Íslendingaþættir Tímans - 24.09.1977, Side 21

Íslendingaþættir Tímans - 24.09.1977, Side 21
Eiríkur Skúlason Fæddur 5. nóvernber 1902 Dáinn 10. marz 1977 Fimmtudaginn 10. marz lézt 1 Landsspitalanum Eirlkur SkUla- son Háaaleitisbraut 29 i Reykjavik. Eirikur var fæddur i Mörtungu á Slðu i Vestur-Skaftafellssýslu. Foreldrar hans voru þau merku hjón Rannveig Eiriksdóttir i Mör- tungu og SkUli Jónsson frá Geir- landi i sömu sveit. Eirikur var elstur átta barna þeirra hjóna og bar nafn móðurfööur sins. Ekki kynntist ég Eiriki ungum manni náið utan ég hitti hann á fömum vegi á meðan ég dvaldi i Vestur- Skaftafellssýslu, en þau kynni urðu mér næg til þess að vita, hvar sem Eirikur kom stóð hann alltaf vel fyrir sinu. Ungur mun Eirlkur hafa byrjað á þvi aö fara á vertiö til Vest- mannaeyja eins og venja var að ungir menn gerðu á þeim árum og það hygg ég að hann hafi haldið á meðan hann dvaldi hjá foreldrum sinum og mun hann þar sem annars staðar hafa fljótt unniö sér álit húsbænda sinna fyrir sér- staka trúmennsku og verklagni. Eins og áður segir var Eirikur elsta barn þeirra hjóna. Hefur þvi fljótt reynt á hann við bú- störfin, enda faöir hans Skúli mikill búmaður og hugmaður mikill. Var Mörtunga á þeim árum talin mjög góð fjárjörð. Hefur þvi Eirikur fljótt vanist viö mikla vinnu og erfiðar fjárgöng- ur, enda varð hann einn kunnug- asti maður um Sfðuheiöar og af- réttsinna samtiöarmanna, ogþar hefurathyglisgáfa hans oftkomið honum aö góðum notum, þvi oft mun hann hafa lent i misjöfnum veörum og vegum á sinum mörgu ferðum um Siðuafrétt og heiðar, en aldrei mun honum hafa brugö- ist ratvisi. 1 kringum 1930 mun hann hafa gifst sinni fyrri konu Hildigunni Magnúsdóttur ættaöri aö vestan. Hana sá ég aldrei, en mér hefur verið sagt aö hún hafi verið mjög myndarleg kona. Meö henni eign- aðist hann tvær dætur, sem báöar eru giftar og eru taldar myndar- legar konur. Fljótlega eftir að hann giftist keypti hann hálfan syðri bæinn Þykkvabæ i Land- broti og bjó þar góðu búi I 10 ár. Eftir 14 ára sambúð skilja þau hjón samvistum og selur hann jörðina Jóni bróður sinum og fer að Kirkjubæjarklaustri til þeirra bræðra og þar dvelur hann nokkur ár. Þegar Landmenn og Holta uröu að skera niður fjárstofn sinn vegna fjárpestar þeirrar sem þá gekk yfir landiö var þeim úthlut- aö aö sækja sér fjárstofn austur á Siðu. Voru það fjórir hreppar á milli Þjórsár og Ytri-Rangár sem að þvi stóðu. Þeir f járkaupamenn sem austur voru sendir héldu sig mikið á Kirkjubæjarklaustri meöaná fjárkaupum stóö. Kynnt- ust þeir þá Eiriki mjög vei. Var hann þeim hjálplegur og leiðbeindisem þeir töldu sig hafa haft mjög gott af og myndaöist þá mjög góöur kunningsskapur á milli sumra fjárkaupamanna og Eiríks. Fra Kirkjubæjarklaustri flyzt hann út i Landsveit og þá byrjar mjög náinn kunningsskapur okk- ar, semhélztfram til hins siöasta. Eirikur var greindur maður, vel minnugur og ættfróður og var þvi viöræöugóöur. Viö hjónin eigum margar skemmtilegar og góöar minningarumkomu hans á okkar heimili. Hann hafði fastmdtaðar skoðanir og gat verið nokkuð dómharður um það sem honum fannst úrskeiðis fara. Einn vetur var hann vetrar- maður hjá Bjarnrúnu Jónsdóttur ekkju Guðmundar Arnasonar hreppstjóra i Múla. Þar kynntist hann siðari konu sinni Helgu Friðbjörnsdóttur sem þar var vinnukona, mikilli gæðakonu. Keyptihann þá vestri jörðina As- mundarstaði i Asahreppi og bún- aöistþarvelogbjóþar nokkur ár. Þar hygg ég hann hafi ekki kupn- að við sig, hefur fundist hann vera of langt frá fjalllendinu, selur jörðina og flyzt út i Grimsnes, tekur á leigu jöröina Minniborg og býr þar i 2 ár og þar kunni hann vel viö sig, bæði landslagiö og fólkiö. En þá fann hann að heilsan var að bila. Hætti hann þá aö hugsa um sveitabúskap sem honum var þó kærastur og flytur þá til Reykjavikur og mun það hafa verið árið 1962. Eftir að hann kom til Reykjavikur stundaði hann vinnu hjá Flugfélaginu eftir þvi sem heilsan leyfði. Hefur hann vist oft beitt sig hörðu'til aö geta staöiö við vinnu, þvi öll þau ár sem hann dvaldi hér. i Reykjavik var heilsa hans mjög veil. Meö siðari konu sinni eignaöist hann eina dóttur, sem nú dvelur hjá móður sinni ásarnt mannsefni sinu, sem mér var kunnugt um að honum var mjög annt um, enda sýnist mér hún bera svipmót hans. Eirikur var traustur maður og engin flysjungur, fastur fyrir, náttúruunnandi og sveitalifið var honum allt, enda notaöi hann all- ar sinar fristundir eftir aö hann kom til Rvk., uppi I sveit, og þó hann dveldi ekki nema tvö ár i Grlmsnesinu þá mun hann hafa eignast þar góða kunningja sem hann hafði mikla ánægju af aö heimsækja, og hjá þeim átti hann sina tvo góðhesta, sem hann hafði mikla ánægju af, þvi Eirikur var hestamaður og hestvandur. Eftir að hann fluttist til Reykjavikur fór hann oft meö Grimsnesingum á afrétt og notaði þá góöhesta sina. Hefur hann þar sem annars staðar skipaö sitt rúm vel. Þetta vissi ég að voru honum ánægju- stundir. Sfðustu ævidagar hans voru honum mjög erfiöir, en aldrei heyrði ég hann kvarta, sllk var harka hans og karlmennska. Hin góða kona hans og dætur hans Svala og Arnþrúður sem hér eru búsettar lögöu mikið á sig og gerðu allt sem i þeirra valdi stóð islendingaþættir 21

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.