Heimilistíminn - 17.04.1975, Síða 18
Þú ert jákvæður, alvarlegur, kröfu-
harður og röskur við allt sem þú tekur þér
fyrir hendur. Þú ert vingjarnlegur og ró-
legur i framkomu, en á bak við elskulegt
yfirborðið ertu jámharður. Fyrir kemur,
að þú ert dálitið ráðrikur. Þeir sem
dirfast að vera á öndverðum meiði við
þig, fá greinilega að finna fyrir andúð
þinni.
En fólk, sem likist þér, kann á þig
og sigrast á öllum hindrunum að þér.
Karlmenn fæddir þennan dag hafa áhuga
á vfsindum stjórnmálum og leikhúsum.
Þótt þessi áhugamál skapist ef til vill ekki
fyrr en siðar á ævinni, er liklegt, að þú
helgir þig einhverju þeirri algjörlega og
þroskir hin meðfram. Hugboð þitt er
skarpt og andleg orka þin verður þér til
mikils gagns i starfi.
Konur fæddar þennan dag eru mjög
ástriðufullar og munu vafalaust eiga ótal
ástarævintýri. Þeim veitist oft erfitt að
finna hinn fullkomna karlmann. Gætið
þess að vera ekki svo vándlátar, að þið
finnið engan.
Þú vilt endilega vera sjálfum þér nógur
og upp á engan kominn og sumum veitist
erfitt að skilja þá afstöðu þina. Stundum
ertu félagslyndur og glaðlegur, en hins
vegar fráhrindandi og kaldur. Ef þú getur
forðast öfgarnar verðurðu ánægður.
20. APRIL
Þú ert ákaflega sköpunarglaður. Þú ert
sjálfstæður og hefur mikið sjálfstraust.
Þú kýstað standa á eigin fótum og ná tak-
mörkum þinum og þér er illa við alla
örðugleika á leiðinni. Þú ferð þinar eigin
leiðir og ef einhver reynir að breyta
hugsunarhætti þinum, verðurðu þrár.
Hugsjónir þinar eru háleitar og
metnaðurinn mikill. Þú munt vinna hörð-
um höndum til að ná takmörkum þinum
og þolir ekki að neinn skipti sér af þvi. Þú
annt réttlætinu og leyfir engum að hafa
áhrif á ákvarðanir þinar. Þú hefur góða
dómgreind, en temdu þér meiri varkárni.
Þú ert liflegur i hugsun og hefur mikið
hugmyndaflug, en með timanum muntu
temja þér meiri alvöru i hugsun. Alla ævi
muntu hafa áhuga á góðri tónlist, leiklist
og óperum. Tilfinningar þinar eru nálægt
yfirborðinu, en þú lærir að hafa hemil á
þeim með timanum, annars er hætt við að
þú lendir i vandræðum. Þú ert
menningarlega sinnaður og vilt helzt um-
gsngast fólk, sem er það lika. Fullvissaðu
þig um að makinn sé á sama sviði hvað
það varðar, annars fer þér að leiðast og
afleiðingin verður sú, að þú ferð að leita út
fyrir heimilið.
Stjörnurnar hafa úthlutað þér leikara-
hæfileikum og þú hefur brennandi áhuga
á öllu, sem við kemur leikhúsi, bæði sem
leikari, leikritahöfundur og leikstjóri. Þú
hefur lika tónlistaráhuga og ef til vill
leikurðu i hljómsveit, ef þú æfir þig nægi-
lega.
Þar sem þú ert gefinn fyrir ferðalög,
. hentar þér vel að fara i leikferðir eða
hljómleikaferðir, þar sem þér gefst ,tæki-
færi til að sjá nýja staði og hitta nýtt fólk.
Þú getur grætt peninga á næstum hverju
sem er og að likindum verðurðu vel
auðugur.
Þú ert svo fikinn i breytingar, að það
getur verið erfitt fyrir þig að einbeita þér
að einu verkefni um ákveðinn tima i einu.
Ef eitthvað mistekst fyrir þér, varparðu
þvi þegar frá þér og byrjar strax á ein-
hverju öðru. Ef þú værir svolftið teygjan-
legri, kæmistu að raun um, að hlutirnir
eru auðveldari á þann hátt.
Þú ert annað hvort ákveðið með eða á
móti hlutunum, svo mögulegt er að þú
veröir ástfanginn við fyrstu sýn. Þá er þér
óhætt að treysta hugboðinu, þvi það
bregst sjaldan. Þú ert hreinskilinn og
tryggur i tilfinningum og munt skapa
mikla hamingju i hjónabandi. Heimili þitt
verður sælureitur og þú eignast að líkind-
um mörg börn.
18