Heimilistíminn - 16.05.1974, Blaðsíða 12

Heimilistíminn - 16.05.1974, Blaðsíða 12
Sú stefna er nú mjög að ryðja sér til rúms, einkum meðal yngra fólks, að bezt af öllu sé að eignast ibúðir i eldri húsum, I þeim er margt gjarnan svo hlýlegt fyrir augað, að það vegur upp á móti auka- snúningum eins og að þurfa að fara niður i kjallara til að stinga inn í þvottavélina, eða að vera marga klukkutima að verka rykið innan úr stórum, útflúruðum mið- stöðvarofni. barna eru oft fallegar spjald- hurðir og breiðir renndir, gólf- og loftlist- ar, gluggar með mörgum litlum rúðum og breiðum körmum og svo framvegis. Fólk er ekki að eyðileggja neinn dýran viö með þvlaðmála hurðirnareins og þvi sýnist og eldhúsinnréttingarnar má alltaf mála, þegar tilbreytingu vantar i lifið. En þó að margir vilji eignast gamlar Ibúðir, er þvi miöur dálitið erfitt að kaupa þær ennþá, en það er önnur saga. En hvað sem okkur liður hérna á ts- landi, þá eru Danir komnir lengra i þess- ari stefnu og nú þykir enginn ,,fint fólk” þar, nema eiga gamla ibúð, helzt auðvitað gamalt einbýlishús. Hugmyndarikt og óhrætt fólk getur gert slikar ibúðir að hreinasta ævintýralandi að koma inn i og það er ein slik ibúð, sem við ætlum eink- um að fjalla um núna. Hjónin.sem um ræðir keyptu sér gamla ibúð i fjölbýlishúsi þar sem þó hver ibúð hafði sérstakan inngang og eigin garð- blett fyrir framan. 011 húsalengjan var eins, ákaflega dapurleg á svip. En svo fór allt að breytast. Nýjú húseigendurnir voru litaglaðir og máluöu allt, bæði utan og innan. Nágrönnunum þótti úr hófi keyra, þegar húsnúmerið, 56 var málað með f jólubláu utan á skærgulan húsvegg- inn og tveggja metra hátt! Svo langt gekk meira að segja, að númerið var kært, en málaferli féllu niður, þvi að nágrannarnir Hurðin i svefnherberginu fram I ganginn. Mynstriö er gert með þvl aö binda blýant I spotta og festa hinn enda spottans meö teiknibólu I miöju mynstursins. 12

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.