Heimilistíminn - 27.01.1977, Blaðsíða 14

Heimilistíminn - 27.01.1977, Blaðsíða 14
ekki að segja frá gærdeginum, þvi að þá var ég allt önnur manneskja”, sagði Lisa. „Skýrðu þetta nánar”, sagði skjaldböku- bróðir. „Nei, nei, fyrst viðburðina, skýringar eru svo fjarska leiðinlegar”, sagði flugskrimslið óþolinmótt. Lísa sagði nú ævintýri sitt, frá þeirri stund, er hún sá hvitu kaninuna. Hún var dálitið feimin og vandræðaleg i fyrstu. Dýrin sátu sitt hvoru megin við hana, með galopna munna og augu. Þegar leið á frásögnina jókst hugrekki hennar. Áheyrendur hennar voru algjörlega kyrrir og rólegir, þangað til hún sagði þeim frá kálorminum og viðtali sinu við hann. Þá stundi skjaldbökubróðirinn þungan, og sagði: „Þetta er mjög undarlegt”. „Það er vægast sagt, stórfurðulegt”, sagði flugskrimslið. Lisa ætlaði að fara að halda áfram sögu sinni, þegr heyrðist kallað i fjarska: „Rétt- urinn er settur”. „Af stað, af stað”, hrópaði flugskrimslið, tók Lisu við hönd sér og dró hana á eftir sér, án frekari málalenginga. „Hvaða réttur er þetta?” spurði Lisa á hlaupunum, en flugskrimslið svaraði aðeins: „Af stað, af stað”. Síðast þegar sást til skjaldbökubróður, stóð hann ennþá i fjörunni. Tárin streyndu niður kinnar hans og runnu i striðum straumi til sjávar. H^ilÐ r Vantar þig kjól á ars- hátíðina ? Ef svo er þá er hér einn fljótsaumaður -

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.