Heimilistíminn - 17.04.1975, Page 17
Einkastjörnuspáin
17. april
Stjörnurnar hafa úthlutað þér órólegu
og forvitnu eðli. Þú ert sistarfandi og
aldrei ánægðari, en þegar þú ert á kafi i
erfiðu vandamáli. Þú hefur hæfileika á
sviði tónlistar, bókmennta og myndlistar.
Þú hefur eðlilegt látbragð og hefur jafnvel
hug á að spreyta þig á leiksviði. Rödd þin
er falleg og notaðu hana, hvaða lifsstarf
sem þú kannt að velja þér.
Hugboð þitt er skarpt og fyrir kemur, að
þú hefur spádómsgáfu. Skynsamlegt væri
af þér að taka tillit til hugboðs þins i
ríkara mæli, hversu undarlegt sem þér
kann að virðastþað i fyrstu. Þegar þú hef-
ur tamið þér það, muntu komast að raun
um, að þú ert langt á undan keppinautum
þinum bæði i hugsun og framkvæmd.
Reyndu að hugsa svolitið meira um
smáatriðin. Þú vilt gjarnan skipuleggja
fyrirferðarmiklar framkvæmdir en ert
litið hrifinn af undirbúningsvinnu þeirri
sem þarf til að slikt sé hægt.
Lærðu að stjórna skapi þinu. Þú ert
mjög ástriðufullur og ástúðlegur, þó þú
sýnir það ekki oft, jafnvel ekki gagnvart
þinum nánustu. Þú verður ánægðastur ef
þú giftist snemma og eignast stóra fjöl-
skyldu. Tengsl þin við fjölskylduna eru
mjög sterk. Þú ert reiðubúinn að færa
persónulegar fórnir fyrir ástvini þina.
Margt fólk laðast að þér sökum vin-
gjarnlegs viðmóts þins. Hugboð þitt er
sterkt og þú finnur oftsinnis á þér, hváð
gerast muni á næstunni. Svo lengi sem þú
hagnýtir þér þennan eiginleika þinn, mun
allt ganga þér i haginn.
Þú ert metnaðargjarn og hagsýnn
og hefur einkum áhuga á að gera góð við-
skipti og tekst það oftast nær. Ef þú þarft
að velja milli einhverra kosta, er skyn-
samlegt af þér að hlýða hugboði þinu. Þar
sem þú ert oft mjög að flýta þér fram á
við, kemstu illa hjá að troða fólki um tær,
en þú ferð svo elskulega að þvi, að þú
móðgar engan. Þú hefur ekki mikinn
áhuga á að starfa að smáatriðum, nema
þú hafir lag á að koma þeim yfir á aðra,
þegar þér er falið verkefni. Þú gerir þér
ekki alltaf grein fyrir að þú átt keppinauta
og þess vegna er hætt við að þú missir
öðru hverju af tækifærum. Temdu þér að
hafa augun vel og vandlega opin og eygja
tækifærin, þegar þau gefast.
18. APRÍL
Skaplyndi þitt er það sama og lista-
manna og þú hefur lika listræna hæfileika
á sviði bókmennta, tónlistar og myndlist-
ar. Þú ert mjög hagsýnn og þú treystir
hæfileikum þinum vel. Þú þykist viss um
velgengni. I rauninni muntu yfirleitt geta
lokið verkefni, sem aðrir hafa gefist upp
á. En vegna þessarar þrjóskulegu þolin-
mæði þinnar hefurðu möguleika á að
framkvæma allt, sem þú hefur tekið að
þér. Þvi erfiöara, sem verkefnið er, þeim
mun skemmtilegra finnst þér það.
Þú hefur leikhæfileika. Konur fæddar
þennan dag hugsa sér gjarnan að spreyta
sig á leiksviði. Karlmenn kjósa hins vegar
heldur stjórnmál eða lögfræði, ef til vill
hvoru tveggja. Þú ert mjög aðlaðandi,
þegar þú kemur fram opinberlega og ert
aldrei feiminn við að tala yfir miklum
mannsöfnuði. Án efa yrðirðu góður lög-
fræðingur, könnuður eða ráðherra. Þú
elskar börn og vilt gjarnan eiga stóra fjöl-
skyldu. Konur yrðu góðir kennarar,
unglingaráðgjafar eða starfsmanna-
stjórar. Börn laðast að þér, treysta þér og
koma gjarnan til þin að leita ráða.
Andleg orka þin er meiri en likamlegt
ástand leyfir og þú verður að gæta þin á
ofþreytu. Oft ferðu i rúmið með allt of
marga hluti á heilanum. Gættu þess að fá
næga hvild.
17