Heimilistíminn - 27.01.1977, Side 3

Heimilistíminn - 27.01.1977, Side 3
Kæri Alvitur. Við erum hérna tvær i 5. bekk i gagnfræöaskóla úti á landi á við- skiptakjörsviöi. Undanfarið höfum við verið að spyrjast fyrir um hvort við komumst i 4. bekk Verzlunarskóla næsta vetur ef við náum nægilega góðri einkunn, en þeir sem við höfum spurt þeim ber ekki saman og erum við þvi engu nær, en vonum að þú getir bætt úr þessu fljótlega. Einnig langar okkur að vita hvort það sé einungis framsóknarfólk, sem kemst inn i Sam- vinnuskólann að Bifröst, en um þetta er lika þrætt hérna. Og að lokum hvaða menntun þarf til þess að verða þroskaþjálfi? Hvað lestu úr skriftinni og hvað heldurðu að ég sé gömul? Anna og Auður Svar: Námið sem þið eruö i nú er viðskipta-og verzlunarnám, sem verið er að byggja upp og ætlunin er að verði hliðstætt námi i Verzlunarskóla Is- lands og Samvinnuskólanum. Fyrstu árin sem framhaldsdeildirn- ar störfuðu var þó námið á viðskipta- kjörsviði þar engan veginn hliðstætt verzlunarnámi i áðurnefndum tveim skólum. Verzlunarskólinn hefur ekki tekið próf úr 5. bekk framhaldsdeildar gilt sem inngöngu i 4. bekk Verzlunar- skóla. Þess hefur aldrei veriö krafizt aö nemendur Samvinnuskólans hefðu einhverja ákveðna stjórnmálaskoðun. Þroskaþjálfaskóli Islands er þriggja ára skóli, sem hefur verið i tengslum við Kópavogshælið en er nú til húsa aö miklu leyti i gamla Miðbæjarskólan- um: Samkvæmt reglum skólans er r gagnfræðapróf inntökuskilyrði, en þaö á nánast ekki við nú. í framkvæmd er lágmarksinntökuskilyrði próf úr 5. eöa 6. bekk framhaldsdeilda gagnfræða- skólanna. Nemendur i skólanum nú hafa ýmiss konar menntun að baki. Sumir eru úr framhaldsdeildunum, aðrir stúdentar og enn aðrir hafa verið á Lýðháskólanum i Skálholti. Sú sem skrifar er á að gizka 18 ára. Skriftin er snyrtileg og ber vott um samvizkusemi og gott skap. Alvitur Hcill og sæll Alvitur. Heimilistiminn er hjartfóigið blað ég held ’onum saman og les hann. Pennann ég grip og þakka vil það, en þrái að yrkja i pésann. Ef sporðdreki er meyja, en maðurinn ijón, er margt nokkuð um þau að segja? En ef hann er hrútur, er fiskur þá fión að fara að elska þann peija? Þið hafið mér alltaf svör ykkar sent er setzt hef ég niður að rita. Þvi skal ég fyrirfram þakka ykkur pent það sem mig fýsir að vita. Þeir sem að fijúga oft iandshorna leið og lifa á öryrkja bótum, hvernig þeir tóra eitt ævinnar skeið með útsvars og farseðlanótum. Lilja Bjarkardóttir. Svar: Sporðdrekar eru sagðir hæfa vel Kröbbum og öðrum Sporðdrekum. En hjónabönd þeirra og Fiska standa sjaldan lengi. Ljón eiga auðvelt um makaval en þó skyldu þau forðast Steingeitur og Sporðdreka. Fiskar eiga bezt við Krabba og Sporðdreka, en það þarf ekki að merkja að þeir séu flón ef þeir elska Hrúta. Sé siðasta visan spurning, þá verður Alvitur að viðurkenna að honum er málið hulin ráðgáta. Alvitur Kæri Alvitur,' GIoss hefur mikið verið notað nú undanfarið og ég hef heyrt orðróm um að það væri hægt að búa giossiö tii á eigin spýtur. Og þá kemur spurning- in: Hvaða efni þarf i gloss og hvernig á að meðhöndla þau svo vel fari? Bogmaöur Svar: Ég efast um að það svari kostnaði að reyna að búa glossið til sjálfur og mér er ókunnugt um nákvæmlega hvaða efni hvaða efni eru i þvi. Hins vegar gefur svipaöa útkomu aö bera eitthvert feitt krem á varirnar, ef þú ert með litarlaust gloss i huga. Alvitur Meðal efnis í þessu blaði: Blind og skrif ar f erðasögur.........bls. 4 Minningar frá stríðsárunum.........bls. 7 Lísa í Undralandi .................bls. 12 Vantar þig kjól á árshátíðina......bls. 14 Ástin þarf að vera f rjáls.........bls. 16 Víkingarnir........................bls. 20 Þarf tu að léttast?................bls. 22 Láttu þér liða vel á meðan.........bls. 14 Þáttaskil — ur nýjum bókum.........bls. 26 Rauðu kettirnir....................bls. 32 Ennfremur Alvitur svarar, Krossgáta, Spé- speki, Börnin teikna, Hvað veiztu, Penna- vinir og Hlæið. Forsíðumyndina tók Haukur Þórólfsson. - Ljóðlínurnar eru úr Á afmæli kattarins eftir Jón Helgason. V

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.