Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 24.09.1977, Qupperneq 39

Íslendingaþættir Tímans - 24.09.1977, Qupperneq 39
fyrir stjúpmóöur, þótt löngu seinna væri. Viö vorum uppkomin allvel, þegar Anna kom á heimili okkar og settist þar i húsmóöur- sætið. Þá voru liöin fjögur ár frá láti móður okkar. Dáðumst við strax aö fiminni og myndar- skapnum og þótti vænt um að vel var hugsað um föður okkar eftir nokkurra ára skert heimilislíf, þótt allir væru okkur einstaklega góðir. Þóttumst viö þó áður fyrr hafa átt góðu að venjast, en bjuggumst ekki við jafngóöum hiut okkar og raun varð á. Sambúöin var alla tíð góð og einlæg. Það er mikiö vandaverk að koma svona inn i lif unglinga, inn á heimilið, svo vel fari. Það gerði Anna með miklum sóma og reyndist okkur sem bezta móðir. Hefði hún vart getaö reynzt sfn- um eigin börnum betur. Þá er það hún amma, já, hún var góð. 011 barnabörnin kölluðu hana ömmu sina, og það var hún sannarlega. Þar er sömu sögu að segja, umhyggja, hlýja og hagur þeirra borinn fyrir brjósti, snemma og seint. Var mar^t látið af hendi rakna til þeirra, þótt hinn góði hugur, sem að baki bj <5, hafi veriö dýrmætastur. Fyrir alla þá fórnarlund og góöan stuðning, senda þau nú ömmu sinni inni- legar kveðjur, hljóðum huga. Anna giftist Bjarna Bjarnasyni, skólastjóra á Laugarvatni, hinn 26. maí 1950, og var annað hjóna- band beggja. Þau bjuggu i Garði á Laugarvatni til ársins 1965, en fluttu það haust til Reykjavik'ur og bjuggu þar æ siðan. Sambúö þeirra var góð. Faöir minn var allmiklu eldri en Anna og var heilsuhraustur alla tið. Hún var búin að hljóta meiðsli i baki og átti oft við vanheilsu að striða. Þau reyndu þvi að hlúa hvort að öðru á siðustu árunum, þar til faðir minn lézt, 2. ágúst 1970. Anna bjóáfram i Reykjavik, kaus að vera sjálfri sér nóg, svo lengi sem hún gæti. Litu þá systkini hennar, nágkonur og frændfólkið til með henni og sýndu henni mikla hjálpsemi, oftar en tjáir að nefna. Anna veiktist skyndilega og lá i mánuð á sjúkrahúsi, áður en hún lézt. Að leiðarlokum er okkur þakklætið efst i huga. Þaö er dýrmæt reynsla, að hafa átt samleið með kjarnmiklu fólki. Ein af þvi var Anna Jónsdóttir. — Blessun Guðs fylgi þér. Þorkell Bjarnason. Guðlaug Guðjónsdóttir © f jórtánda febrúar árið 1891, eldri dóttir hjónanna Guðjóns Jónssonar skipa- smiðs og konu hans Guðrúnar Torfa- dóttur frá Hóli, Norðurárdal 1 Borgar- firði, en yngri systirin, Jónlna, fæddist 11. júnf 1895. En áður hafði Guðjón eignazt dóttur með Guðrúnu Guðjóns- dóttir, frá Tungufelli Biskupstungum, héthún Agústa og giftist siðar Sigurði Erlendssyni skipstjóra i Keflavik. Guðlaug fluttist með foreldrum sin- um til Keflavikur árið 1901 og átti þar heima alla tið siöan, lengst af i húsi, sem faðir hennar byggöi og ber nafnið Framnes, og var Guðlaug og þær syst- uroft kenndar við hús sitt og nefndar Framnessystur þegar um þær var rætt, sem var nokkuð oft, þvi hlutur þeirra i sögu Keflavikur siðasta mannsaldur er allmikill og verður seint fullþakkaður. Sextán ára gömul tók Guðlaug að sér kennslustörf við barnaskólann i Kefla- vik I forföllum kennarans og var hún við það starf bæði i Keflavik og I Leiru af og til næstu árin, en árið 1917 öðlast hún réttindi til kennarastarfa, og var siðan fastráðin kennari við barnaskól- ann j Keflavik frá árinu 1919,til 1960.Þetta er langur starfsaldur og margir eru þeir orðnir nemendurnir, sem notið hafa frábærra kennarahæfi- leika hennar. Guðlaug átti auövelt með að vekja áhuga nemenda sinna á hverju þvi viðfangsefni sem fyrir lá. Það flögraði ekki að neinum að vera meö uppsteit eða mótþróa þegar hún átti 1 hlut, hún var viljaföst og sinnti starfi sinu af atorku og ætlaðist til þess sama af öðrum, enda báru nemendur hennar mikla virðingu fyrir kennara sinum og vildu ná góðum námsár- angri, bæði sin vegna og kannski ekki siöur til að gleðja kennarann. Þrátt fyrir annir við kennslustörf þá vann Guðlaug mikiö starf I félagsmál- um á Suðurnesjum. Hún hafði brenn- andi áhuga á bindindismálum og gegndi trúnaðar- og leiðtogastörfum innan samtaka bindindismanna um árabil. Hún var gæzlumaður barna- stúkunnar „Nýársstjarnan” frá árinu 1919-1968 og rækti störf sin þar af þeim dugnaði og alúð, sem einkenndi öll hennar verk. Þann fyrsta janúar 1972, sæmdi for- seti íslands Guölaugu riddarakrossi hinnar Islenzku fálkaorðu fyrir hennar ágætu störf að fræðslu- og bindindis- málum og segir þaö nokkuð um álit manna á lifsstarfi Guðlaugar Guðjóns- þöktu veggi. Það var gott að koma til þeirra systra, fróðlegt að ræða við þær og fá i veganesti góðar fyrirbænir og ráöleggingar, þær létu sér annt um ná- unga sinn, vildu leiðbeina og miðla af nægtabrunni lifsvizku sinnar. Þó Guðlaug hefði æriö að starfa við kennarastarf sitt og önnur áhugamál þá virtist hún ætið hafa nægan tlma til að sinna hverjum þeim sem til hennar leitaði. Ég minnist margra stunda á heimili móður minnar Ágústu, þegar við systkinin vorum ung, þá taldi Guð- laug ekki eftir sér sporin til að fylgjast með þviað viðlæröum lexiurnar sæmi- lega, og slika virðingu bárum við eins og aðrir fyrir henni að fátt var sárar en að þurfa að viðurkenna að gleymzt hefði að lesa nægilega vel og var reynt að bæta úr þvi án mikillar tafar og ánægjulegra var að heyra viðurkenn- ingarorð ef henni þótti vel gert. Magnús, sonur Agústu og Sigurðar, var að mestu uppalinn á heimili þeirra systra og þegar hann drukknaði i blóma lifsins frá ungri konu og dóttur, þá tóku þær að sér uppeldi dóttur hans, Gauju Guðrúnar, og dvaldi hún hjá þeim þar til hún giftist og stofnaði sitt eigið heimili. Þessi orð verða ekki mikið fleiri, ég minnist með þakklæti liðinna sam- verustunda og minningin um mann- kosti Guðlaugar Guðjónsdóttur verður geymd i hugskoti minu eins og ann- arra þeirra sem hana þekktu. Ég votta eftirlifandi systur hennar mina inni- legustu smúð og öðrum vinum hennar og vandamönnum. Sólveig Sigurðardóttir. Leiðrétting dóttur. Guðlaug giftist ekki en bjó alla tið i félagsbúi með Jóninu systur sinni á Framnesi og áttu þær fallegt og hlý- legt heimili, þar sem góöar bækur Þau mistök urðu við prentun Islendingaþátta 10. september 7. tbl. þ.á., að með grein um Jón Jónsson Svinafelli var birt mynd, sem er ekki af Jóni og átti ekki að fylgja greininni. islendingaþættir 39

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.