Heimilistíminn - 27.01.1977, Blaðsíða 35

Heimilistíminn - 27.01.1977, Blaðsíða 35
slegizt í hópinn og er órólegur. Sintram strýkur sér vinalega upp við hann, en hann sparkar honum f rá sér, óþolinmóður og viðut- an. Hann er með hnyklaðar brúnir, sem virðast samvaxnar yfir svörtum augunum. — Ég mátti til að koma hingað og frétta hvort nokkur árangur væri af rannsókn þeirra Bodil og Jónasar, en ég sé, að sérfræðingur hefur tekið við af okkur áhugamönnum. — Já. Christer er hvass. Og það er eins gott, að þið biðjið þess öll, að þau umskipti hafi ekki orðið um siðir. Ef eitthvert ykkar hefði haft svo mikla vitglóru og nógu hreina samvizku til að hafa strax samband við lögregluna, hefðum við ekki þurft að standa hér nú og spyrja okkur þess hvað haf i komið fyrir Bodil á leiðinni frá Uddeholm til Ramen. — Það sama og kom f yrir Ingulill Odén á þessari sömu leið. Þessi óhugnanlega fullyrðing kemur þeim öllum tilað snúa sér við og stara á úrsúlu Karlmen, sem svartklædd og ógnvekjandi virðist hafa komið ofan úr skýjunum. Hún ávarpar Christer, en framkoma hinna þriggja sýnir, hve mikil áhrif skyndileg koma hennar og óhugnanleg getgáta hefur haft. Madeleine Samzelius reikar í spori, eins og hún hafi verið lamin og hvíslar: — Ó, nei, nei... Ekki hún! Kurrandi hljóð brýzt fram úr koki Jónasar og hann hefði efalaust ráðizt á úrsúlu með öllum sín- um 90 kílóa þunga, ef ískaldur hljómurinn í rödd manns hennar hefði ekki fryst reiði hans sjálfs. — Þú hefurelt mig. Aftur. Til að njósna um mig! Nú, flýttu þér nú að segja frá því, sem þú hefur komizt að. — Engu, segir hún þreytulega,... engu sem ég ekki vissi fyrir. Nema.... Átta augu hvila á ómáluðum slöppum munni hennar. — Nema hverju.....? — Að Bodil hefur sennilega kosið að fara hina leiðina.... gegnum skóginn... Svar Ragnars Karlman er eins og svipuhögg: — Já, og hvað svo? — Þú óskt einnig þá leið. Og það tók þig einkenni- lega langan tíma...i dag.... að komast til Rámen. H$IÐ — Viö spörum alveg gifurlega á þvi aö kaupa i sparnaöarumbúöum! — Það er ekki þaö, aö ég vilji ekki lána þér fyrir kaffibolla, en ég veit bara ekki, hvernig ég á að hafa úttektarheimildina. HVAÐ VEIZTU 1. Hverjir voru Veröandimennirn- ir? 2. Hvaöa skáld er fætt á Godda- stööum I Dalasýslu 4. nóvember 1899? 3. Eftir hvern er bókin A bökkum Bolafljóts? 4. Úr hvaöa máli er nafniö Dungal komiö? 5. Hver orti þetta? Tittlingar f mýri, tina fræ og ber, lifa og leika sér, eignast ævintýri. 6. Hver þessara manna féll i Viöi- nesbardaga: Kolbeinn ungi, ögmundur sneis, Kolbeinn Tuma- son, Oddur Þórarinsson? 7. Hvernig lét Marat lifiö? 8. Hver þessara plantna neytir llf- rænnar fæöu, brönugras, dýra- gras, naflagras, lyfjagras. 9. Hver var höfundur alþjóöamáls- ins esperantó? 10. Hvað heitir forsætisráðherra Noregs? Svör á bls. 39. — Auövitað máttu lesa, elskan, ef þú bara slekkur ljósiö! 35

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.