Heimilistíminn - 16.05.1974, Blaðsíða 37
Það er alveg ástæðulaust að hafa kartöflur með
öllum mat, þegar til dæmis hrisgrjón eru alveg
eins góð eða jafnvel bétri. Við íslendingar borðum
kartöflur með öllu af einhverjum gömlum vana, en
nú á timum eigum við ekki við svo mikinn
næringarskort að striða, að þær séu okkur nauð-
syn. Hér koma nokkrir réttir með hrisgrjónum i
stað kartafina.
Kraumið gróft saxaðan laukinn og hris-
grjónin i smjörliki i potti. Bætið salti,
safrani og vatni eða kjötseyði út i og
sjóðið i 2-12 minútur undir þéttu loki.
Saltið fiskstykkin, veltið þeim upp úr eggi
og raspi og steikið þau i smjörliki eða oliu.
Hrærið kræklinginn og 1 msk. smjörliki út
I hrisgrjónin og hellið þvi siðan i heitt fat.
Legið steiktan fiskinn á grjónin og
skreytið fatið með sitrónusneiðum og
steinselju. Brúnið afganginn af smjör-
likinu á pönnunni, hrærið 1/2 til eina tesk.
vinedik út i og berið fram með réttinum.
Búlgarskar kótelettur
4-6 svinakótelettur, 2 msk. hveiti 2 tesk.
salt, 1 tesk. þurrkað rosmarin, 4 msk.
smjör eða smjörliki, 1 stór laukur, 2 stórir
bollar hrisgrjón, 1 dós tómatar, 1 grænn
piparávöxtur.
Veltið kótelettunum upp úr blöndu af
hveíti, 1 tesk. salti, pipar og rosmarin og
brúnið þær I 2 msk. smjöri. Leggið þær i
ofnfast fat ásamt tómötunum. Sjóðið
pönnuna af með tómatsafanum úr dósinni
og hellið soðinu yfir kóteletturnar. Setjið
fatið i 180stiga heitan ofn i hálftima. Hitið
saxaðan laukinn I 1 msk. smjöri, hellið
hrisgrjónunum á og látið þau gulna
aðeins. Bætið 3 bollum sjóðandi vatni eða
kjötseyði i og saltið með 1 tesk, leggið
samanbrotið viskastykki yfir pottinn og
lok þar ofan á og látið sjóða I 12 minútur.
Látið siðan standa með lokinu á I 12 min.
til viðbótar. Hreinsið piparávöxtinn,
skerið hann I þunnar ræmur og hitið
nokkrar minútur i 1 msk. smjöri. Hrærið
hann út i hrisgrjónin, sem sett eru i heita
skál og borin fram með kótelettunum.