Heimilistíminn - 27.01.1977, Blaðsíða 6

Heimilistíminn - 27.01.1977, Blaðsíða 6
Gun Nihlén er 72 ára og blind, en skrifar svo lifandi ferðalýsingar að lesandanum finnst hann vera staddur á þeim stöðum, sem hún lýsir. Hvernig getur þetta átt sér stað? hólmi, tilraunaskóla, þar sem skólalýö- ræöi var komiö löngu áður en farið var aö tala um slika hluti og börnin voru látin venjast þvi að stjórna sér sjálf. Skólalýö- ræöi er ekki hægt aö koma á ofan I frá, álitur Gun, þaö verður aö koma aö innan og verða til frá grunni. Félagsskapur, vinátta Fyrsta bók Gun Nihlén hét „Hversdags börn” (Vardagsbarn) og fjallar um upp- eldi. Hún skrifaöi hana eftir aö Olofsskól- inn var lagöur niöur eftir aö hann naut ekki lengur rlkisstyrks. Hún og maður hennar ólu börn sin upp i frjálsræði, sem byggöist á félagsskap og vináttu en ekki valdi. — Og mér finnst okkur hafa tekist nokk- uö vel, segir Gun. Lýöræöi á einnig að rikja 1 fjölskyldunni, aö minu áliti, meö samvinnu og samstarfi. Það hefur I för með sér aö fulloröna fólkiö veröur aö reyna að skilja heim barnsins. Ég tel aö viö fullorðna fólkið ættum aö reyna aö minnast þess þegar viö sjálf vorum börn — hvernig var að ganga á blómguöum velli þegar blómin náðu okkur upp aö aug- um. Ef við höfum gleymt hve allt var lif- andi þá eigum viö i erfiöleikum aö skilja • börnin. Sjö ára rithöfundur hjálpaði til Sjö barnabörn Gun Nihlén eiga öll heima i nágrenninu á Skáni og hún hefur mikið samband við þau. Einkum viö Kristján, sem er sjö ára, en þau hafa samið tvær bækur saman. sú fyrri „Krist- ján og kynjadýrið” kom út fyrir nokkrum árum — sú siöari, sem heitir „Ferö til draumalandsins” er nýkomin út. — Kristján fann upp kynjadýriö þegar við vorum I Tiról fyrir þrem árum. Þaö er meö fætur, hendur og andlit eins og maö- ur, en er loðið og hefur langan hala. Krist- ján er alltaf fullur af uppátækjum og 6 Imyndunarafli. Þar sem ég sé ekki er mér eölilegt aö lifa meö honum i imyndunar- heimi hans — það er svo skemmtilegt.... Mér finnst mikilvægt aö kynslóöirnar eigi samskipti. Ég hef haft ósegjanlega gleöi af samskiptum viö æskufólk og ég trúi á æskuna. Min kynslóö hefur gert margt vitlaust, sem æskan setur sig upp á móti, þaö finnst mér vera rétt. Mér finnst heilbrigð andstaða gegn verzlunar- mennsku, mengun og ööru álika vera mjög jákvæö. Þvi fylgja að sjálfsögöu sérstök vanda- mál að skrifa bækur og geta ekki séö. Gun hefur komiö sér upp eigin vinnutækni, sem gengur vel. Hún les fyrst hvern kafla inn á segulband. Siöan skrifar hún sjálf frumhandrit eftir bandinu. Siðan þarf hún aö fá einhvern til að lesa handritiö upp- hátt fyrir hana og gera þær breytingar og leiðréttingar, sem hún telur nauösynleg- ‘ar. Siðan þarf hún að fá einhvern til að hreinrita handritið. — Allt þetta kostar peninga, ég vil ekki fá ókeypis aðstoð. Svo mikill hluti laun- anna fer I þetta. En ég skrifa ekki heldur til aö græða peninga, ég skrifa til þess að bjarga sjálfri mér. Merkilegar rannsóknir 1 mörg ár hefur Gun Nihlén fylgzt meö stórmerkum rannsóknum, sem fram fara IPóIlandi. Hér er um að ræða hjálpartæki fyrir blinda eins konar „rafeindaauga”. Það var árlð 1966 að maður hennar og yngstu synirnir tveir fóru i fyrsta sinn til sjúkrahússins i Stettin, til að mynda sér skoðun á tækinu. Siðar hefur Gun dvalizt þar nokkrum sinnum og aðstoðað vis- indamennina með þvi að vera „tilrauna- kanina”. — „Rafeindaaugað” er samsett úr smá- um punktum eða frumum og ljósmynda- linsu. Myndin verður til fyrir rafeinda- áhrif á frumurnar, sem aftur gefa tilfinn- ingu I enninu. Sfðan á tilfinningin aö berast til sjónmiðstöövar. Gun hefur reynt nokkrar klunnalegar geröir af þessum búnaði og getur staðfest að hann er starfhæfur. I tilraununum I Stettin gat hún án erfiðismuna greint mis- munandi ljósa hluti á dökkri boröplötu. En þaö er mikilvægt að leggja áherzlu á að hún sá ekki,heldur hafði tilfinningu I enninu. Hún heldur tengslum viö pólsku vfsindamennina, sem gera ráö fyrir aö hafa senn nýtt tæki tilbúið. Þaö verður granntbandyfirenniö, en þar verður lins- an og tilbúna nethimnan. — Ég virði pólsku visindamennina mjög og er sannfærð um að þeim tekst þetta. Takmark þeirra er að allir blindir fái sýn. Ég trúi á tækið þeirra og að það leiöi það af sér, aö blinda verði ekki til I framtíðinni i sama skilningi og nú. Þegar ég sit og ræði við Gun Nilhlén i herbergi hennar skilst mér hvflikur óhemju missir það hlýtur að vera að missa sjónina og hve mikilvæg öll önnur 1 skilningarvit verða þá — ósýnilegi heimurinn. — Ég byggi mér upp eins konar innri heim úr hljóðum, röddum, lykt, endur- minningum og tengslum, segir Gun. Ég er alltaf að skapa nýjar sjónmyndir. Þaö er undarlegt, t.d. þegar ég hitti einhvern I fyrsta sinn er hann aöeins rödd. En þegar ég hef rætt við hann um stund sé ég hann fyrir mér — þannig er þaö meö þig núna, ég sé þig fyrir mér á minn hátt. Þegar ég segi frá einhverju segi ég enn ég ,,sá.” En það mikilvægasta ekki aðeins fyir blinda heldur alla eru tengslin viö annaö fólk. A langri starfssamri ævi, haföi hún þegar komizt aö þeirri niöurstöðu, en slöan hún missti sjónina hefur hún styrkzt enn meira I þessari trú sinni: — Ekkertgeturkomiö Istaö mannlegra samskipta, segir hún. Við mannfólkið þörfnumst hvers annars. Þess vegna er það svo sorglegt aö svo margt fólk er einmana I samfélaginu. Ég hef alltaf vit- að þetta. En það var ekki fyrr en ég missti sjónina aðég fann raunverulega fyrir þvi. Það er ekkert mikilvægara en mannleg samkennd. Við þörfnumst einskis eins mjög og náinna tengsla við annaö fólk. Velmegun og lífskjör hafa litið að segja, samkennd og samvinna hefur allt að segja. Maður er manns gaman. (þýttog endursagt.)

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.