Heimilistíminn - 16.05.1974, Blaðsíða 19

Heimilistíminn - 16.05.1974, Blaðsíða 19
Hann fór að gráta af hræðslu. Hátt uppi yfir sá hann sólina skina og langt, langt frá honum sátu pabbi og mamma og öll systkinin og borðuðu hádegismat. Pési varð skyndilega af- skaplega svangur og þvi meira sem hann hugsaði um það, þeim mun svengri varð hann. Hann reyndi að kalla á hjálp, en það heyrði vist eng- inn. Bermálið i brúsanum var skelfilegt og auk þess var eng- inn leið að klifra upp þessa sléttu veggi. Pési lagðist út af og sofnaði. Allt i einu heyrði hann rödd beint fyrir ofan sig. Hann hrökk við og leit upp. Höfuð manneskju gægðist niður i brúsann og það leit alls ekki svo hættulega út. Það brosti meira að segja og svo sagði röddin eitthvað aftur: — Sjáðu, Systa, hérna er pinulitil mús. Finnst þér hún ekki falleg? Höfuðið hvarf og siðan birt- ist annað. Sólin hvarf Pésa og allt varð svart i brúsanum. Hann skalf um allan likamann og gat alls ekki legið kyrr af hræðslu. — Veslingurinn, hún er svona hrædd, sagði hin röddin.( — Við skulum hleypa henni út, svo hún komist heim til sin. Hún býr áreiðanlega úti á eng- inu hjá hinum músunum. — Getum við ekki átt hana? sagði Didda, sem fyrst hafði séð músina. — Hún er svo falleg og við getum setta hana i búr og haft hana i herberginu okkar. — Ertu alveg galin? spurði Systa gröm. — Hvernig fynd- ist þér að vera i búri og geta hvorki hitt foreldra þina né systkini. — Hún hefur okkur þó, svaraði Didda og lyfti brúsan- um upp. — Já, en við erum ekki mýs, það hlýturðu að skilja, svaraði Systa ákveðin. — Mér finnst að við eigum að fara út á engið og sleppa henni þar, svo kött- urinn nái henni ekki. — Jæja þá, sagði Didda — en ég ætla að halda á henni og vonandi kemur hún aftur og heimsækir okkur. Þær sættust á þetta, en vesl- Það skemmtilegasta, sem mýsnar vissu var að fara i felu- leik úti á enginu. ings Pési skildi ekkert. Hann lá bara og skalf og faldi höf- uðið milli framlappanna og óskaði, að hann hefði aldrei farið svona langt að heiman. Allt i einu hentist hann til 1 brúsanum, þvi nú var honum snúið við,og áður en Pési vissi af, datt hann niður i mjúkt gras. Hann trúði þessu varla, svo glaður varð hann. Um stund þefaði hann af grasinu, áður en það rann upp fyrir honum, að hann var frjáls á ný. Svo tók hann undir sig stökk og þaut yfir engið. En svo nam hann staðar, reis upp á aftur- lappirnar og tisti eins hátt oghanngat i kveðjuskyni til Systu og Diddu. Pési komst heilu og höldnu heim til sin og sagði frá þvi, sem fyrir hann hafði borið. — Þú varst heppinn i þetta sinn, sagði mamma hans og strauk honum yfir bakið, en Pési heyrði það ekki, þvi hann var steinsofnaður, kominn i draumalandið, þar sem allt var fullt af sólskini og fögrum blómum. (Endir.) 19

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.