Heimilistíminn - 27.01.1977, Blaðsíða 24

Heimilistíminn - 27.01.1977, Blaðsíða 24
Láttu þér líða vel MEÐAN ÞÚ GRENNIST Það er ánægjulegt að finna kilónunum fækka, þegar þú ert komin(n) á rekspöl meö aö halda i við þig i mat.og drykk. Enn ánægjulegri verður þó árangurinn ef farið er i fegurðar- og heilbrigðiskúr i leiðinni. Þegar dagleg fæða allt I einu hefur að geyma mun minna magn af fitu en áður og f itula gið undir húðinnj m innkar er hætt við að það komi niður á teygjanleika hennar. Oft verður hún þurr, 'Jiflaus og „þreytt”.Þá er gottað örva blóörásina til húðarinnarmeðþviað fara i bað daglega. Nota vel' grófan þvottapoka eða bursta. Burstinn má gjarnan vera stór en ekki með svo hörðum hárum aö hann rifi húð- ina. Notið milda og góða sápu. Nuddið all- an likamann með föstum hreyfingum i hring og i átt til hjartans. Skolið ykkur vel og helzt með isköldu vatni siöast. (Það gefur mikla þægindatilfinningu þegar maður hefur vanizt þvi, og það er auð- veldara ef vatnið er fyrst haft heitt, siðan volgt, svo hálfkalt og loks iskalt!). Nú er trúlegt að húðin sé orðin rauð en þaö er merki þess að blóörásin er farin vel af staö. Þurrkiö ykkur vel. Húðin verður gróf ef farið er i fötin með hana hálfraka. Ef þú notar svitameðal gerðu þaö strax og láttu þaðþorna áður en þú ferð i. Oft er 24 likamslyktin sterkari þegar fólk hefur breytt matarvenjum sinum, en sumir svitna þá meira en ella. Einnig er ástæða til að bursta tennur eða skola munninn oftar en undir venjuleguim kringumstæð- um. Þegar talað er um svitameðul, þá er rétt að minna konur á að fjarlægja hárin úndir handleggjunum, þau eru ekki til prýöi að flestra mati og svitameðalið hefur meiri áhrif ef þau eru f jarlægð. (En notið ekki svitameðal fyrr en 12 timum eftir að hárin hafa verið fjarlægð). Ljúkið siöan morgunsnyrtingunni með þvi að nudda rakakremi á húðina um all- an likamann, einkum á axlir, handleggi ogfætur. Áður fyrr var talið að þurra húð skorti fitu. Nú telja menn að hana skorti raka. Þar með er þó ekki sagð að oliubað eða notkun oliu á húðina sé árangurslaust. Sumir hafa þörf fyrir slikt af og til en til daglegs brúks eru rakakrem nú talin heppilegri. Upphandleggirnir eru sá staður þar sem árangurinn af megruninni er ekki alltaf sem ánægjuleg- astur. Þeirverða oft mjög slappir, jafnvel svo að húðin hangir i fellingum. Hér koma armæfingar að gagni. Teygðu handlegg- ina — upp og til hliðar og aftur. Þú finnur hvað hefur mest áhrif — þ.e.a.s. þú þarft að finna að þú takir á með slöppu vöðvun- um! Siðan er ekki siður mikilvægt að slaka á. Láttu handleggina falla þungt niður og hristu þá þangað til þú finnur slökun i axlarliðunum. Þú getur sýnst grennri Þú getur auðveldlega taliö fólki trú um að þú hafir grennzt mun meira en þú hef- ur i raun og veru með þvi að hugsa ofur- litið um hvernig þú berð þig. Stattu fyrir framan stóran spegil. Vertu fyrst eins og þú ert venjulega. Ertu kannski hokin(n) I mjöðmum, álút(ur) með innfallið brjóst og hangandi höfuð. Imyndaðu þér nú að þú sért með band upp úr hvirflinum, sem einhver togi f. Réttu upp höfuðið en teygðu ekki hökuna fram um leið. Réttu úr bak- inu —en ekki með að draga saman axlirn- ar, heldur með þvi að ýta fram brjóstinu. Réttu úr mjöðmunum með þvi að draga inn afturendann og saman og inn maga- vöðvana. Og sjáðu né er það ekki rétt að þú virðist miklu grennri?

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.