Heimilistíminn - 17.04.1975, Blaðsíða 18

Heimilistíminn - 17.04.1975, Blaðsíða 18
Þú ert jákvæður, alvarlegur, kröfu- harður og röskur við allt sem þú tekur þér fyrir hendur. Þú ert vingjarnlegur og ró- legur i framkomu, en á bak við elskulegt yfirborðið ertu jámharður. Fyrir kemur, að þú ert dálitið ráðrikur. Þeir sem dirfast að vera á öndverðum meiði við þig, fá greinilega að finna fyrir andúð þinni. En fólk, sem likist þér, kann á þig og sigrast á öllum hindrunum að þér. Karlmenn fæddir þennan dag hafa áhuga á vfsindum stjórnmálum og leikhúsum. Þótt þessi áhugamál skapist ef til vill ekki fyrr en siðar á ævinni, er liklegt, að þú helgir þig einhverju þeirri algjörlega og þroskir hin meðfram. Hugboð þitt er skarpt og andleg orka þin verður þér til mikils gagns i starfi. Konur fæddar þennan dag eru mjög ástriðufullar og munu vafalaust eiga ótal ástarævintýri. Þeim veitist oft erfitt að finna hinn fullkomna karlmann. Gætið þess að vera ekki svo vándlátar, að þið finnið engan. Þú vilt endilega vera sjálfum þér nógur og upp á engan kominn og sumum veitist erfitt að skilja þá afstöðu þina. Stundum ertu félagslyndur og glaðlegur, en hins vegar fráhrindandi og kaldur. Ef þú getur forðast öfgarnar verðurðu ánægður. 20. APRIL Þú ert ákaflega sköpunarglaður. Þú ert sjálfstæður og hefur mikið sjálfstraust. Þú kýstað standa á eigin fótum og ná tak- mörkum þinum og þér er illa við alla örðugleika á leiðinni. Þú ferð þinar eigin leiðir og ef einhver reynir að breyta hugsunarhætti þinum, verðurðu þrár. Hugsjónir þinar eru háleitar og metnaðurinn mikill. Þú munt vinna hörð- um höndum til að ná takmörkum þinum og þolir ekki að neinn skipti sér af þvi. Þú annt réttlætinu og leyfir engum að hafa áhrif á ákvarðanir þinar. Þú hefur góða dómgreind, en temdu þér meiri varkárni. Þú ert liflegur i hugsun og hefur mikið hugmyndaflug, en með timanum muntu temja þér meiri alvöru i hugsun. Alla ævi muntu hafa áhuga á góðri tónlist, leiklist og óperum. Tilfinningar þinar eru nálægt yfirborðinu, en þú lærir að hafa hemil á þeim með timanum, annars er hætt við að þú lendir i vandræðum. Þú ert menningarlega sinnaður og vilt helzt um- gsngast fólk, sem er það lika. Fullvissaðu þig um að makinn sé á sama sviði hvað það varðar, annars fer þér að leiðast og afleiðingin verður sú, að þú ferð að leita út fyrir heimilið. Stjörnurnar hafa úthlutað þér leikara- hæfileikum og þú hefur brennandi áhuga á öllu, sem við kemur leikhúsi, bæði sem leikari, leikritahöfundur og leikstjóri. Þú hefur lika tónlistaráhuga og ef til vill leikurðu i hljómsveit, ef þú æfir þig nægi- lega. Þar sem þú ert gefinn fyrir ferðalög, . hentar þér vel að fara i leikferðir eða hljómleikaferðir, þar sem þér gefst ,tæki- færi til að sjá nýja staði og hitta nýtt fólk. Þú getur grætt peninga á næstum hverju sem er og að likindum verðurðu vel auðugur. Þú ert svo fikinn i breytingar, að það getur verið erfitt fyrir þig að einbeita þér að einu verkefni um ákveðinn tima i einu. Ef eitthvað mistekst fyrir þér, varparðu þvi þegar frá þér og byrjar strax á ein- hverju öðru. Ef þú værir svolftið teygjan- legri, kæmistu að raun um, að hlutirnir eru auðveldari á þann hátt. Þú ert annað hvort ákveðið með eða á móti hlutunum, svo mögulegt er að þú veröir ástfanginn við fyrstu sýn. Þá er þér óhætt að treysta hugboðinu, þvi það bregst sjaldan. Þú ert hreinskilinn og tryggur i tilfinningum og munt skapa mikla hamingju i hjónabandi. Heimili þitt verður sælureitur og þú eignast að líkind- um mörg börn. 18

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.