Heimilistíminn - 17.04.1975, Síða 17

Heimilistíminn - 17.04.1975, Síða 17
Einkastjörnuspáin 17. april Stjörnurnar hafa úthlutað þér órólegu og forvitnu eðli. Þú ert sistarfandi og aldrei ánægðari, en þegar þú ert á kafi i erfiðu vandamáli. Þú hefur hæfileika á sviði tónlistar, bókmennta og myndlistar. Þú hefur eðlilegt látbragð og hefur jafnvel hug á að spreyta þig á leiksviði. Rödd þin er falleg og notaðu hana, hvaða lifsstarf sem þú kannt að velja þér. Hugboð þitt er skarpt og fyrir kemur, að þú hefur spádómsgáfu. Skynsamlegt væri af þér að taka tillit til hugboðs þins i ríkara mæli, hversu undarlegt sem þér kann að virðastþað i fyrstu. Þegar þú hef- ur tamið þér það, muntu komast að raun um, að þú ert langt á undan keppinautum þinum bæði i hugsun og framkvæmd. Reyndu að hugsa svolitið meira um smáatriðin. Þú vilt gjarnan skipuleggja fyrirferðarmiklar framkvæmdir en ert litið hrifinn af undirbúningsvinnu þeirri sem þarf til að slikt sé hægt. Lærðu að stjórna skapi þinu. Þú ert mjög ástriðufullur og ástúðlegur, þó þú sýnir það ekki oft, jafnvel ekki gagnvart þinum nánustu. Þú verður ánægðastur ef þú giftist snemma og eignast stóra fjöl- skyldu. Tengsl þin við fjölskylduna eru mjög sterk. Þú ert reiðubúinn að færa persónulegar fórnir fyrir ástvini þina. Margt fólk laðast að þér sökum vin- gjarnlegs viðmóts þins. Hugboð þitt er sterkt og þú finnur oftsinnis á þér, hváð gerast muni á næstunni. Svo lengi sem þú hagnýtir þér þennan eiginleika þinn, mun allt ganga þér i haginn. Þú ert metnaðargjarn og hagsýnn og hefur einkum áhuga á að gera góð við- skipti og tekst það oftast nær. Ef þú þarft að velja milli einhverra kosta, er skyn- samlegt af þér að hlýða hugboði þinu. Þar sem þú ert oft mjög að flýta þér fram á við, kemstu illa hjá að troða fólki um tær, en þú ferð svo elskulega að þvi, að þú móðgar engan. Þú hefur ekki mikinn áhuga á að starfa að smáatriðum, nema þú hafir lag á að koma þeim yfir á aðra, þegar þér er falið verkefni. Þú gerir þér ekki alltaf grein fyrir að þú átt keppinauta og þess vegna er hætt við að þú missir öðru hverju af tækifærum. Temdu þér að hafa augun vel og vandlega opin og eygja tækifærin, þegar þau gefast. 18. APRÍL Skaplyndi þitt er það sama og lista- manna og þú hefur lika listræna hæfileika á sviði bókmennta, tónlistar og myndlist- ar. Þú ert mjög hagsýnn og þú treystir hæfileikum þinum vel. Þú þykist viss um velgengni. I rauninni muntu yfirleitt geta lokið verkefni, sem aðrir hafa gefist upp á. En vegna þessarar þrjóskulegu þolin- mæði þinnar hefurðu möguleika á að framkvæma allt, sem þú hefur tekið að þér. Þvi erfiöara, sem verkefnið er, þeim mun skemmtilegra finnst þér það. Þú hefur leikhæfileika. Konur fæddar þennan dag hugsa sér gjarnan að spreyta sig á leiksviði. Karlmenn kjósa hins vegar heldur stjórnmál eða lögfræði, ef til vill hvoru tveggja. Þú ert mjög aðlaðandi, þegar þú kemur fram opinberlega og ert aldrei feiminn við að tala yfir miklum mannsöfnuði. Án efa yrðirðu góður lög- fræðingur, könnuður eða ráðherra. Þú elskar börn og vilt gjarnan eiga stóra fjöl- skyldu. Konur yrðu góðir kennarar, unglingaráðgjafar eða starfsmanna- stjórar. Börn laðast að þér, treysta þér og koma gjarnan til þin að leita ráða. Andleg orka þin er meiri en likamlegt ástand leyfir og þú verður að gæta þin á ofþreytu. Oft ferðu i rúmið með allt of marga hluti á heilanum. Gættu þess að fá næga hvild. 17

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.