Heimilistíminn - 16.05.1974, Blaðsíða 15
Þegar Carol
Austin gifti sig,
>4 ára gömul,
átti hún ekki von
á að verða móðir
árið eftir — i
fyrsta sinn á æv-
inni. En það er
ekki heims-
met....
Carol Austin fæddi myndar-
strák hálfun mánuði fyrir 55
ára afmæli sitt. Hún gifti sig
árið áður i fyrsta sinn og bjóst
alls ekki við stækkun fjöl-
skyldunnar
Elzta móðir í heimi
AST og hjónaband var nokkuð, sem Carol
Cecilia Davies hafði ekki reynt. Hún var
alls ekki ófrið — i sannleika sagt fremur
aðlaðandi og auk þess greind. En piltun-
um hafði hún haldið i hæfilegri fjarlægð:
enginn skyldi fá að snerta hana fyrr en
hún væri meö giftingarhring á fingrinum.
Þetta sagði hún, þegar hún var 15 ára, og
endurtók það 25 ára, 35 ára og 45 ára. Vin-
ir hennar sögðu, að hún hefði löngu getað
verið gift og móðir, ef hún hefði ekki verið
svona gamaldags, og karlmenn hlytu að
halda að hún væri úr klaka, eins og hún
kom fram.
Árin liðu, og Carol Davies vaknaði
morgun einn, þritug að aldri og enn ógift.
Hún varð fertug og hélt áfram að vera ein
og einmana, og þegar hún var 49 ára,
hafði hún gefið upp alla von um að eignast
nokkurn tima mann. Hún var skrifstofu-
stúlka i stóru fyrirtæki i Perth i Vestur-
Ástraliu, þar sem alls ekki er neinn skort-
ur á karlmönnum. Allt I kringum hana
voru stúlkur að giftast, en ekki leit út fyrir
að neinn kæmi auga á Carol.
Nokkrum dögum eftir 54 ára afmæli sitt
fór hún i leyfi til vina i Melbourne, og þar
var hún kynnt fyrir manni að nafni Frank
Richard Austin, bónda, sem verið hafði
ekkill i sex ár. Hann var barnlaus — og
einmana. Honum fannst hann of gamall
til að kvænast aftur, sagði hann, en hann
skipti um skoðun, þegar hann hitti Carol
Davies. Þau yrðu strax góöir vinir,
drógu sig i hlé frá hinum vinunum og
skemmtu sér tvö ein. Tiu dögum siðar bað
Austin hennar^ hún sagði já, og viku siðar
voru þau gift og búsett á jörðinni hans.
54 ára og ófrísk
Kona á þessum aldri hugsar alls ekki
um þann möguleika að eignast barn, svo
Carol gerði engar varúðarráðstafanir.
Bara tilhugsunin fannst henni hlægileg,
og þegar hún fór að fá ógleði á morgnana,
fór hún til læknis, þvi að hún hélt, að þetta
væri breytingaaldurinn. Læknirinn rann-
sakaði hana og lýsti þvi yfir, að hún væri
ófrisk. Carol hélt að hann væri að spauga.
Hver eignast barn svona gömul?
En þetta var ekkert spaug. Eiginmað-
urinn fór með Carol til sérfræðings i Mel-
bourne, og hann staðfesti, að hún ætti i
rauninni von á barni, Carol og Frank
Austin fannst heimur þeirra hafa snúizt
við. Hugsa sér aö fá barn á heimilið! Sér-
fræðingurinn bað Carol að fara sérstak-
lega vel með sig. Hún þyrfti aö fara til
læknis sins vikulega og koma aftur til sér-
fræðingsins, þegar fæðingin færi að nálg-
ast.
1 febrúar 1972 var hún lögð inn á fæðing-
ardeild og rannsökuð nákvæmlega.
Akveðiö var að gera keisaraskurð, og 17.
febrúar fæddist myndarlegur strákur.
Carol fæddi tveimur vikum fyrir 55. af-
mælisdag sinn og frétti, að hún hefði sett
heimsmet. Sér til mikillar undrunar
heyrði hún siðar um aðra konu, Ruth
Kistler frá Portland i Oregon, sem árið
1956 hafði eignazt dóttur. Ruth var þá 57
ára, fjögurra mánaða og sjö daga gömul.
Frú Ruth Kistler var striðsekkja. Hún
hafði verið gift fyrri manni sinum i tæpa
viku, er hann var kallaður i herinn og kom
aldrei aftur. Hún giftist aftur árið 1944, þá
45 ára gömul, og allt útlit var fyrir að
hjónabandið yrði barnlaust En tólf árum
siðar fæddist dóttirin Súsanna.
Doktor Harwey Flack, sem ritstýrir
brezku læknatimariti, skrifaði, að mögu-
leikarnir á að eignast barn eftir 57 ára
aldur væru einn á móti hundrað milljón-
um!
Ég var ekki hrædd
Frú Kistler, sem á metið sem elzta
móðir heims, sagði eftir að dóttirin var
fædd: — Ég var ekki hrædd. Læknarnir
réðu mér til að láta eyða fóstrinu, en ég
neitaði. I fyrsta lagi er ég kaþólsk og trú
min bannar fóstureyðingu, og i öðru lagi
taldi ég barnið hafa jafn mikinn rétt til
lifsins og sjálfa mig.
Súsanna Kistler, sem nú er 18 ára, býr
hjá móður sinni, semoröin er ekkja i ann-
að sinn og er 75 ára gömul. Súsanna er
falleg og greind stúlka, og eilitið stolt af
þvi að fæðing hennar vakti athygli.
Það er alls ekki mjög óvenjulegt að
eignast barn á aldrinum 48 til 52 ára, þó að
blöð vilji stundum gera mikið úr þvi, en
hins vegar byltir slikt lifi konunnar.
Gertrude Broomhall, sem býr i Stoke-
on-Trent i Englandi, giftist Alfred Broom-
15