Heimilistíminn - 16.05.1974, Blaðsíða 31

Heimilistíminn - 16.05.1974, Blaðsíða 31
fór de Rougemotn að örvænta að hann sæi kannski aldrei framar hvitan mann. Hann ákvað að ganga til Darwin. Hann veiktist og lýsti siðan nákvæmlega, hernig hann læknaðist. Hann drap villinaut og lagðist til svefns inni i volgum skrokknum. A meðan hafði hin trygga Yamba gengið hundruð milna til að leita réttra lækningajurta handa honum. „Jurtirnar og ylurinn úr nautinu björguðu mér”, segir hann. ,,Ég var fullkomlega læknaður, nýr maður og hraustari en nokkru sinni áður.” Er hann kom á óbyggt landssvæði, fann hann ný furðufyrirbæri til að lýsa: ský af fljúgandi leðurblökum, risarottur og engisprettuhóp, sem var svo vingjarnleg- ur, að mynda úr sér brúyfir á, svo hann gæti gengið þurrum fotum yfir. Eit sinn datt hann i gryfju sem i voru eitraðir, svartir snákar og slapp eftir að hafa drepið 68 þeirra. Þar sem lesendur blaðsins bókstaflega drukku sögurnar i sig fór ekki hjá þvi að de Rougemont yrði þekktur. Hann hélt fyrirlestra á fundum og fólk sat dolfallið yfir þessum furðuævintýrum, sem hann hafðilentiá 30ára timabili. Af þvi enginn landkönnuður hafðinokkru sinni komið til staða þeirra, sem de Rougemontlýsti svo fjálglega, gat enginn með réttu efast um sannleiks- gildið, þrátt fyrir, að sumt væri afar ósennilegt. En fólk tók að efast um ýmsar skepnur, sem de Rougemont sagðist hafa fyrirhittog þegar dagblað eitt sendi menn sina til teiltekins staðar til að mynda fyrirbærin, kom sannleikurinn loks i Ijós. útskúfaöur! Louis, sem var Svisslendingur, hafði aðeins einu sinni komið til Astraliu, sem einkaþjónn. 1 ljós kom, að hann var kvæntur hvtri konu, en hann svaraði þvi til, að Yamba, innfædda konan sin hefði dáið fyrir mörgum árum. En enginn trúði, að hún hefði nokkurn tima.verið til. En Louis de Roguemont skorti ekki hugrekki. Jafnframt þvi sem upp- ljóstranirnar svertu nafn nafn hans, gerði hann áætlanir um fyrirlestraferð til Astraliu. Astralir höföu hlegið mikið af sögum hans og þegar hann gekk inn á leiksvið i Melbourne, var hann umsvifa- laust púaður út af þvi aftur. Hann var fljótur að gleymast, þó að Wide World héldi áfram að blómstra. Arið 1921 var hans þó getið i fréttum er hann andaðist i sárri fátækt i London. Ná- grannar hans þekktu hann þá undir nafninu Louis Grin, en á legsteini hans stendur Louis Redman. i dauðanum jafnt sem lifanda lifi, lætur hann fólk i óvissu um, hver hann raun- verulega var. Nú trúir enginn sögum hans og frægð hans grundvallast á orðstir hans sem mesta lygara heimsins. Hvað er Ef þið dragið strik milli tölustafanna frá 1 til 80, komizt þið að þvi hver er eftirlætisiþróttin hans Snata gamla. 31

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.