sinnar með kærleika ömmu sinnar I vegarnesti. Guðný Björnsdóttir var suðræn i út- liti, dökkhærð, vel eyg og brúnleit á hörund. Tilfinningar minntu lika meira á það fólk sem sunnar á hnettin- um býr, en okkur þumbaralega Noröur-Evrópubúa, svo hrifnæm, söngelsk og tilfinningaheit sem hún var. Hún veitti af rausn, en átti verra meðaðþiggja. Hún var trúuö og óttað- ist ekki dauöann, en hún haföi óskað sér að mega lifa i 3 ár í viðbót, þar til Guðný Þóra væri búin aö ljúka menntaskólanámi sinu. Heilsa Guö- nýjar bilaði fyrir nokkruö árum, en áfram barðist hún, rétti fram hjálp- andi hönd sina hvar sem hún gat og styrkti okkur i kring um sig með trú sinni og bænum. Sl. vetur hrakaði heilsu hennar, og enn meir I vor, en andlegri reisn sinni hélt hún þar til hún andaðist 17. júlisl. i Borgarspitalanum i Rvik og hefur útför hennar farið fram. Ég votta öllum ástvinum hennar innilega samúö og kveð Guðnýju Björnsdóttur meö þakklátum huga. Anna Þr. Þorkelsdóttir Islendingaþættir 17

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.